Vera - 01.02.1987, Síða 34
EINS OG HAFIÐ
Fríða Á Sigurðardóttir
Útg.: Vaka-Helgafell.
1986.
Hvaö er eins og hafiö?
Kannski ástin, eins og segir í
söngnum sem vitnað er til í
sögunni: „Perhaps love is
like the ocean“ en í víðara
skilningi má líkja mannlífinu
öllu, með ást sinni, kvíða,
gleði, sorg, öryggi, öryggis-
leysi og umfram allt gráum
hversdagsleikanum; því má
líkja við hafið; djúpt og sí-
breytilegt en þó alltaf það
sama.
Eins og hafið er önnur
skáldsaga Fríðu Á. Sigurðar-
dóttur sem einnig hefur sent
frá sér tvö smásagnasöfn.
í sögunni, sem gerist í litlu
sjávarþorpi, fylgjumst við
með íbúum gamals húss eitt
sumar, reyndar síðasta sum-
ar hússins, um haustið á að
rífa það. í húsinu búa gömlu
hjónin Petra og Beggi sem
hafa tapað eigum sínum á
hæpinni útgerð Begga hér
áður fyrr. Þar búa einnig
Þórunn og Jón, uppflosnað
sveitafólk, ásamt dætrum
sínum Kristínu og Svönu, og
börnum Svönu, Gullý og
Pésa. í kjallaranum býr Odda
með Leifa syni sínum og þar
býr einnig ruglaði uppfinn-
ingamaðurinn Kjartan. Ekki
má gleyma vonbiöli Svönu,
Steina, sem einnig býr í
húsinu. Við kynnumst líka
öðrum íbúum þorpsins, mis-
munandi eftirminnilegum, en
það eru örlög hússins og
íbúa þess sem sagan snýst
um.
Á staðreyndum eins og
þeim að unglingarnir hlusta á
Duran Duran og Boy George
sést að tími sögunnar er nú-
tíminn. Samt finnst mér hún
varla gerast í nútímanum,
fólkið á einhvern hátt varla
nútímalegt. Ég nefni tvö
dæmi: tilraunir Gullýjar við að
ná af sér freknum; þótt ég
kannist við þær frá því ég var
lítil hefur dóttir mín (nokkurn
vegin jafnaldra Gullýjar)
aldrei heyrt á þær minnst og
Petra og Beggi sem fara í
sparifötin til að kjósa. Gerir
fólk það ennþá? Einnig eru
útlistanir á skúrbyggingu
Steina í stað kamra hússins
einhvern veginn einkennileg-
ar í dag:
„Steini byggði skúrinn nokkr-
um árum eftir að hann hætti
á sjónum. Hann var orðinn
uppgefinn á snattinu. Tolldi
ekki við neitt. Svo hann
byggði skúrinn. Með leyfi
Ásgeirs gamla, og bæjaryfir-
valda. Upphaflega stóðu
þarna þrír útikamrar, en Ás-
geir gamli hafði fyrir löngu
látið setja þrjú klósett í húsið,
eitt fyrir hverja hæð, og
kamrarnir stóðu auðir og
grotnuðu niður. Steini reif þá
og byggði skúrinn upp á
grunni þeirra, rúmgott verk-
stæði með tveimur stórum
gluggum." (Bls. 25)
Væri ekki minnst á fyrir-
bæri eins og Duran Duran,
stríðið í Afganistan og versn-
andi ástand í Póllandi fyndist
mér sagan frekar gerast fyrir
svona 20—30 árum en í fyrra
eða hitteðfyrra.
Inn í söguna fléttast þjóð-
saga um húsið og voveifleg
örlög fyrstu íbúa þess, sem
virðast hafa látið lífið af ást.
Mér finnst þessi þjóðsaga
ekki auka skilning á þvi fólki
sem sagan fjallar um og í
raun og vera óþörf og hún á
sinn þátt í því að sagan er að
sumu leyti gamaldags, eins
og áður segir.
Frásagnarháttur sögunnar
tekur mið af því að í henni er
engin eiginleg aðalpersóna
sem allt snýst um (nema við
leyfum okkur að kalla húsið
þá aðalpersónu) heldur eru
allir íbúar hússins nokkurn
veginn jafnréttháir og frá-
sögnin skiptir sér á milli
þeirra. í þessu sambandi er
sérlega eftirtektarvert hvernig
sjónarhorn sögunnar breytist
stöðugt eftir því af hvaða per-
sónu segir. Þannig frásagnar-
aðferð og stöðug skipti
sjónarhorns eru mjög vand-
meðfarin, mér liggur við aö
segja áhættusöm, og hér
koma hæfileikar Fríðu hvað
best í Ijós, hvernig henni
tekst að flakka með sjónar-
horn sögunnar frá einni per-
sónu til annarrar án þess það
nokkurn tíma sé óþægilegt
og samt er alltaf Ijóst hver
hugsar eða talar, hvort sem
það er einhver persóna
sögunnar eða þá sögumaður.
