Vera


Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 8

Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 8
N £I A S I E A B A S L <hann> hæ <Hún> hæ <hann> viltu spjalla? <Hún> já, kannski <Hún> en þú? <Hún> mikið að gera? <hann> má ég byrja á að spyrja um aldur kyn og staðs? <Hún> já. <Hún> ég er kvenkyns. 33 ára og bý 1 Reykjavik... en þú? <hann> kk 36 garðabæ <Hún> góður náungi? <hann> þokkalega <hann> hvað rekur þig á irc? <Hún> ég var nú reyndar bara að kikja á pðstinn minn, og... <Hún> datt 1 hug að kíkja aðeins á Irkið.. og siðar? <hann> biddu er ég að miskilja eitthvað? <hann> ég á 3 börn <hann> og er 1 sambúð þannig að kannski viltu ekkert tala við mig <Hún> jú jú <Hún> það er örugglega bara betra að spjalla við þig fyrst þú ert i sambúð og faöir... <hann> er kannski 1 leit af til- breytingu <hann> þannig að þð viltu örugg- lega ekki tala við mig <Hún> ég er að spjalla við annan sem er strax kominn út 1 e-ð deit-kjaftæði, með e-ð óákveöið f huga... <Hún> ert þú f leit að tilbreyt- ingu? <hann> hvað er þetta e-ð <Hún> eitthvað <hann> kannski já <Hún> ert þú að þæla i kynlifi?? <hann> komdu bara og sjáðu mig <hann> hver veit?? <Hún> hvar er konan? <hann> alltaf svo busy <Hún> hvað er hún að gera 1 kvöid? <hann> er bara heima <Hún> ert þú að bjóða mér á fjöl- skyidufund með þér og konunni? <hann> held ekki <hann> er það <Hún> nú hvað þá? <hann> viltu það? <Hún> vili hún það? <hann> veit ekki <hann> kannski <hann> hefurðu prófað svoleiöis? <Hún> veit hún um þetta spjall? <Hún> er hún með þér núna? <Hún> já. bara ekki með tveimur ókunnugum manneskjum <Hún> jæja ég er of óþolimóð 1 svona spjall- <Hún> ég nenni ekki að vera á þessu Irki lengur. Betra að fara að gera e-ð að viti.. <hann> nei hún er frammi <hann> vertu róleg <Hún> veit hún ekki hvað þú ert að bjóða uppá..? <hann> ég er ekki að bjóða neitt <hann> þú ert að spurja <Hún> ok. ég er farin. Blessaður Raf ræn „ „ roman tik Birgitta Jónsdóttir Ég hef reynt að gera mér í hugarlund hver sérstaðan er við að kynnast fólki í gegnum internetið. Er það öðruvísi en að kynnast því við aðrar kringumstæður, eins og til dæmis á bar, á vinnustað eða hvar svo sem maður finnur sterkar tilfinningar til einhvers? fer sennilega eftir því hvernig sam- bandi maður sækist eftir við þann sem maður verður ástfanginn af. Maður kynnist manneskju í gegnum internetið fyrst að innan, það er að segja hugsunum, tilfinn- ingum, heimspeki og lífssýn burt séð frá líkamlegu aðdráttarafli.Yfirleitt fellur mað- ur fyrir hinum ytri sjarma þegar maður sér viðkomandi og er í snertanlegri fjarlægð. Stundum fellur maður samt sem áður ekk- ert fyrir fólki fyrr en maður hefur kynnst þeirra innri manni, og oft á tíðum finnst manni einhver aðlaðandi uns maður kynn- ist þeim nánar. Þó að ástin geti oft gert mann með eindæmum blindan svo jaðrar við heimsku. Það getur líka gerst í sam- skiptum á netinu. Að hlusta á varnarræður innsæisins Ég kynntist eitt sinn manni sem var af- bragðs penni og tókst að mála sinn innri mann með orðum af slíkri snilld að þrátt fyrir ítrekaðar raddir undirmeðvitundar minnar þá tókst honum að blekkja mig al- gerlega, kannski vegna þess að ég þráði svo mikið að hann væri eitthvað annað en hann var. Hann var frá öðru landi og vildi gjarnan, eftir nokkurra mánaða kynni og einskonar ástarsamband í gegnum bréfa- skriftir, koma til Islands. Þegar ég fékk mynd af honum í tölvupóstinum þá hálf brá mér því ég veit að ég hefði aldrei litið við honum ef ég hefði séð hann á gangi í Austurstræti. En ég sannfærði mig um að það væri alveg nóg að elska einhvern vegna innri gæða og ákvað, með smá kvíða þó, að sjá hvort hann hefði ekki einhvern sjarma að geyma ef ég hitti hann í eigin persónu. Innsæi mitt á þessum tíma var sett í hljóðeinangraðan klefa og loks kom að því að hann steig fæti á Island og ég verð að viðurkenna að það var erfitt að sjá eitt eða neitt sjarmerandi við hann, nema kannski þegar hann brosti. Hægt og sígandi komst ég að því að meira og minna allt sem hann hafði sagt í tölvupóstsamskiptum okkar var lygi og hann var allt önnur manneskja en ég hélt að hann væri.Til að gera langa sögu stutta þá endaði þetta allt með ósköpum og ég fékk ómetanlega innsýn í heim kvenna sem búa við heimilisofbeldi. Ég eyddi jól- unum mínum hjá mjög svo elskulegum konum í Kvennaathvarfinu, ég sem hélt að ég myndi aldrei lenda í sambandi sem þessu. Sem sagt lærdómurinn af þessu var: hver og einn getur gefið hvaða mynd af sér sem honum og henni sýnist í gegnum net- ið. Aðalatriðið er að fara mjög varlega og ef maður fær einhvers konar bakþanka, eða á tilfmninguna að eitthvað sé ekki eins og sýnishorn - tekið beint af irkinu 8 • VERA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.