Vera


Vera - 01.10.1996, Qupperneq 15

Vera - 01.10.1996, Qupperneq 15
ekki á þeim buxunum að yfirgefa karlastörfin sín: hljómsveitarstjórn og tónsmfðar. Það er ekki sísttónskáldinu, út- setjaranum, saxófónleikaranum og hljómsveitarstjóranum Hanne Rbmer að þakka að norræna kvennastórsveitin April Light Orchestra lifir góðu lífi. Sveitin var upphaflega stofnuð til að leika á kvennaþinginu Nordisk Forum í Finnlandi 1994 og ekki skorti metnaðinn, tuttugu konum frá öll- um Norðurlöndunum var safnað saman í stærstu gerð af þigbandi og lagt upp með „kvenlega" efnis- skrá, einungis lög og/eða útsetn- ingar eftir norrænar konur. Hljóm- sveitin sló I gegn strax á fyrstu tónleikum og hefur síðan farið víða, m.a. til Kína. Það var þvf ekki seinna vænna að íslenskir djassarar fengju að sjá og heyra þessa nafntoguðu stórsveit og fylgjast með frammistöðu Islendingsins í hópnum, siglfirska gítarleikarans Guðrúnar Hauksdóttur. Þrátt fyrir nokkurt fámenni rfkti mikil eftirvænting í Súlnasal þegar Hanne Romer taldi í fyrsta lag og brátt tók sveiflan völdin, eins og vera ber, April Light Orchestra rakti sig í gegnum efnisskrána af mikl- um þrótti og óþrjótandi sköpunargleði. Ekki minnkaði stemmningin í salnum þegar okkar eigin prfmadonnu, Andreu Gylfadóttur, var boð- ið upp á svið til að syngja eitt lag, sem hún og gerði með glæsibrag og þá var kátt í höllinni.! í hléinu var ég oröin svo upptendruð yfir leik sveitarinnar að ég tyllti mér hjá Sæbirni Jónssyni, stjórnanda Stórsveitar Reykjavíkur og spurði hvort honum fyndist brassið ekki æðislegt. „Jú.jú það erfínt" svaraði Sæbjörn „en mérfyndist að hún ætti að hafa einn strák í bandinu - ég er með stelpu í stórsveitinni hjá mér!" Ég fór ekki hið minnsta út af laginu við þetta svar, enda Sæbjörn annálað prúðmenni, en að loknum tónleikum hélt ég áfram að velta því fyrir mér hvort tuttugu konur hljómuöu ööruvfsi en nftján konur og einn karl? Aðspurð reyndist Hanne Rbmer hafa sína eigin kenningu um hinn einstaka hljóm April Light Orchestra: „I stórsveit kvenna myndast mjög fallegur hljómur. Konur spila einfaldlega öðru- vísi en karlar og hlusta hver á aðra á annan hátt. Galdurinn hjá okk- ur er sá, held ég, að trompetseksjónin yfirgnæfir ekki hina blásarana eins og oft gerist í karlastórsveitum. Það er eins og strákarnir séu hreinlega í vandræðum með allan þennan kraft sinn." Hvað skyldi Sæbirni finnast um þessa „kvenlegu" skýringu? Að lokum er forráðamönnum RúRek hátíðarinnar þakkað það ágæta framtak að bjóða kvennastórsveitinni April Light Orchestra hingað til lands, en manninum sem sneri við í miðasölunni er vor- kunn þvf hann missti af frábærum tónleikum! Eftirþankar: „Máske ikke precis et jazzsted..." sagði Hanne Romer um Hótel Sögu og það eru orð að sönnu. í fínlegri köflum tónverkanna tókst hljómsveitinni nefnilega ekki að yfirgnæfa Isausturs-sinfóníu barþjón- anna sem þar að auki voru vopnaðir sífretandi Visavélum. Væri til of mikils mælst að opnunartónleikar RúRek fengju þá umgjörð sem tón- listinni hæfir, án tillits til þorstlátra djassáhugamanna, eða I það minnsta fengnir til starfa barþjónar sem geta hrært I ísfötunni þegar það „passar" - og annars ekki ? FÉLAG ÍSLKN8KRA HLJÓMLISTAMANNA lifandi tónlist - lifandifólk s Utvegar yður hljóðfæraleikara og liljómsveitir við hverskonar tækifæri. Sígilda tónlit, jazz og rokk. Upplýsingar í sínia 588 8255

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.