Vald Fríðu á málinu á ekki
minnstan þátt í því hversu vel
henni tekst til með vanda-
sama frásagnaraðferð. Hún
beitir málinu einstaklega
markvisst til að Ijá persónum
sínum einkenni, hvort heldur
er í tali eða hugsun. Þetta
tekst henni án þess að málfar
persónanna verði nokkurn
tíma óeðlilegt né einkennist
af stælum eða klisjum; ungl-
ingurinn talar og hugsar (held
ég) eins og unglingur og
gamla konan eins og gömul
kona. Þótt málfar sögunnar
sé yfirleitt mjög vandað og
stíllinn agaður fannst mér á
stöku stað gæta tilgerðar í
stílnum, einkum í upphafinni
umhverfislýsingu á fyrstu síðu
sögunnar.
Segja má aö Fríða sé mjög
lýðræðisleg í garð persóna
sinna og leyfi þeim að koma
fram á sínum eigin forsend-
um. Nánast allar persónur
sem einhverju skipta fá að
gera grein fyrir sér og öðlast
þar með samúð lesenda. Þó
skulum við taka eftir að
Ágúst, elskhugi Svönu og
faðir Gullýjar, fær aldrei að
komast að. Sem verður til
þess að samúð lesandans
(a.m.k. mín) með honum er
ákaflega takmörkuð.
Nátengdur valddreifingu
frásagnarinnar er boðskapur
Þórunnar (og sögunnar) þeg-
ar hún segir við dóttursoninn
Pésa:
„Veruleikinn er stór, hann er
svo miklu stærri en menn
geta ímyndaö sér. Hann rúm-
ast ekki í bókum, mundu það
Pési, hvorki í Hróa hetti né
Biblíunni. . .“ (Bls. 93)
Né heldur í þessari bók,
finnst manni að höfundurinn
vilji bæta við.
Af persónum sögunnar
höföuðu þær mest til mín
ungu stúlkurnar Gullý, sem
mér virðist höfundur leggja
mesta alúð við, og Kristín
móðursystir hennar.
Kristín, sem í upphafi
sögunnar er ástfangin af
Skúla og veit ekki hvort er
dýrmætara hjónabandið og
öryggi þess eða frelsið sem
hún verður að fórna vilji hún
njóta ástarinnar. Sem hélt að
ástin leyfði leik og hlátur og
hugsar, þegar Skúli minnist á
hjónaband:
„Hann er geggjaður! Hún er
bara sautján. Auðvitað dettur
henni ekki í hug að fara að
gifta sig. Það hvarflar ekki að
henni. Fjölskylda — krakkar
— hann er ekki heilbrigður!
En samt — samt er þetta allt
dálítið spennandi. Hann varð
svo reiður. Hann sem hafði
kallað hjónabandið snöru smá-
borgarans í vetur. Hún á bréf-
ið. Hún getur sýnt honum
það ef hann vill. Hún hafði
hlegið að því hvað hann varð
reiður, hlegið og kysst hann
smellkoss, en hann ýtti henni
frá sér. Horfði svo undarlega
á hana og ýtti henni frá sér.
„Höfum greinilega ekki sama
húmor.“ Röddin ísköld. Gerði
leikinn að alvöru. En hún var
bara að grínast, hún meinti
það ekki svoleiðis, ekki þann-
ig, vildi bara vita hvað hann
segði. Af því þetta var í fyrsta
skipti — þaö alfyrsta — og
allt var svo gott, eins og það
átti að vera. Hann tók allt svo
alvarlega, kunni ekki að leika
sér. En samt er þetta allt ein-
hvern veginn æsandi. En líka
skelfandi. Af þvi hann varð
svo reiður. Og horfði svo
svona á hana. En auðvitað
ætlar hún sér ekki að verða
ólétt, hún var bara aö fíflast.
Hún ætlar ekki að verða eins
og Svana. Eða mamma. Það
er svo margt sem hún ætlar
að gera, feröast, læra, og
hann bara á öðru ári í læknis-
fræðinni. Giftast? Hann er
brjálaður. Hann hlaut að
skilja að hún — að hún. . .
Það er svo margt sem hún
ætlar að gera, hann hlaut að
skilja það.“ (Bls. 17—18)
Svo fer að hún gengst inn
á alvöru Skúla og gleymir
árekstrum dags og nætur,
frelsis og öryggis. í stað þess
að leika sér og grínast pakkar
hún í sögulok niður visku-
stykkjum því hún er að fara
suður til að búa þar með
Skúla í „algjörri dúkkuíbúð" í
stað þess að fara norður og
halda áfram í skólanum þar.
Og öryggislausa Gullý, tán-
ingurinn sem telur sig eiga
samastað í húsinu, að þar sé
hún örugg. Hvernig yfirvof-
andi heimilisleysi hræðir
hana:
34