Vera


Vera - 01.10.1996, Blaðsíða 31

Vera - 01.10.1996, Blaðsíða 31
Mikið úrval og mismunandi fituinnihald tryggir fólki á öllum aldri þœr mjólkurvörur sem henta VELDU ÞÉR MJDLK flÐ HÆFI - ALLA ÆVI! Engin ein fœðutegund, liversu holl sem hún er talin, inniheldur öll nauðsynleg nœringarefni íhœfilegum hlutfollum. Fœðuval er bundið staðháttum og menningu ólíkra þjóða og þörfum hvers og eins. í fœði flestra íslendinga gegna mjólk og mjólkurvörur þó mikilvœgu hlutverki. Mjólk og mjólkurvörur eru auðugri afkalki en nœr allar aðrar fœðutegundir og sjá flestum okkar fyrir um 70% af því kalki sem við fáurn úr fœðunni. Mjólkin er einnig auðug uppspretta annarra nœringarefna en kalks. Hún erpróteinrík oggóð uppspretta fyrir A-vítamín, ýmis B-vítamín (einkum B2, níasín og BI2), en auk þess joð og fosfór. Öll eru þessi efni líkamanum nauðsynleg. Ráðlagðir dagskammtar (RDS) afýmsum nœringarefnum 1-10 ára aldur Hlutfall af RDSÍ2 mjólkur- glösum 11-20 ára aldur Hlutfall af RDSÍ2 mjólkur- glösum 21 árs og eldri Hlutfall af RDSÍ2 mjólkur- glösum A-vítamín 500 jrg 50% 800 ng 31% 800 gg 31% b2 1,0 mg 80% 1,6 mg 50% 1,6 mg 50% níasín 11 mg 21% 18 mg 13% 16 mg 14% B12 2,5 \ig 92% 3,0 gg 77% 3,0 ng 77% fosfór 800 mg 60% 1200 mg 40% 800 mg 40% joð 90 ng 100% 150 gg 60% 150 gg 60% kalk 800 mg 72% 1200 mg 48% 800 mg 72% Við gerð töflunnar er miðað við meðaltal næringarefna í nýmjólk og léttmjólk. 1 glas af mjólk er 2,5 dl. Niasln reiknast sem niasinjafngildi (NJ). Glerunqur Kannanir hafa sýnt að margar unglingsstúlkur og konur drekka fremur litla mjólk. Þannig fær fjórða hver unglingsstúlka minna en ráðlagðan dagskammt af kalki daglega og ástandið er lítið betra hjá þeim konum sem náð hafa fullorðinsaldri. Á meðan tennur og bein barna og unglinga eru að vaxa er kalkrík fœða afar nauðsyn- leg. Eftir að fullorðinsaldri og fullum tannþroska er náð gegnir mjólkin áfram veigainiklu hlutverki í viðhaldi beina og tanna. Munum að glerungur tannanna er beinlínis búinn til úr kalksambönduiti. Tvö til þrjú glös afmjólk á dag tryggja að þú fœrð nóg af kalki. Mjólk fyrír hugann Flestir vita að morgunverðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í daglegu fæðumynstri fólks á öllum aldri. Sumir segja að morgunverðurinn sé mikilvægasta máltíð dagsins. Þetta á þó sérstaklega viö um börn, enda hefur innihald morgunverðarins bein og ótvíræö áhrif á líðan þeirra, úthald og velgengni í skólanum. Samkvæmt nýlegri könnun Manneldisráðs fær sá hópur nemenda sem borðar morgunverð sjaldan eða aldrei umtalsvert minna magn allra nauðsynlegra næringarefna á dag en hinn hópurinn sem yfirleitt borðar morgunverð. Barn sem borðar morgunverð 5 sinnum i viku eða oftar fær að meðaltali 50% meira af bætiefnum í daglegu fæði sínu en barn sem borðar morgunverð sjaldan eöa aldrei. Mjólk fyrír tennur og bein Talið er að þriðja hver kona fái einkenni beinþynningar einhvern tíma á ævinni. Eftir tíðahvörf verður hratt tap á beinmassa, beinin verða stökk, hryggjarliðir geta fallið saman og önnur bein brotna við minnsta átak. Rannsóknír á beinþéttni og brotatíðni benda til þess að hér á landi verði 1200-1500 bein- brot ár hvert vegna beinþynningar. Flest þessara brota verða við óverulega áverka. Beinþynning er liklega að hluta til arfgengur kvilli og ræðst öðru fremur af minnkandi framleiðslu kvenhormónsins estrógens. Engu að síður benda rannsóknir til þess að þeim mun meira sem líkaminn fær af kalki á lífsleiðinni, þeim mun minni sé hættan á alvarlegri beinþynningu. [ baráttunni við beinþynningu er einfaldasta vopnið því líklega að halda kalkbúskap líkamans í góðu lagi. Hér ráða áhyggjur af aukakílóum llklega miklu. Þvi er rétt að minna á að fitulitlar mjólkurvörur innihalda sama magn af kalki og aðrar mjólkurvörur. Með því að velja fitulitlar mjólkurvörur er hægur vandi að fá ráðlagðan dagskammt af kalki án óþarfrar þyngdaraukningar. Það gefur auga leið að svangt barn er ekki góður nemandi. Þetta hefur verið staðfest með rannsóknum, þar sem borin eru saman börn sem fá staðgóðan morgunverð og börn sem borða engan eða innihaldslítinn morgunverð. „Morgunverðarbörnin" hafa: • meiri vinnuhraða og úthald • betri einbeitingu og rökhugsun • auðugra ímyndunarafl ÁDAG -alla asvi! Helstu heimildir: M. Chapucy o.fl.: Vitamin D3 and calcium to prevent hip fractures in elderly women, New England Journal of Medicine 327, 1992. Dawson-Hughes o.fl.: A controlled trial of the effect of calcium supplementation on bone density in postmenopausal women, New England Journal of Medicine 328,1993. landlæknisembættiö. Laufey Steingrlmsdóttir o.fl.: Hvaö boröar Islensk æska? (Manneldisráö Islands, 1993); Könnun ó mataræöi Islendinga 1990 (Manneldisráö Islands, 1991-92). Manneldisráö Islands: Ráölagöir dagskammtar 1991; Manneldismarkmiö, 1994. Tannverndarráö. MJÓLK ER GÓÐ ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR HVÍTA HÚSIÐ / S(A GSP ALMANNATENGSL LJÓSM.: LÁRUS KARL

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.