Vera


Vera - 01.04.2000, Page 50

Vera - 01.04.2000, Page 50
Þctta er spurning um ...... Dóra V Í ð h OTf SbTCy t Í T1 g U Styrmisdóttir, aðstoðarmaður forstjóra FBA Þrátt fyrir mikinn fjölda kvenna í fjármálaheiminum, ná fæstar þeirra efst í metorðastigann. Konur eru fjölmennar í einstaklingsþjónustu bankanna, en eru síður í störfum í fyrir- tækjaþjónustu eða verðbréfa- markaði. Þegar Fjárfestingabanki atvinnulífsins var stofnaður með Bjarna Armannsson í forstjóra- stólnum var bankinn kallaður Drengjabankinn, enda voru aðeins karlar í toppstöðum bankans. Þó eru þar nokkrar konur í stjórnunarstöðum og ein þeirra er Hulda Dóra Styrmis- dóttir, markaðsstjóri og aðstoðar- maður forstjóra. Hulda hefur mikla trú á möguleikum kvenna innan fjármálaheimsins og hún hélt nýlega erindi um árangurs- tengd laun á opnum fundi um jafnréttismál sem Samband ungra sjálfstæðismanna stóð fyrir undir yfirskriftinni „Fyrirvinna framtíðarinnar, frumkvæði kvenna í kjarabaráttu." Hulda hóf störf hjá FBA sem markaðsstjóri fljótlega eftir að bankinn hóf starfsemi árið 1998. Hún varð síðan aðstoðarmaður for- stjóra í maí 1999, jafnframt því að gegna starfi markaðsstjóra. „Eg er í verkefnum sem tengjast yfirstjórn, stefnumótun og kynningu," segir Hulda um starf sitt. „Ég tek þátt í framkvæmdastjórnarfundum og sinni ýmsum málum sem koma inn á borð Bjarna Armannssonar. Ég ber ábyrgð á kynningar- og markaðsmálum fyrir bank- ann. Þetta er mjög fjölbreytt starf og ég veit ekki alltaf hvað bíður mín þegar ég mæti í vinnuna á morgnana." Hulda er dóttir Styrmis Gunnarssonar, annars ritstjóra Morgunblaðsins, og Sig- rúnar Finnbogadóttur. Eflaust kannast margir við hana frá því hún gegndi starfi fréttamanns hjá Stöð 2. Hulda var þó ekki nýgræðingur í viðskiptaheiminum þegar hún hóf störf hjá FBA því hún starfaði um tveggja ára skeið hjá Verðbréfamarkaði Is- landsbanka eftir að hún lauk BA-prófi í hagfræði frá Brandeis University í Massachusetts í Bandaríkjunum. „Eftir veruna á Stöð 2 fór ég í MBA-nám í skóla sem heitir INSEAD í Frakklandi," segir hún. „Svo kom ég heim 1993 og fór að vinna ári síðar sem starfsmannastjóri Hótel Sögu. Árið 1996 varð ég markaðs- ráðgjafi hjá markaðsfyrirtækinu Hugtök og í millitíðinni eignaðist ég tvo syni. Ég nota alla þessa reynslu í starfmu hér hjá FBA, bæði það sem ég lærði í VIB, það sem ég lærði sem fréttamaður, sem starfsmanna- stjóri og sem markaðsráðgjafi. Það gerir starfið einmitt svo skemmtilegt." Fjölskylduvænn vinnustaður Stjórn FBA er eingöngu skipuð körlum, forstjóri bankans er karl og þrír yfirmenn meginsviða bankans eru sömuleiðis karlar. Sex stoðdeildir aðstoða starfsmenn svið- anna og eru fjórir karlar og tvær konur í forsvari fyrir þeim, en Hulda er önnur kvennanna. Auk þess er innri endurskoð- andi bankans kona. Hvernig stendur á því að svo fáar konur eru í stjórnunarstöðum hjá FBA? „Það eru fáar konur almennt í þessum hluta fjármálamarkaðarins. Það eru margar konur í einstaklingsviðskiptum, en færri í fyrirtækjaþjónustunni og í verðbréfavið- skiptum. Við fáum til dæmis miklu minna af umsóknum frá konum en körlum um laus störf. Imynd þessa geira er að það sé mikil keyrsla, mikil vinna og að fyrirtækin séu ekki fjölskylduvæn. Þetta er að ýmsu leyti misskilningur. Eg myndi til dæmis segja að starf fréttamanns væri miklu erfið- ara fyrir fjölskyldufólk, þar sem þar eru langar vaktir. Það sama á við um mörg önnur störf sem konur gegna.“ Hulda segir að vissulega geti vinnan verið mikil en á móti komi að vinnutíminn geti verið sveigjanlegur. „Það er eðli þekk- ingarfyrirtækis að maður getur verið að vinna nánast hvar og hvenær sem er. Til dæmis er hægt að hugsa um texta í frétta- tilkynningu eða lausn einhverra mála þeg- ar maður er að keyra heim úr vinnunni, setja í vélina eða lesa góða bók. Bestu hug- myndirnar verða ekki til við skrifborð. Venjuleg talning vinnutíma á því ekki alveg við og vinnustaðurinn sjálfur er ekki eini staðurinn til að vinna. Það er til dæmis al- veg hægt, þó mikið sé að gera, að fara heim, sinna börnunum og vinna síðan áfram heima með tölvutengingu. Auðvitað eru svo mismunandi störf innan bankans sem gera mismunandi kröfur hvað varðar vinnutíma og viðveru. Verðbréfaviðskipti hjá okkur loka til dæmis klukkan fjögur þegar markaðurinn lokar, en á meðan markaðurinn er opinn þarf maður að fylgj- ast mjög vel með því sem er að gerast á skjánum." Hvað fjölskylduvænleikann varðar þá segir hún yfirmenn bankans vera mjög skilningsríka varðandi fjölskylduábyrgð starfsmanna. „Það er ekkert tiltökumál að vera heima hjá veiku barni. Karlmennirnir gera það líka alveg jafn mikið og konurnar. Ég held að það skipti máli að hér er önnur kynslóð af stjórnendum. Þeir eru flestir undir fertugu og eiga sjálfir lítil börn sem þeir sinna, þannig að skilningurinn er meiri." Eiginleikar kvenna nýtast vel Fjárfestingabanki atvinnulífsins greiðir starfsmönnum sínum árangurstengd laun og fréttir af háum bónusgreiðslum til æðstu stjórnenda bankans komu meðal annars af stað umræðum á Alþingi nýlega. Hulda telur að árangurstengd laun geti gef- ið konum tækifæri til þess að minnka launamun kynjanna og um það fjallaði er- indi hennar á fundi SUS. „Þetta þjóðfélag sem við búum í er að breytast úr framleiðsluþjóðfélagi í þekk- ingarþjóðfélag. Það er mikill uppgangur í fyrirtækjum sem fást við hugbúnað, líf- tækni og fjármál. Eignir fyrirtækja í þess- um greinum er það sem er í kolli starfs- mannanna. Hver starfsmaður skiptir meira máli og það er erfiðara að skipta um starfs- fólk. Það sem skiptir máli í þessum fyrirtækj- um er árangur, ekki hversu marga tíma þú vinnur. Hugmyndirnar skipta máli og hvernig þú vinnur úr þeim. Samkeppnin er líka mjög mikil um hæft starfsfólk og þá verða fyrirtækin að gera vel við starfsfólk- 50 • VERA

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.