Ritmennt - 01.01.2004, Page 61
RITMENNT
NÆR MENN ÞVINGA EITT BARN
(1731-1807). Ári síðar kom Sálarfræðin út í þýðingu sr. Bjarna
Arngrímssonar (1768-1821). Bæði ritin eru mjög í anda Ba-
sedows. Sá reginmunur er þó á þessum tveimur höfundum að
Campe verður ekki við róttækni kenndur og átti þar af leiðandi
aldrei í útistöðum við yfirvöld, hvorki andleg né veraldleg.
Hafi Jón bundið vonir við að Magnús gæfi þýðinguna á uppeld-
isriti Basedows út, brugðust þær. Og hafi hann talið sig hafa þar
harma að hefna styður það meðal annars þá tilgátu Heimis Páls-
sonar23 að aðrar persónulegar deilur hafi kynt undir þeim hörðu
viðbrögðum sem Jón sýnir við sálmabókarútgáfu Magnúsar árið
1801. Hvað bókmenntasmelck varðar, virðist Jón Þorláksson
sjálfur hafa verið mun móttækilegri fyrir róttækri upplýsingu en
útgefendur verka hans.24
Hvernig sem á allt er litið hlýtur það að hafa valdið Jóni sár-
um vonbrigðum að þýðingin féldcst aldrei gefin út. Hún hefur
verið afar seinleg og vandasöm, ekki síst vegna heimspekihug-
taka, eins og hann minnist sjálfur á í formála sínum. Vegna ný-
yrða væri verðugt að orðtaka hana. Ekki er hún heldur síður
áhugavert rannsólcnarefni sem vísbending um hugsanlegan
áliuga hér á landi á róttælcari upplýsingu en fram ltemur í prent-
uðum verltum. Jafnvel þótt sú gáta hver hvatamaðurinn að þýð-
ingunni var og af hverju lrún komst aldrei á prent, verði eklci að
fullu ráðin.
Heimildaskrá
Oprentadar heimildir
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn:
JS 137 8vo. Undervysun umm Barna uppfóstur í ollumm stiettum. Þýðing Jóns
Þorlákssonar á ritinu Sikker Veiledning til den bedtse Borneopdragelse i alle
Stænder eftir J.B. Basedow.
Det kongelige Bibliotek, Kobenhavn:
NkS 3550 4to. Bréfasafn L.P. Schroders.
Prentaðar heimildir
Aðalgeir Kristjánsson. Nú heilsar þér á Hafnarslóð. Reylcjavík 1999.
Basedow, J.B. Praktische Philosophie fiir alle Stánde. 2 Teile. Kobenliavn und
Leipzig 1758. (Bibliotheca Danica-Retroport.)
23 Heimir Pálsson í inngangi að Kvæðum Jóns Þorlákssonar, bls. 46.
24 Sbr. Heimi Pálsson í inngangi að Kvæðum Jóns Þorlákssonar, bls. 38.
57