Vera - 01.04.2000, Page 34
d
15 ára baráttus*
Hlaðvarpirm, félags- og menningarmiðstöð
kvenna, er að verða 15 ára. Húsin tvö við
Vesturgötu 3 og 3b voru keypt af hluta-
félaginu Vesturgata 3 h/f sem konur
stofnuðu 9. júní 1985. Hlutverk félagsins er
að eiga og reka húsin og þar hefur margs
konar starfsemi tengd konum verið þessi ár.
Stígamót hafa verið í fremra húsinu frá því
þau voru stofnuð, 1990. í bakhúsinu var
handverksmarkaður og kaffihús þangað til
Kaffileikhúsið var stofnað 1994. Á efri
hæðinni voru skrifstofur Kvennaathvarfsins
lengi og þar var Kvennaráðgjöfin í mörg ár.
Þar eru nú ritstjórnarskrifstofur VERU,
skrifstofa rektors Listaháskólans og nudd-
stofa með aðstöðu til leikfimikennslu.
Það var mikið stórvirki að festa kaup á þessum 1000 fm húsum
í hjarta borgarirmar sem voru byggð 1885 og voru því 100 ára.
Þetta ár var Kvermaáratug Sameinuðu þjóðanna að Ijúka, 10 ár
frá kvennaverkfallinu fræga og vildu konur minnast þess með
veglegum hætti. Húsfriðunarhugsjónin réð einnig nokkru um
áhugann sem kviknaði en Torfusamtökin höfðu þá sýnt og
sannað mikilvægi þess að vernda húsin við Bernhöftstorfu sem
verið höfðu í niðurníðslu í fjölmörg ár. Þegar sú hugsjón fór
saman við löngun kvenna til að eignast félags- og menningar-
miðstöð var byggt á þeirri trú að konur gætu gert kraftaverk
ef þær legðust á eitt.
Hiutabréf á 1000 krónur voru boðin til kaups og konur
hvattar til að fjárfesta í eigin húsum. Sjö listakonur voru fengn-
ar til að hanna hlutabéf og var útgáfudagur bréfanna miðaður
við gjalddagana sem greiða átti kaupverðið. Ef tiltekinn fjöldi
af konum hefði keypt sjö bréf hver átti hugmyndin að ganga
34 • VERA