Ritmennt - 01.01.1996, Page 113
RITMENNT
LÖG UM LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS - HÁSKÓLABÓKASAFN
ir stúdenta og kennsluundirbúning og rannsóknir innan Háskól-
ans. Skal undirbúningur þessa fyrirkomulags þegar hafinn."
Ríkisstjórn íslands flutti vorið 1970 svofellda tillögu til þings-
ályktunar:
„Alþingi ályktar, að í tilefni af ellefu hundruð ára afmæli ís-
landsbyggðar 1974 slculi reist Þjóðarbókhlaða, er rúmi Lands-
bókasafn íslands og Háskólabókasafn."
Tillagan var samþykkt 30. apríl 1970.
Hinn 15. júlí 1970 skipaði menntamálaráðherra byggingar-
nefnd Þjóðarbókhlöðu og var Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður formaður nefndarinnar.
Menntamálaráðherra tók fyrstu skóflustungu hinn 28. janúar
1978. Forseti íslands lagði hornstein að byggingunni 23. septem-
ber 1981.
Eftir lagningu hornsteins haustið 1981 var framkvæmdum
haldið áfram, en þær gengu mjög hægt vegna naumra fjárveit-
inga. Því var það, aö menntamálaráðherra gekkst á Alþingi 1986
fyrir samþyklct frumvarps til laga um þjóðarátak til byggingar
Þjóðarbókhlöðu, en samkvæmt því skyldi eignarslcattsauka ár-
anna 1987-1989 alfarið varið til framkvæmda við bókhlöðuna.
Reyndin varð þó sú, að einungis hluti fjárins gekk til þeirra.
Árið 1989 voru á Alþingi sett lög um Þjóðarbókhlöðu og end-
urbætur menningarbygginga og í þeim gert ráð fyrir, að bólchlað-
an sæti fyrir fjárveitingum úr þeim sjóði, er eignarskattsaukinn
nú skyldi renna í. En þar fór á sömu leið og áður, bókhlaðan fékk
ekki nema hluta fjárins. Meirihlutinn gekk samkvæmt heimild
í lánsfjárlögum 1990 og 1991 til annarra framkvæmda, einkum
við Þjóðleikhús og á Bessastöðum.
Á árinu 1992 urðu þau umskipti, að eignarskattsaukinn var að
mestu látinn ganga til Þjóðarbókhlöðu, og allur árin 1993 og
1994. Þungur skriður hefur því haldist á framkvæmdum þessi ár
og nú er gert ráð fyrir, að þeim ljúki á yfirstandandi ári, 1994.
í skýslu 30. mars 1992 frá framkvæmdadeild Innkaupastofn-
unar ríkisins, er annast hefur fjárreiður bókhlöðuframkvæmd-
anna, er greint frá áföllnum kostnaði frá upphafi til ársloka 1991.
Þar sést, að til ársloka 1991 hafði á verðlagi hvers árs verið var-
ið lcr. 503.330.000 til byggingarinnar. Sú upphæð, framreilcnuð
til 1. apríl 1992 samlcvæmt byggingarvísitölu 187,2, verður lcr.
Þingsályktun 1970
Byggingarnefnd
Fyrsta skóflustunga
1978
Lög um þjóóarátak
1986
Lög um endurbótasjóó
1989
Byggingarkostnaóur
109