Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 58
M A I U B.
n q
N /F R I N H
Anna Elísabet Ólafsdóttir
S æt i n
i
Þaö hefur lengi verið nokkur ráðgáta hvað valdi löngun fólks í sætindi.
Þörfin fyrir eitthvað sætt kemur gjarnan fram þegar fólk er þreytt, pirrað
eða finnur af einhverjum öðrum ástæðum fyrir vanlíðan. Þegar þessi
löngun kemur láta sumir sér nægja að fá sér einn sykurmola eða þá lítinn
bita af súkkulaði á meðan aðrir innbyrða oft vel yfir 100 g af sætindum.
Þótt þessi sætulöngun sé þekkt bæði meðal karla og kvenna þá er
löngunin gjarnan sterkari hjá konum og oftar en ekki sterkari hjá
of þungum konum en þeim sem eru í kjörþyngd. Þó það sé ekki
sjálfgefið að fólk sem borðar mikið af sælgæti sé of feitt þá eru
aukakílóin yfirleitt fljót að koma hjá fólki sem borðar nokkra tugi
gramma af sætindum daglega. Mikil sælgætisneysla eykur ekki
bara hættuna á ofþyngd. Næringarástand þeirra sem fá stóran
hluta orkuþarfar sinnar fullnægt með sætindum verður fljótt mjög
lélegt. Vítamín- og steinefnaskortur gerir vart við sig og líkamlegt
og andlegt ástand verður lélegt, sem gerir fólk illa í stakk búið til
að takast á við verkefni sín í vinnu og á heimili. Það er margt sem
getur haft áhrif á matarlyst fólks og í hvaða mat það langar helst.
Er þar helst að nefna vanann en einnig bragðskynjun, ýmis boð-
efni og erfðir.
Serotonin
Serotonin er boðefni í heila sem talið er að hafi
mikil áhrif á líðan fólks og langanir. Ef ser
otoninmagn lækkar veldur það vanlíðan en
ef það hækkar eykur það vellíðan. Margir
kvarta undan því að vera sykurfiklar og
segjast oft lenda í því að „detta í það“ og
borða þá mjög mikið magn af sætind-
um. Karlar finna frekar fyrir þessu þegar
þeir eru þreyttir og þá gjarnan seinni
hluta dags. Konur kvarta margar undan
þessu rétt fyrir blæðingar. A þeim tíma
verða margar konur pirraðar, þreyttar og
jafnvel þunglyndar og eykst þá löngun
þeirra í mat og þá ekki síst sætindi. Rann-
sókn sýndi að ef konur með fyrirtíðaspennu
fengu sætan drykk öðluðust þær betri líðan á
þessu tímabili og löngunin í sætindi minnkaði.
Ástæðurnar voru raktar til serotoninsaukningar.
Nú langar mig í epli
Við neyslu á kolvetnum eykst myndun insulíns sem veldur aukn-
ingu á amínósýrunni tryptofan, en hún er aðalbyggingarefni ser-
otonins og þannig hækkar kolvetnaneyslan serotoninmagnið. Við
aukið serotoninmagn vex vellíðan og löngun í sætindi minnkar,
a.m.k. um stundarsakir. En það getur varla verið að þetta eitt og sér
stjórni sætuþörf því það er óalgengt að fólk fái skyndilega löngun
í epli, appelsínur eða kartöflur en þó eru það kolvetnaríkar mat-
vörur og ættu því að vera upplagðar til að auka serotoninmagnið.
Hér kemur því fleira til en kolvetnin ein og sér. Fita hefur einnig
áhrif á löngunina því hún gefur gott bragð og ekki síst þegar
henni er blandað saman við sykur. Fita og sykur gefa gómsæta
blöndu sem flestum þykir ljúffeng í munni. I stað löngunar í epli
eða appelsínu langar fólk því frekar í sælgæti, eins og t.d. súkku-
laði eða ís.
í súkkulaði er um 33% af heildarþyngd fita og 57% sykur sem
saman gefa yfir 90% af orkunni sem í súkkulaðinu er. Það er ekki
spurning að vaninn hefur hér mikil áhrif. Fólk getur vanið sig inn
á ákveðnar bragðlínur, ef þannig mætd að orði komast. Þegar við
verðum þreytt og orkulídl stjórnast það af vananum hvað við fáum
okkur að borða. Þau sem hafa komist upp á lag með
sælgætið sækja áfram í þann farveg, á meðan
aðrir borða hollari fæðu.
Að hætta að borða sælgæti
Þegar fólk hættir að borða sætindi verð-
ur það gjarnan vart við tómleikadlfmn-
ingu, rétt eins og eitthvað vanti. Það
verður gjarnan órólegt og fmnst það
vera við það að springa. Gott er að
reyna að fá sér sæta, ferska ávexti þegar
löngunin gerir vart við sig. Þegar sætu-
þörfin verður sem sterkust geta ferskir
ávextir oft ekki hjálpað. Þá er gott að reyna
þurrkaða ávexti, t.d. rúsínur eða apríkósur. Hjá
sumum dugir það einnig illa og má þá reyna að
borða hnetur eða möndlur með þurrkuðu ávöxt-
unum. Þá erum við farin að fá meiri fitu sem dregur úr
tómleikatilfmningunni og gefur gott bragð í munni.
Orkubombur
Eins og áður hefur komið fram vex sætuþörfm gjarn-
an í lok vinnudags og því verður oft freistandi að
kaupa sér sætindi þá, t.d. á leið heim úr vinnu. Ef ég
(kona á besta aldri) borða eitt stórt Snikkers (100 g)
58 • VERA