Vera


Vera - 01.04.2000, Page 54

Vera - 01.04.2000, Page 54
A N D R F A J Q N S D Q I T I R S K R I E A& fWi vrn^ díijari / írá Grænliöfðaeyjnm á Islandi Cesaria Evora heitir hún og er búin að vera heims- frœg söngkona í um hálfan áratug. Löngu fyrr varð hún vinsæl í heimalandi sínu, síðan barst frœgð hennar til Frakklands, þá Vortúgals og svo æ víðar um heim eftir að hún fór í sÍ7ia fyrstu hljómleika- heimsreisu árið i(/c/^- Ekki, svo að skilja að œvi Cesariu hafi verið dans á rósum. Hún er ein sjö systkina sem ólust upp föðurlaus og var ung farin að syngja á börum fjölskyldunni til framfærslu. Hún fæddist 27. ágúst 1941 á Grænhöfðaeyjum, sem þá var ný- lenda Portúgala, en 1975 fengu eyjarnar sjálfstæði. Portúgölsku nýlenduherrarnir hurfu á braut, menntað fólk hvarf úr landi í stór- um stíl og félags-, menningar- og efnahagslíf lagðist í rúst. Má segja að Grænhöfðaeyjar hafi gleymzt umheiminum þar til Sam- einuðu þjóðirnar hófu að ýta við samvizku meðlimanna. Stein- grímur okkar Hermannsson fór í heimsókn þarna suðureftir, en þess má geta að Grænhöfðaeyjar eru á svipaðri breiddargráðu og Vestfirðir, hans gamla kjördæmi, ...en við vesturströnd Afríku (Senegals og Máritíu). Upp úr því fóru Islendingar að kenna Grænhöfðamönnum að sækja veiðar á nútíma fiskiskipum. Eg verð að viðurkenna að ekki hef ég fylgst með gangi þjóðmála á Grænhöfðaeyjum, en mér dettur Steingrímur alltaf í hug í sam- bandi við mín einu tengsl við Grænhöfðaeyjar, sem er söngur Cesariu Evoru. Sjálf minnir hún stöðugt á fátækt landa sinni með því að syngja berfætt, sem útskýrir viðurnefni hennar La diva aux pieds nu, og var það jafnframt titill hennar fyrstu breiðskífu: Ber- fætta dívan. Eg man eftir annarri söngkonu sem söng berfætt, eða a.m.k. skólaus. Sandie Shaw heitir hún og söng sig inn í hjörtu manna á 7. áratugnum. Ekki man ég hvers vegna Sandie vildi ekki vera í skóm á sviðinu...annað hvort af því að hún þótti of hávaxin eða hún var þreytt í tánum vegna támjóu skónna og tízkubransans. Hún táraðist líka í dramatísku lögunum - Cesaria Evora getur hins vegar fengið fólk til að tárast með söngnum einum, líka það sem ekki skilur orð af því sem hún er að syngja. Rödd hennar er sér- stök blanda af blús og latneskum söngstíl með portúgölsku ívafi. Hún er frekar þykk og mjúk og angurvær, en of veraldarvön til að vera væmin. Hún kvað ekki hafa lent í lukkulegum samböndum með hinu kyninu nema hvað hún er bæði mamma og amma og hefur, að mér skilst á fremur ógreinilegum greinum á alnetinu, séð um sig og sína að mestu leyti ein. Hins vegar er allsstaðar tíundað að Cesaria sé viskýdrekkandi og reykjandi amma ... bæði utan sviðs og á því. Ein heimild segir þó að hún hafi hætt að drekka 1994 ... en hættum að hnýsast í einkamál og hugum að þeim plötum sem komið hafa út með Cesariu Evoru. Fyrsta platan varð þannig til að ungur Frakki með Grænhöfða- eyjablóð í æðum, José Da Silva, bauð Cesariu til Parísar í plötuupp- töku. Aður höfðu Samtök kvenna á Grænhöfðaeyjum ásamt söngvaranum Bana reynt að vekja áhuga portúgalskra upptöku- stjóra í Lissabon á Cesariu, en án árangurs. Það var 1988 sem Cesaria fór til Parísar, tók upp plötuna La diva aux pieds nus og söng í fyrsta skipti opinberlega í París og þar með talið utan Afr- íku, að ég held. Fyrsta platan og sú næsta, Distino di Belita sem kom út 1990, urðu vinsælar á Grænhöfðaeyjum, en það var með þriðju plötunni Mar Azul sem Cesaria sló í gegn í Frakklandi. Sú skífa kom út 1991. Það ár tróð hún oft upp í París og fékk m.a. þá umsögn að hún til- heyrði „aristókratíu" barsöngvara, en Frakkar vita þjóða bezt hvað þeir syngja í þeim efnum. I október 1992 kom út fjórða plata Cesariu, Miss Perfumado, og nú bættist við hól Frakkanna — Cesaria var ekki bara í barsöngvara- aristókratíunni, einnig var henni líkt við goð þeirra Edith Piaff og sjálfa Billie Holliday og uppselt á tvenna tónleika hennar, 11. og 54 • VERA

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.