Vera - 01.10.1996, Page 6

Vera - 01.10.1996, Page 6
thafnakonan 12 ára, þá rak ég mitt eigið fyrirtæki og gat stjórnað því hvernig ég vann og átti líka góða að þannig að þetta var aldrei vandamál." Mæður og dætur Árið 1989 dró Bryndís sig að mestu út úr daglegum rekstri verslunarinnar en þá tók hún við starfi umboðsmanns tryggingafé- lagsins Sjóvár-Almennra. „Kristfn, dóttir mín, hefur séð um inn- kaup og daglegan rekstur verslunarinnar en hún er núna í barneignarfrii þannig að ég tók við rekstrinum á meðan. Ég rek skrifstofu Sjóvár-Almennra í eigin nafni og sé um allt sem viðkemur tryggingum þeirra hér á þessu svæði. Fram undir þetta hef ég einnig verið með umboð fyrir ferðaskrifstofur, svo er ég einnig með umboð fyrir tryggingafélag- ið Ábyrgð og líftryggingafélagið Samlíf." Hvemig ertu menntuð? „Ég er gagnfræðingur en átti eldri dóttur mína ung þannig að það varð ekkert úr frekara námi." Heldur þú að hún hafi valið við- skiptafræðina vegna áhrifa frá þér? „Já, ég held að mæður beini oft dætrum sínum á þá braut sem þær langaði að fara sjálfar." Forseti bæjarstjórnar Bryndís sat í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í tvö kjörtímabil, frá 1986-1994. „Ég dreif mig í prófkjör fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar árið 1986 og varð í öðru sæti. Eftir það kjörtímaþil tók ég aftur þátt í próf- kjöri og varð þá í fyrsta sæti. Ég leiddi svo Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum árið 1990 og við unnum mesta sigur sem við höfum nokkurn tíma unnið hér á Selfossi. í síðustu kosningum hvarf ég svo af þessum vettvangi enda nóg annað að gera." Hefur þú hug á meiri stjómmálaþátttQku? „Ég hef ekki leitt hugann að þvl. Mér fannst þetta afskaþlega skemmtilegur vettvangur. Ég held að bæjarstjórnarpólitíkin sé skemmtilegri en landsmálapólitíkin því ná- lægðin er svo mikil. Ég þekki allar aðstæð- ur svo vel hérna og það var gaman að takast á við þetta í ört vaxandi bæjarfélagi. Þetta var skemmtilegur og gefandi tlmi." Hver eru áhugamál þín? „Ég hef voða gaman af að stússa í hestum ogyngri dóttir mín er með mérí því. Svo hef éggaman af aðferðast, bæði innanlands og utan. Áhugi minn á ferðalögum vaknaði mjög snemma og það var kannski það sem leiddi mig út í verslunarrekstur að ég gat ferðast." Eg er tæplega tvítug stelpa úr Reykjavík. Eg sem ennþá er hrein mey, í núttma samfélagi þar sem ætlast er til þess að fólk lifi kynlífi, er búin að fá nóg. Næstum allar bíómyndir og auglýsingar höfða til kynhneigðar fólks. Ég var alin upp við það viðhorf að kynlíf sé eitthvað fallegt sem Guð hefur gefiö okkur til að njóta með einhverjum sem við eiskum. Er það viðhorf ástæðan fyrir því að ég hef ekki ennþá sofið hjá, ég hef einfaldlega ekki hitt neinn strák sem ég hef haft áhuga á að sofa hjá, eða er það kannski eitthvað ann- að? Ég átti líka vinkonu þegar ég var 16 ára sem svaf hjá öllum sem buðu sig fram. Hún hafði ekkert sérlega gott orð á sér sem smit- aðist yfir á okkur hinar, það gerði mig enn staðfastari á mínu, ég vildi ekki vera eins og hún þótt allir héidu það. Viðbrögð fólks við þessu „vandamáli" eru mjög mismunandi. Sumir dást að því að geta beðið svona, aðr- ir segja að ég viti ekki hverju ég