Vera - 01.10.1996, Side 35

Vera - 01.10.1996, Side 35
Fylgjendur þeirrar stefnu halda því fram að saga karla einna eða kvenna einna hljóti að gefa skekkta mynd af sögu mannkyns. Efna- hagur og samfélag hljóti alltaf að byggjast á kynpólitískum valda- tengslum. Því veröi að beita breiðara sjónarhorni. Með öðru móti verði atburðarás veraldarsögunnar hvorki skilin né skýrð til hlítar. í mjög svo læsilegri grein sem Agnes ritaði í tímaritið Sagnir 1993 um sögu beggja kynja bendir hún á að gera þurfi samanburð á stöðu kvenna og karla og tengslum þeirra innbyrðis. Ekki ganga út frá því sem vísu að karlar ráði alltaf mestu: „Konur geta t.d. haft mikil sál- fræðileg völd innan vébanda fjölskyldunnar, á meðan karlar gegna oþinberum embættum og sinna hervörnum." Þegar bræður berjast... í fljótu bragði virðist vandfundin meiri „karlasaga" en Sturlunga með allt sitt hrottalega ofbeldi og bræðravíg. En þar bregður þó fyrir býsna mörgum konum og hafa ólík hlutverk. Sumar vinna að sáttum, aðrar eggja til bardaga, og jafnvel getur sama konan átt hvort tveggja til eins og Steinvör á Keldum. Ýmist fleygði hún búrlyklunum í bónda sinn, eða sat í sáttanefnd með biskuþi. Greindi þau á „skyldi gera Steinvör ein." Margar þeirra eru nátengdar höfundi, Sturlu Þórðar- syni, og varla hugarburður hans. Trúlegt er að hann fari nokkuð rétt með sögur af ömmu sinni, Guðnýju Böðvarsdóttur. Við Sælingsdals- laug varð sonur hennar, Þóröur (faðir Sturlu), eitt sinn svo reiður af því að hann fékk ekki að hengja þjóf, að móðir hans og fleiri menn urðu að halda honum. Drap hann engan þann daginn. Þessa svipmynd og margar fleiri af konum í Sturiungu rifjar Agnes upp í bók sinni. Meginviðfangsefni hennar er þó að skoða áhrif kvenna og stöðu í víðara samhengi og greina á fræðilegan hátt. Sé einblínt á formlegar valdaleiðir í lögum og stjórnarskrám fyrri alda virðast konum flest sund lokuð. Svo Agnes svipast um eftir óform- legum valdaleiðum, sem konum væru færar. í því skyni rannsakar hún ítarlega stöðu kvenna gagnvart ætt ogí hjónabandi. Samanburð- ur á Grágás og Sturlungu verður henni haþpadrjúgur. Abraham gat ísak... Til forna voru ættir á Norðurlöndum raktar bæði T móður- ogföðurætt (beggjaætta kerfi) - og báðum gert jafn hátt undir höfði. Það sýnir virðingu fyrir konum. (Biblían er hins vegar gott dæmi um hreint föð- urættar kerfi: Abraham gat ísak, ísak gat o.s.frv.). Lög takmörkuðu erfðir kvenna, en af Sturlungu má sjá að þeim lögum var ekki fylgt út. í ystu æsar. Á hinn bóginn gat staða kvenna orðið vandasöm ef ætt- ingjar deildu. Samanburður Agnesar nær ekki aðeins til kvenna og karla, held- ur einnig íslands og Evróþu samtímans. Sú hugmyndafræði að föður- ætt væri „hið betra kyn" kom upp þegar aðalsættirT Evrópu fóru að kenna sig við höfuðból stn. Til að halda þeim óskiptum voru þau lát- in ganga í karllegg. Einn sonanna var valinn höfuðerfingi en systkini hans máttu sætta sig við rýran kost, oft einlífi. (Þetta kerfi hélst hjá landeigandaaðli fram undir okkar daga, og má glögglega sjá T sögum Jane Austen og kvikmyndagerðum af þeim!) Agnes telur tilhneigingar T þessa átt gæta í Grágás, en beggjaættakerfið hafi haldið velli. Foreldrar fjárfestu í barnabörnum í síðari hluta bókar sinnar skoðar Agnes hjónabönd. Annars vegar frá sjónarmiði kirkjunnar, hins vegar höfðingja. Þau voru þólitískir samn- ingar sem karlar gerðu sín á milli og gátu jafngilt hernaðarbandalög- um vorra daga, því mægðir við volduga bandamenn skiptu miklu. Dætur fengu heimanfýlgju þegar þær gengu í hjónaband. En sam- kvæmt gömlum sið, sem ef til vill hélst lengur hér á landi en erlend- is, fékk dóttir heimanfylgju þegar hún gekk í hjónaband. (Þær voru ekki settar á götuna og lánskjaravísitöluna eins og unga fólkið í dag, eins og prestur í Reykjavík komst að orði nýlega.) Foreldrar fylgdust með því hvernig heimanfylgjunni var ráðstafað því í raun var verið að fjárfesta t efnilegum dóttursonum, ættinni til stuðnings í framtíðinni. Fleimanfylgjan varö því aldrei eign eiginmanns, en gat lagt grunn að sjálfstrausti eiginkonu. Kirkjan náði að koma nokkru af siðaboðskaþ sínum inn í hin ver- aldlegu lög. Menn fóru að bera meiri virðingu fyrir hjónabandi, og líta á það sem heilaga stofnun. Agnes efast þó um að trúarleg og hug- myndafræðileg rök kirkjunnar hafi náð að festa djúpar rætur. Hún vitnar í rannsóknir Auðar G. Magnúsdóttur sem sýna að þegar leið á 13. öld kusu ýmsir höfðingjar, einkum af Oddaverjaætt, að lifa ókvæntir og hafa margar frillur, fremur en binda sig á klafa hjóna- bands. Konur af Oddaverjaætt virðast fjárhagslega sjálfstæðar yfir meðallagi, og voru þó margar óskil- getnar, eins og Sól- veig Sæmundar- dóttir og Hallveig Ormsdóttir. í suð- lægari löndum Evr- ópu voru skíriífis- kröfur strangar, en biðlar á norölægari slóðum leituðu fremur að „auðugri konu en hreinni mey." Agnes telur að hjónaband, bak- tryggt og tiármagn- að af ættingjum, hafi veitt konum vissa vernd. Þegar hjónabönd glötuðu pólitískri þýðingu og fjárhagur hjóna varð sameiginlegur var farið að setja lög sem veittu eiginmönnum aukinn ráðstöfunarrétt yfir eignum þeirra. „í raun gat því hugmyndin um hið heilaga hjónaband þýtt að konur misstu lykilstöðu sTna sem tengiliðir milli ætta." (bls.121) Bak við tjöldin Því er oft haldið fram að völd kvenna séu því meiri sem stjórnkerfi sé frumstæðara. Agnes kemst einnig að þeirri niðurstöðu að meðan þjóðveldið var lítt skipulagt og ákvarðanir teknar heima í héruðum hafi konur haft meiri áhrif en þegar kom fram á 13. öld og völd höfðu safnast á hendur fárra höfðingja. Óformlegar valdaleiðir, t.d. sál- fræðileg völd kvenna innan fjölskyldu, hafi þó í stórum dráttum hald- ist fram á okkar daga. HITAVEITA SUÐURNESJA BREKKUSTÍG 36 PÓSTHÓLF 225 260 NJARÐVÍK Sl'MI 421 5200 AGNES S. ARNÓRSDÓTTIR KONUR OG VÍGAMENN Staða kynjanna á íslandi ó 12. og 13. öld kv^nnafræöi

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.