Ritmennt - 01.01.2004, Page 16

Ritmennt - 01.01.2004, Page 16
KRISTÍN BRAGADÓTTIR RITMENNT ingar Bayard Taylor á bókmenntum Norður- landanna.2 Þegar leið að þúsund ára afmæli íslands byggðar 1874 fékk Fiske hugmynd sem hann kom þegar í framkvæmd. Honum fannst tilvalið að bandaríska þjóðin sendi ís- lendingum veglegar bókagjafir. Hann vissi sem var að landsmenn voru bókmenntalega sinnaðir en voru einangraðir og áttu eklci auðvelt með að nálgast ritverk annarra þjóða. Gekkst hann nú af miklum dugnaði fyrir söfnun fyrir afmælisgjöfinni og sendi bréf til málsmetandi manna í Bandaríkjun- um og hvatti til þess að sameinast yrði um höfðinglega bókagjöf til handa íslendingum. Ekki er vitað hve mörgum Fislce sendi þessa áskorun, en líklega voru þeir allmargir, og honum bárust svör víða að. Hann féklc í lið með sér skáldið kunna Henry Wadsworth Longfellow, sendifulltrúann og þýðandann Bayard Taylor og F.J. Child prófessor við Harvard-háskólann. Fiske seildist meira að segja til Kanada og skrifaði Dufferin lávarði og rithöfundi sem þckktur var fyrir verk sín, meðal annars „Letters from High Latitu- des" þar sem greint er frá ferð hans á norð- urslóðir.3 Dufferin var á þessum tíma lands- stjóri í Kanada og átti eftir að koma mildð við sögu íslendinga sem fluttust búferlum þangað á seinustu áratugum 19. aldar. Duf- ferin brást mjög vel við bón Fiske. í Norðan- fara 18. júlí 1874 er áskorun þessi frá Fiske birt á íslensku undir fyrirsögninni AUG- LÝSINGAR og hljóðar þannig orðrétt í þýð- ingunni: „874-1874." Eyjan ísland hefir geimt lifandi það mál sem telja má eina hinna elztu mállýzka vorrar „teutonsku" tungu. Þessi eyja leiddi fram í fyrndinni merlcilegar bólcmentir; hafa þær fært oss goðafræði og þjóðvenjur vorra fornu forfeðra; en „sögur" hennar bregða hinni fyrstu ljós slcímu á sögu Vesturheims, enda er eyjan saman bundin við þann hluta heims eftir hnattstöðu sinni. Hið undarlega og harðúðga jarðeðli eyjarinnar er al- kunnugt; en öllum ferðamönnum ber saman um, að upp á milli jökla og eldfjalla sinna hafi eyjar- slceggjar haldið við óskerðri ást á lærdómi og bólcfræði til þessa. Þessi fjarlæga eyja ætlar nú að halda í sumar, 2. d. ágústm., þúsund ára afmæli landnáms síns. Daginn áður nær gildi hin frjálsa stjórnarslcrá er Danakonungur hefir nýlega gefið út, er endursel- ur íslendingum í hendur sjálfsforræðisrjett. Slílc hátíð virðist að gefa útlendum fræði- mönnum færi á að votta velvilja sinn jafn fróð- leikselslcri þjóð og íslendingar eru. Það hefir því verið stungið upp á að senda frá höfundum, stofnunum, útgefendum og ýmsum öðrum í Am- erílcu lítið safn af bólcum að gjöf til Stiptisbóka- safnsins í Reylcjavílc, sem er höfuðbær eyjarinnar og hinn íslenzki lærði slcóli á heima í. Þegar bælcur gefast í tvennu lagi verður önnur þeirra send hinu opinbera bókasafni á Akureyri á norð- urströnd Islands. [...] Bólcaböggla, má senda til Prófessors F.J. Child (í Harvard háskóla); til prófessors T.R. Louns- bury (Yale háslcóla); til slcrifarans fyrir Smithson- ian Institution (í Washington); til skrifarans í „The American geographical Society (í New- York City); eða og til bókavarðarins í Cornell há- slcóla (Ithaca, New-Yorlc) með utanáslcript: „To the National Library of Iceland, Reykjavílc." Herra Henry Braem, hinn danslci verzlunarfull- trúi í New-York hefir góðfúslega boðist til að lcoma lcössunum til slcila. Apríl 13, 1874. W(illarðs) F(isk). 2 Memorials of Willard Fiske. Collected by his Liter- ary Executor Horatio S. White I—III. Boston; Gor- ham Press, 1920-22. White var vinur Fiske og sam- verkamaður. I erfðaskrá sinni fól Fiske honum um- sjá allra slcjala sinna, bréfa og rita. 3 Letters from High Latitudes kom fyrst út 1857 og vakti mikla athygli á íslandi og íslendingum. Bókin varð ekki síst vinsæl fyrir bólcmenntalegt gildi sitt. 12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.