Vera - 01.02.1987, Page 37
arar bókar auðvelt að ímynda
sér Svöfu í hópi nútíma-
kvenna. Margt af því sem
hún segir í ræðum sínum,
kom mér reyndar á óvart og
mun fá mig til að endurskoða
álit mitt á starfsemi kven-
félaga fyrr á öldinni. Hug-
myndir Svöfu þar um hljóta
að hafa haft hljómgrunn, ella
hefði henni tæpast verið falin
þau trúnaðarstörf sem raun
ber vitni. Þannig líkir Svafa (í
erindi frá 1931) góðgerðar-
starfsemi kvenfélaganna við
plástur og skorar á konur að
grafa fyrir rætur meina og
vinna á þeim bót í stað þess
að plástra þau með fjárgjöf-
um. í ræðu 1938 deilir hún á
uppeldi ungra stúlkna, sem
ekki innræti þeim þá hugsun
að þurfa að vinna fyrir sjálf-
um sér og vera fyrirvinnur
annarra. Hún nefnir
menningu karla og ég þykist
skilja hana rétt þegar ég tel
að hún hafi hugsað sér
menningu þjóðanna kyn-
skipta. í skólamálum eru hug-
nnyndir Svöfu enn þá ferskar.
Af frumsömdu efni bókar-
innar er Ijóst að Svafa hefur
verið mjög vel skrifandi.
Gaman væri að fá að sjá
meira eftir hana — ég velti
því fyrir mér hvort kynsystir
hennar hefði valið aðrar sög-
ur i bókina en ritstjóri bókar-
innar er karlmaður — Smá-
sögurnar gefa innsýn í aðra
konu en þá opinberu og það
sem ég sakna úr þessu riti er
einmitt sú hlið, mér finnst
efnið vera dálítið hátíðlegt og
mjög ópersónulegt utan
kannski tvær greinanna.
En í það heila tekið getur
Samband borgfirskr kvenna
verið stolt af þessari bók og
é9 er því þakklát fyrir að leyfa
^ér að kynnast Svöfu með
þessu móti.
Ms
EF ÞÚ BARA VISSIR
Höf.: Helga Ágústsdóttir
Útg.: Iðunn
Reykjavík 1986
Höfundur bókarinnar sendir
uú frá sér sína aðra unglinga-
bók. j fyrra kom út bókin
.,Ekki kjafta frá". Ég hef ekki
lesið þá bók og get því ekki
borið þær saman hér.
Ef þú bara vissir fjallar um
unglinginn Sigrúnu, sorgir
hennar og gleði. Hjá henni er
foreldravandamálið í al-
gleymingi, en foreldrar henn-
ar eru svona gamaldags,
nöldrandi og tortryggnir
foreldrar. Allt sem Sigrún
gerir virðist vera vitlaust, í
þaö minnsta tortryggilegt.
Henni er yfirleitt ekki treyst
fyrir nokkrum sköpuðum hlut.
Sérstaklega er pabbinn leið-
inlegur, einn af þessum
frekjukörlum, sem vildi helst
geyma dótturina í búri. Og
árangur uppeldisins lætur
ekki á sér standa. Sigrún þor-
ir auðvitað aldrei að segja
satt, hvorki í stóru né smáu.
Hún veit aldrei nema hvers-
dagslegustu hlutir verði að
stórmáli á heimilinu. Hún er
ósjálfstæð og óörugg og
kemur þetta helst fram í sam-
skiptum hennar við stráka,
sem hún er skotin í.
Helsti kostur bókarinnar er
aö hún fjallar um vandamál,
sem margir unglingar eiga
við að stríða, einkum
stelpurnar. Og ekki er nokkur
vafi að margur unglingurinn
þekkir sig og foreldra sína að
einhverju leyti í bókinni. Auk
þess er bókin bráðholl fyrir
foreldra. Helsti galli hennar
er sá, að á köflum er hún
eins og dálítið yfir-
borðskennd. Sumar
persónurnar eru einhvern
veginn yfirdrifnar eins og t.d.
Benni vinur Sigrúnar og
systurnar Isabel og Luisa. En
í heildina held ég að óhætt
sé að mæla með bókinni,
a.m.k. segir 16 ára ráðgjafi
minn í unglingabókmenntum
að hún sé fín og fann ekki
þessa galla á persónusköp-
uninni sem ég þóttist finna.
bgf
||J Auglýsing um fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík 1987 og verða
álagningarseðlar sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum
vegna fyrstu greiðslu gjaldanna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars og 15.
aprfl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en einnig
er hægt að greiða gíróseðlana f næsta banka, sparisjóði eða
pósthúsi.
Fasteignagjaldadeild Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, veitir
upplýsingar um álagningu gjaldanna, símar 18000 og 10190.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar munu fá lækkun á fast-
eignaskatti samkvæmt reglum, sem borgarstjórn setur og
framtalsnefnd úrskurðareftir, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 73/1980
um tekjustofna sveitarfélaga. Verður viðkomandi tilkynnt um
lækkunina þegar framtöl hafa verið yfirfarin, sem vænta má
að verði í mars- eða aprílmánuði.
Borgarstjórinn f Reykjavík,
6. janúar 1987.
Frá Borgarskipulagi.
Kynning á deiliskipulagi.
Tillögur aö deiliskipulagi reits sem afmarkast af
Grófinni, Vesturgötu, Norðurstíg og Tryggvagötu
(staögr.r. 1.132.1) verðatil kynningar í Byggingar-
þjónustunni að Hallveigarstíg 1, frá mánudegin-
um 23. febrúar til mánudagsins 16. mars n.k.
Athugasemdum eða ábendingum sé komið til
Borgarskipulags, Borgartúni 3, 105 Reykjavík,
innan sömu tímamarka.
Einpig er minnt á kynningu áður auglýstra reita
í Þingholtum og á skipulagi Kvosarinnar á sama
stað.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SlMI 26102
37