sé að missa af, enn aörir tala um innilokaða kynorku sem eigi eftir að brjótast út einhvern tímann meö svaka sprengingu. En það er eitt sem allar vinkonur mínar segja, að fyrsta skiptið hafi verið ömuriegt hjá þeim, hvort sem það hafi verið gert með einhverjum sem þær bera sterkar tilfinningar til eða ekki. Meyjarhaftiö er eitthvað sem enginn vill hafa í vestrænu samfélagi, maður verður einhvernveginn útundan og finnst maður vera öðruvísi. Sumum finnst þeir kannski sérstakir en öðrum finnst þeir vera hallæris- legir og eftirá. Á meðan gildið „burt með meydóminn fyrir 16" gildir hjá okkur eru til burt með meydóminn! heilu þjóðirnar þar sem konur verða að vera hreinar meyjar á brúðkaupsnóttina til að verða ekki útskúfað úr samfélaginu. Þar eru til læknar sem græða morðfjár á því að búa til ný meyjarhöft! Núna þegar ég er orðin þetta gömul I opnu samfélagi þar sem allirtala um allt án þess að biygðast sín verður maður hálf út- undan þegar vinkonurnar tala um tippa stærðir og hvernig þessi og hinn er í rúminu. Ég sagði áðan að ástæðan fyrir skýrlífi mínu hafi veriö í uppeidinu, kannski er það ekki lengur það sem situr I mér - kannski er það hræðsla. Að þora ekki að láta reyna á þetta vegna þess að ég kann ekki, því æfingin skapar meistarann. Spurningar koma líka upp stundum eins og: er eitthvað að leginu mínu, er ég eitthvað afbrigöiieg er það þess vegna sem ég hef aldrei viljað sofa hjá o.s.frv. Stundum hugsa ég og hlæ innra með mér þegar ég sé bróður minn 14 ára og vini hans með sogbletti á hálsinum leiðandi ein- hverja stelpu, að þau lifa betra kynlífi en ég þessa stundina, því ég hef ekki þorað að vera með strák á föstu í svolítinn tíma vegna þess að ég veit að hann kemur til með að ætlast til þess að ég sofi hjá honum. Kannski er bara tími tii kominn aö stinga smokk í vasann, fara út á lífið, finna ein- hvern tilkippilegan og komast að því hvort ég sé að missa af einhverju. Snepla VERA þakkarSneplu þetta athygliverða Préf. Gaman værí að fá állt fleirí lesenda á þessu máll. Ritnefhdin Hefur þú fundiö fyrir því aö þaö sé erfitt aö vera kona í atvinnurekstri? „Nei, þvert á móti. Ég hef alltaf haft skilning viðskiptabanka míns á því sem ég er að gera og sem betur fer alltaf getaö staðið við skuldbindingar mínar. Ég held að það sé for- sendan en ekki að maður sé kona. Ég hef aldrei oröið vör við það, hvorki T viðskipta- samningum erlendis né hér heima, að það hafi verið mér fjötur um fót.“ Hvaö finnst þér um þær hugmyndir aö stofna sérstakan hanka fyrir konur? „Ég er þeirrar skoðunar að það sé algjör óþarfi. Ef konur geta ekki farið til banka- stjóra, þótt hann sé karl, þá hafi þær ekkert út í samkeppni að gera því það þarf að vera með bein í nefinu til að reka fyrirtæki. Sam- keppnin er alltaf að aukast með betri sam- göngum og verslunarferðum. Maður þarf að hafa heilmikið fyrir því að láta enda ná sam- an í verslunarrekstri." Ertu alltaf í vinnunni? „Já, mér finnst maður þurfa að vera sjálfur með púlsinn á þessu. Ég er ekki svona utan- aðkomandi forstjóri sem kíkir við. Égferyfir- leitt heim klukkan fimm en kem svo frekar aftur ef eitthvað þarf aö gera." Eyrun Ingadóttir

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.