Ritmennt - 01.01.1996, Page 79
RITMENNT
EIMREIÐIN
eru mörg þeirra skrifuð undir rós. Þorsteinn
biður Valtý að farga þeim bréfum sínum
sem fjalla um stjórnmál. Sjálfur hefur hann
eyðilagt „hættuleg" bréf frá Valtý að eigin
sögn en segist hafa skrifað innihald þeirra á
dulmáli í minnisbók sína því afar mikil-
vægt sé að enginn hvorki fyrr né síðar kom-
ist að hvað þeim hafi farið á milli. Þetta var
þegar Valtýr reyndi að koma á Valtýskunni,
stjórnmálastefnu þeirri, sem við hann er
kennd.11 Það tókst ekki og á þessum tírna
átti Valtýr marga andstæðinga bæði heima
og í Kaupmannahöfn.
Valtýr hafði miklar mætur á Þorsteini
sem manni og skáldi. Vitna bréf þeirra um
góðar samverustundir þeirra heima og
heiman. Eftirfarandi kvæði, sem er úr bréfa-
safni Valtýs í handritadeild Landsbókasafns
íslands, ber það með sér. Hér getur einnig að
líta rithönd Þorsteins.
Valtýr þráhað Þorstein um lcvæði í rit sitt
en það er eins og ritstjórnarstörfin á Seyðis-
firði hafi dregið allan mátt úr skáldinu Þor-
steini Erlingssyni. í bréfi Valtýs frá 11. júní
1898 segir svo:
Seint fæ jeg framhaldið af „Eiðnum" hjá þjer. Jeg
vil nú enn einu sinni skora á þig að senda mjer
nú einhver kvæði í Eirnr. og framhaldið af Eiðn-
um vildi jeg helst fá. Þó þú ekki sjert búinn með
samskeytin, gætir þú látið mig fá eitthvað af því,
sem þú ert búinn með og varst húinn með hjer í
Höfn. Það gerir minna til í tímariti, þó kvæðin
korni ekki í réttri röð, enda má gera athugasemd
um það. Svona kom öll Friðþjófssaga Tegnérs
fyrst út í tímariti á sínum tíma, einstök kvæði í
einu og jeg má segja öll á ruglingi. Jeg vil vinna
til að borga þér hærri ritlaun en Eimr. almennt
borgar (þó hún sje ekki rík, af því hún á yfir 6
þús. útistandandi) minnst 30 kr. fyrir örkina eða
jafnvel meira.
Jeg vona að þú gerir mjer nú sem allra fyrst
einhver skil og sendir mjer eittlivað svo fljótt, að
það geti lcomið í 3. hepti þessa árgangs. En þá
rnáttu elcki láta það dragast lengi. Það er líka al-
veg nauðsynlegt fyrir þig sjálfan, að eittlrvað
nýtt sjáist eptir þig á prenti, ef þú liugsar upp á
skáldastyrk framvegis, og það efast jeg eklci um,
að þú gerir, því þó illa tækist til með hann á síð-
asta þingi, þá er ekki víst að eins gangi ætið, því
ekki áttu „formælendur" fá.12
I að minnsta kosti tveimur bréfum til
viðbótar slcorar Valtýr á Þorstein viðvíkj-
andi kvæðaflokknum „Eiðnum". Hann
reynir einnig að fá Þorstein til að fullgera
annað sem hann á hálfgert til þess að hann
rísi undir nafni sem slcáld. Það er eins og
Þorsteinn hafi verið tvíslciptur milli blaða-
11 Stefna hans gekk út á það að íslenskur maður, sem
sæti í Kaupmannahöfn, færi mcð sérstök mál Is-
lands. Hann átti ekki að vera háður ríkisráðinu en
eiga sæti á Alþingi og vera ábyrgur gagnvart því.
Andstæðingarnir, „heimastjórnarmenn", vildu hins
vegar að stjórnin væri heima á íslandi og ráðgjafinn
búsettur þar. Valtýr beið síðan lægri hlut og olli það
honum miklum vonbrigðum. Hann sat þó öðru
hverju á Alþingi til ársins 1913.
12 Brcfasafn Þorsteins Erlingssonar.
75