Ritmennt - 01.01.2004, Page 72

Ritmennt - 01.01.2004, Page 72
INGI SIGURÐSSON RITMENNT Sigurður Þórólfsson (1869-1929). egi og Svíþjóð, var einnig mikill, en ekki liggja fyrir tölur um það efni.25 Margt af þessu fólki fékkst við kennslu síðar á lífsleiðinni. Þegar litið er á skrif íslendinga um lýðháskóla á fyrstu áratug- um 20. aldar í heild, vekur athygli, að lýðháskólahreyfingin er mjög tengd nafni Grundtvigs. Snorri Sigfússon námsstjóri, sem stundaði nám við lýðháskólann í Voss í Noregi 1907-08, segir í sjálfsævisögu sinni, að ýmsir bændasynir hafi á því skeiði að- hyllzt grundtvigska hugmyndafræði. Snorri segir frænda sinn hafa borið sér á brýn í samtali á þeim árum, að hann væri „um of fullur af Grundtvígskum grillum, eins og hann nefndi það."26 Áhrif frá íslenzlcum skólum, sem kölluðust lýðháskólar eða voru ígildi slíkra skóla, birtust greinilega í því, að margir nemend- ur áttu eftir að standa framarlega í félagsmálum og sveitarstjórn- armálum. Rannsókn Huldu S. Sigtryggsdóttur á ferli nemenda Hvítárbakkaskóla í Borgarfjarðarhéraði sýnir þetta ljóslega.27 Fyrstu áratugir 20. aldar voru tímabil mikilla umskipta í ís- lenzkum skólamálum. Ber þar elcki sízt að nefna fræðslulögin 1907, stofnun alþýðuskóla og ýmissa sérskóla, tilkomu héraðs- skóla og lagasetningu um gagnfræðaskóla 1930. í ákveðnum til- vikum voru héraðsskólar arftakar annarra slcóla; þannig var Lýð- háskólinn á Hvítárbakka felldur undir lög um héraðsskóla, en skólinn var fluttur að Reykholti 1931. Skólarnir á Laugarvatni, Reykjum í Hrútafirði og Reykjanesi við ísafjarðardjúp áttu sér hins vegar ekki forvera. Lög um héraðsskóla voru ekki sett fyrr en 1929, þegar fjórir slíkir skólar voru starfandi, og birtast greini- leg lýðháskólaáhrif í þeim. Þar segir m.a.: Skal í yngri deild meir lögð áherzla á ýms fræði, leikni og tækni, sem nauðsynleg er til sjálfsnáms, en í eldri deild á sjálfsnám og iðju, eftir því sem hæfileikar og áhugi bendir til.28 En markmið þeirra alþýðuskóla, sem stofnaðir voru fyrir þann tíma og hafði ekki verið mörkuð sameiginleg stefna, voru að nokkru leyti hin sömu. Meðal skólastjóra héraðsskóla, sem voru 25 Jón Torfi Jónasson: Lýðháskólar á íslandi í byrjun 20. aldar, bls. 126-28. 26 Snorri Sigfússon. Feiðin fiá Biekku. 1. b., bls. 218-19. 27 Hulda S. Sigtryggsdóttir: Alþýðuskólar og ungmennafélög. 28 Stjóinaitíðindi fyiii ísland átið 1929. A-deild, bls. 101. 68
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.