Vera - 01.11.1995, Page 16

Vera - 01.11.1995, Page 16
Á s þ ó r Ragnarsson sálfræöingur Ásþór Ragnarsson sálfræöingur hefur, ásamt Kristjáni Magnússyni kollega sínum, haldiö sjálfsstyrkingar- námskeiö fyrir karla á Akureyri, í samráöi viö Karólínu Stefánsdóttur og Valgeröi H. Bjarnadóttur sem viö ræddum viö í síðustu VERU. Þaö sem kom einna mest á óvart á námskeiöunum var þaö aö karlmenn viröast almennt - rétt eins og svo margar konur - haldnir sektarkennd gagnvart fjölskyldum sínum. „Þaö var svosem engin AHA-upplifun á þessum námskeiðum," segirÁsþór, „nema hvað sektarkenndina varðar, en það var almenn sektarkennd hjá þeim körlum sem Ásþór Ragnarsson sálfræðingur: „Fyrirvinnuhlutverkið er hlutverk sem margir karlar kunna og þegar þeir missa það verða þeir óöruggir." eiginkonunum, oft er það innri rödd þeirra sjálfra sem lætur í sér heyra og það nægir til að vekja sektarkenndina, þótt það sé í sjálfu sér alls ekki slæmt að geta varðveitt barnið í sjálfum sér. Það er Ifka athyglivert aö kynin umgangast alls kyns tæki með mjög mismunandi hætti og það sést hvað skýrast á því hvernig þau umgangast tölvur og bíla. Karlarnir vilja gjarnan leika sér með tölvurnar, þeir eru t.d. á kafi í stýribúnaði tölvunnar á meðan konan notar hana til að vinna á hana. Þau hafa einnig mismunandi viðhorf til bílsins þar sem konan skoðar hann fyrst ogfremst út frá notagildinu. Þetta er einhver hlið á körlum sem þeir geta ekki afneitað og kannski er krafan um að þeir geri það alls ekki komin frá konunum heldur frá körlunum sjálfum. En þessi mismunur á kynjunum veldur oft erfiðleikum og misskilningi. Annað sem veldur körlum erfiðleikum er sú staöreynd að þeir eru ekki lengur aöal fyrirvinnur fiölskyldunnar. Fyrirvinnuhlutverk- ið er hlutverk sem margir karlar kunna og þegar þeir missa það veröa þeir óöruggir. en þær og þess vegna verður oft mis- skilningur milli kynjanna. Á meðan konurnar tjá sig meira með orðum tjá karlarnir sig fremur með athöfnum. Sálfræöin byggist meira upp á konunum, Freud vann t.d. mest með konum og hafði sína speki frá þeim. Konur leggja áherslu á orðið og vilja ræða sig út úr vandanum. Það eru líka oftast þær sem panta tíma hjá fjölskylduráðgjafanum og taka karlinn svo með. Það er hins vegar alþekkt að skilningur milli karla myndast vegna einhverrar sameiginlegrar reynslu, t.d. í veiðiferðum, og þá þurfa þeir ekki að hafa mörg orö um það sem gerðist. Konur og karlar láta líka reiði sfna í Ijós á mismunandi hátt. Konur velja oft leið sem bendir tií óákveðni og gefa frekar eftir á meðan margir karlar velja yfirganginn. Þeir halda að það að standa á rétti sínum merki það að berja í borðið og láta engan komast upp með að segja sér fyrir verkum. Konum dytti aldrei í hug að haga sér þannig, enda hefur slíkur yfirgangur ekkert með réttlæti að gera. Námskeiðin sem við héldum á Akureyri gengu út á það að menn áttuðu sig á rétti sínum í samskiptum og lærðu að vera ákveðnir án þess að ganga á hlut annarra." Sonja B. Jónsdóttir KARLAR ERU LÍKA MEÐ sektarkennd sóttu námskeiðin. Þeir eru þá að gera eitt- hvað sem þá langar til að gera en finnst að þeir ættu kannski frekar að vera með fjölskyldunni. Karlmenn hafa einnig sektar- kennd vegna þess að þeim tekst ekki að sjá eins vel fyrir fjölskyldum sínum og þeir vilja. Karlmenn hafa gaman af því að leika sér en fá oft þau skilaboð að þeir eigi að vera vaxnir upp úr þessum leikjum. Það er ekki þar með sagt að þessi skilaboð komi frá Þeir vilja því halda í það og eiga mjög erfitt með að sætta sig við aö konur hafi jafn há laun og þeir. Sumir karlar vilja helst ekki að konur hljóti starfsframa og finnst erfitt aö hafa konu sem yfirmann." Karlar og tilfinningar „Ég held að karlar séu ekki síður tilfinninga- verur en konur," heldur Ásþór áfrarn. „Þeir tjá tilfinningar sínar hins vegar á annan hátt

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.