Vera - 01.04.2000, Qupperneq 52
En hvað er íbúðalánasjóður?
„Ibúðalánasjóður er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins. Samkvæmt
lögum er helsta hlutverk hans að stuðla að því með lánveitingum
að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum.
I þessu felst að almenningi eru veitt húsbréfalán til kaupa eða
byggingar á íbúðarhúsnæði. Almennt eru veitt lán sem nema 65-
70% afkaupverði eða byggingarkostnaði eignarinnar. Lánin eru til
25 eða 40 ára, verðtryggð með 5,1% vöxtum. Eignalitlir og tekju-
lágir geta sótt um viðbótarlán til Húsnæðisnefndar síns sveitarfé-
lags og fengið þannig lánað allt að 90% af kaupverði. Þá eru sveit-
arfélögum, félögum og félagasamtökum veitt lán til byggingar eða
kaupa á leiguhúsnæði. Einnig veitir íbúðalánasjóður lán til við-
bygginga og endurbóta og til ákveðinna sértækra verkefna sem til-
greind eru í húsnæðislögum."
Langflestir sækja
utn lán hjá
íbúdalánasjóði
- viðbótarlán auðvelda
íbúðakaup einstæðra foreldra
„Þegar um mitt árið 1998 var farið að bera á
uppsveiflu á fasteignamarkaði. Það ár fjölgaði
umsóknum um 29% frá fyrra ári. Aftur fjölgaði um-
sóknum um 27% á árinu 1999. Ekkert lát virðist
vera á þessari uppsveiflu og virðist stefna í svipaða
fjölgun á árinu 2000,“ segir Gunnhildur Gunnars-
dóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri íbúðalánasjóðs.
Hún segir að langflestir íbúðakaupendur sæki
um lán hjá Ibúðalánasjóði enda séu lán sjóðsins
þau hagstæðustu á markaðnum.
Hverjir sækja helst um hjá sjóðnum?
„Það má segja að viðskiptavinir sjóðsins séu þversnið samfélags-
ins. Nýjar lánveitingar eru þó algengastar til fólks sem er 30 ára og
yngra og ríflega helmingur viðbótarlána sem veitt voru á árinu
1999 runnu til þessa hóps sem er iðulega að kaupa sína fyrstu
íbúð. Tilkoma viðbótarlána hefur greinilega auðveldað einstæðum
foreldrum, sem iðulega hafa þrengri fjárráð en hjón og sambýlis-
fólk, að kaupa fasteign á almennum markaði."
A.A.
Aðstæður á fasteignamarkaðnum hafa breyst
segir Guðrún Árnadóttir, formaður Félags fasteignasala
Konur hafa ekki verið áberandi meðal fasteignasala
og mætti segja að þetta hafi löngum verið karla-
stétt. Það vakti því athygli okkar hjáYeru að
formaður Félags fasteignasala er kona að nafni
Guðrún Arnadóttir. Við náðum að klófesta hana
eitt augnablik milli samninga og annarra erinda
og fengum hana til að tjá sig um þá hörðu
samkeppni sem ríkir í greininni, álagið og
ábyrgðina en einnig um þá óvenjulegu stöðu sem
ríkt hefur á fasteignamarkaðnum undanfarið.
„Draumastarfið er ekki til. Maður verður
að gera starfið sitt að draumastarfi," segir
Guðrún þegar hún er spurð hvernig henni
líki fagið en hún rekur sitt eigið fyrirtæki,
Eignasöluna Húsakaup, ásamt eiginmanni
sínum. „Það er heilmikill erill í þessu
starfi og margt skemmtilegt en einnig
mikið álag. Þá fylgir störfum fasteignasala
mikil ábyrgð og samkeppni er með mesta
móti. Mjög miklar kröfur eru gerðar til
fasteignasala, ekki bara frá viðskiptavinun-
um heldur einnig frá löggjafanum. Ef
maður ætlar að vera í þessu þarf það að
vera af lífi og sál.“
52 • VERA