Vera


Vera - 01.04.2000, Side 21

Vera - 01.04.2000, Side 21
„Bókina Against Pornography varð ég að gefa út sjálf,“ segir Diana. „Mér fannst mjög mikilvægt að sýna hvað klám í raun og veru er. Þannig að fólk sé ekki að deila um málið án þess í raun að vita um hvað það er að tala. Flestir karlmenn hafa auðvit- að séð klám, en margar konur ekki. I bók- inni eru þessvegna yfir hundrað dæmi af raunverulegum klámmyndum, með skýr- ingartextum. Þar eru líka greinar þar sem sýnt er fram á orsakatengsl milli kláms og ofbeldis á konum. Ég þurfti að gefa bókina út sjálf því ég fékk ekki leyfi frá klámiðn- aðinum fyrir myndbirtingu og útgefendur óttuðust málsókn. Já, ég leitaði eftir birt- ingarrétti hjá þessum stóru, Playboy, Pent- house og Hustler, fyrst og fremst til að kanna hverskonar viðbrögð ég myndi fá. Sumt efnið í bókinni vissi ég ekki hvaðan kom, enda skipti það ekki öllu máli, það sem ég vildi skoða var einfaldlega hvort þetta efni væri skaðlegt eða ekki, og ég held satt best að segja að þeir sem geta skoðað bókina og haldið því fram að efnið sem þar er sýnt sé skaðlaust, ættu að láta rannsaka á sér höfuðið. En, já, ég komst að því að Hustler gefur ekki birtingarleyfi á sínu efni, Playboy gerir það stundum, það fer eftir því í hvað samhengi á að nota efn- ið. Líkurnar á því að þeir myndu gefa leyfi til að birta myndir sínar í bók gegn klámi eru þannig hverfandi. En þetta var líka spurning um pólitík, og ekki bara pólitík heldur fjármagn. í fyrsta lagi hafði ég ekki fjármagn til að kaupa birtingarrétt á hverri Mér lék forvitni á að vita hvað Russell teldi mikilvægustu áfangasigrana á yfir 30 ára ferli sínum. „Allt sem ég hef verið að fást við hefur á einhvern hátt brotið blað að því marki að það hefur lítið sem ekkert verið rannsakað áður. Fyrir mér er grundvallarspurningin þegar ég vel mér rannsóknarefni þessi: Er einhver annar að vinna með sama efni? Ef svo er þá fmn ég mér eitthvað annað, því verkefnin eru óþrjótandi. Þannig var það til dæmis þegar ég skrifaði mína fyrstu bók um nauðgun. Ég valdi efnið vegna þess að það hafði ekkert verið fjallað um nauðgun út frá femínísku sjónarhorni, það var reynd- ar ein bók á undan minni en ég vissi ekki af henni. Susan Brownmiller birti síðan sína lega mikið af því að tala við konur sem hafði verið nauðgað en mín fyrsta bók var byggð upp á slíkum viðtölum. Sjálf var ég uppfull af nauðgunargoðsögnum áður en ég byrjaði á bókinni. Nauðgun var eitthvað sem aldrei gæti komið fyrir mig, ég skammast mín núna fyrir að viðurkenna þetta, en svona var það. Það var einungis með því að hlusta á konur segja frá reynslu sinni sem goðsagnirnar dóu. Reynslusögur kvenna urðu því sá útgangspunktur sem réttarþingið byggðist á því við vildum ekki láta fræðingana einoka umræðuna, eins og oft gerist. Hvert land valdi þrjár tegundir af glæpum sem það vildi fjalla um. Þetta end- aði síðan í algjöru stjórnleysi, konur komu bara upp á svið og töluðu þegar þær vildu, okkur stjórnendunum var ýtt til hliðar og ég held að þingið hafi batnað fyrir vikið. Þetta var árið 1976 og ekkert þessu líkt hefur verið endurtekið síðan. Við vorum alveg ofboðslega róttækar. Við hleyptum engum karlmönnum inn og engum f)öl- miðlum, nema rétt á setninguna. En þetta hafði gífurleg áhrif. Þarna töluðu til dæm- is breskar konur, þolendur heimilisofbeld- is. Þetta var í fyrsta sinn sem margar okkar heyrðu slíka vitnisburði, og við heyrðum minnst á kvennaathvörf. I kjölfarið voru opnuð kvennaathvörf víðsvegar um Þýska- land. Þarna skilgreindum við glæpi upp á nýtt, ekki á forsendum feðraveldisins. Hverskonar misrétti gegn konum er glæp- ur. Þetta hafði þau áhrif að hvert land fyrir sig þurfti ekki að „uppgötva“ glæpinn eða Þetta er hinsvegar hugmyndafræðilegt stríð og það kallar á aðgerðir. Ef fórnarlömbin, í þessu tilfelli konur, eru ekki tilbúin að gera eitthvað þá breytist ekki neitt. Rétt eins og ef svartir hefðu aldrei sameinast og barist gegn kynþáttahatri, þá hefði kynþáttahatur haldist algjörlega óbreytt. einustu mynd, og svo kærði ég mig auðvit- að ekki um að styðja klámiðnaðinn með því að borga þeim fyrir myndirnar. Ég ákvað því að taka áhættuna og birta þetta sjálf. Ég var auðvitað dauðhrædd, ég vildi ekki missa húsið mitt, sem var það eina sem ég átti. Ég hafði samband við nokkra lögfræðinga og þeir voru sammála um að það sem ég var að gera mætti verja fyrir lögum. Ég ákvað því að láta til skarar skríða og gefa bókina út sjálf, enda var ég ekki á því að láta klámiðnaðinn stoppa mig út af spurningum um birtingarrétt. Það kom svo á daginn að ég slapp, enginn hefur enn höfðað mál gegn mér.“ bók sama ár og út frá þessu spratt upp angi af hreyfingu. En af því þú spurðir um mik- ilvægustu áfangasigrana þá held ég að ég verði að fá að nefna tvennt. í fyrsta lagi átti ég hugmyndina að, og tók síðan þátt í að skipuleggja, alþjóðlegt réttarmálþing um glæpi gegn konum. A þessum tíma átti maður auðvitað aldrei að eigna sér heiðurinn af einu eða neinu, en í dag er það víst orðið í lagi. Ég er vonlaus skipuleggjandi, en ég átti mér draumsýn um það hvernig svona réttarmálþing gæti litið út. Það yrði fyrst og fremst byggt á persónulegum reynslusögum, en ég hef geysilega trú á gildi þeirra. Ég lærði rosa- hvernig ætti að bregðast við honum. Ein- hverjir hafa haldið því fram að þessi ráð- stefna marki upphafið af baráttuhreyfmg- um kvenna gegn ofbeldi, að minnsta kosti í Evrópu. Ég trúi því varla sjálf að ég hafi átt hugmyndina og staðið á bak við þetta, að sjálfsögðu ásamt og með fjölda annarra kvenna. Af þeim rannsóknarverkefnum sem ég hef unnið býst ég við að það sé rannsókn mín á tíðni sifjaspella sem hefur haft hvað mest áhrif. Rannsóknin var byggð á tíðni sifjaspella hjá handahófsúrtaki, þar sem allt æfiskeiðið var lagt undir. Niðurstöður mínar voru ótrúlegar, ein af hverjum þrem VERA • 21

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.