Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 37
Helga Thorberg og Helga Bachmann,
fyrsti stjórnarformaður Hlaðvarpans.
h^hh^yy^ Gá wám\ 9m
f' ■rm BjA ú
Eiga að vera lifandi kvennahús
Þegar húsin voru keypt þörfnuðust þau talsverðra við-
gerða; þakið var lélegt og rafmagnið þannig að bruna-
vörnum var áfátt. Viðgerðirnar hafa komið smátt og
smátt, fyrst var framhúsið klætt með timbri og í sum-
ar var lokið við að bárujárnsklæða bakhúsið. Þegar
Helga er spurð hvað henni finnist vera stærsta skrefið
í sögu Hlaðvarpans, segir hún:
„Þegar séð var fyrir endann á skuldahalanum og
tekjurnar nægðu fyrir rekstrarútgjöldum. Þá var
grunnurinn kominn og hægt að fara að huga að öðru.
Við fórum af stað í bjartsýni og hún fleytti okkur
vissulega áfram en það tók fleiri ár að kaupa húsin en
við gerðum ráð fyrir í upphafi. Það tókst hins vegar
ekki nógu vel að gera húsin að þeim lifandi kvenna-
húsum sem okkur dreymi um í upphafi, en það er
vonandi bara eftir. Konur á hverjum tíma verða að
ráða því hvað hér fer fram og starfsemin hlýtur að
endurspegla tíðarandann hverju sinni. Húsin eru til
og margar konur vita af þeim og að þær eiga hér
hlutabréf. Það þarf bara að hvetja þær til að koma, t.d.
með því að halda Hlaðvarpadaga og bjóða konur vel-
komnar heim — í Hlaðvarpann! Það hefur t.d. alltaf
verið illa mætt á aðalfundi en hluthafar eiga seturétt
og atkvæðisrétt á þeim. Ég veit ekki af hverju ekki
tókst að mynda þá samstöðu um Hlaðvarpann sem
hefði þurft og eflaust eru margar skýringar á því.
Sumum fannst húsin ljót, þetta væru timburhjallar
sem engin ástæða væri til að eignast. A þessum tíma
voru konur líka skiptar upp í marga hópa sem ekki
náðu saman. Ég held að tíðarandinn sé annar núna,
ekki eins mikil flokkun á milli kvenna og því er ég
bjartsýn á framtíðina fyrir hönd Hlaðvarpans. Það er
aldrei of seint að láta draum um lifandi félags- og
menningarmiðstöð kvenna verða að veruleika," segir
Helga Thorberg á sinn létta og hvetjandi hátt og við
vonum að það séu orð að sönnu.
EÞ
Núverandi stjórn Hlaðvarpans: f.v. Kristbjörg Kjeld, Kristín Hjálmtýsdóttir, Kristrún Heimisdóttir
og Sigrún Bjarnadóttir. Á myndina vantar Ástu Hrönn Maack stjórnarformann og Þórunni Sveinsdóttur.
37
VER A •