Vera - 01.10.2000, Blaðsíða 10

Vera - 01.10.2000, Blaðsíða 10
Konan í skýjunum Marion Herrera er tuttugu og sjö ára gömul, frönsk kona sem dvalist hefur á íslandi frá árinu 1996. Hún hefur að- lagað sig íslensku samfélagi, náð góðum tökum á tungu- málinu og eignast stóran vinahóp hér á landi. Marion hefur leikið á hörpu frá barnsaldri en hér á íslandi hóf hún sig til skýjanna með öðrum og að eigin sögn auðveldari hætti. Ég fæddist f Nice og bjó þar í nítján ár ásamt fjölskyldu minni. Við vorum búsett í fjöllunum og stunduðum útivist af kappi um heigar. Við vorum mikið á skíðum, í gönguferðum og nutum fjallanna, snjósins og útsýnis yfir hafið. Síðan fluttist ég til Parísar og taldi fyrir- fram að þar myndi ég una mér vel en það kom í Ijós að ég var ekki mikið borgarþarn. í Nice var hins vegar mikil uppbygging á þessum tíma og nú eimir Iftið eftir f fjallaparadís þar sem ég var alin upp. Ég hafði því lítinn áhuga á að flytjast þangað aftur. Þegar foreldr- ar mínir komu úr fríi frá íslandi með mjög fallegar myndir af landinu, myndir af Reykjavík sem hafði fjöll í allar áttir, snjóinn og hafið, þá langaði mig að koma hingað. Ég hafði lokið háskólanámi og tónlist- arnámi og á sama tíma komst ég í samband við íslenska stelpu sem var á leiðinni til Frakklands að læra á hörpu. Við gerðum skipti á íbúð og hörpu og ég kom til íslands. Hörpuleikarinn hefur sig til skýjanna, í þyrlu Ég dvaldist í nokkrar vikur hjá foreldrum hennar og fann mér svo fbúð og vinnu. Ég byrjaði að leika á Naustinu en hætti þar eftir fyrsta árið og hóf að spila með brúðu- leikhúsi Hallveigar Thorlacius og er enn að spila með brúðuleikhúsinu en við höfum farið víða um landið með sýningar og til Grænlands. Svo hef ég verið að kenna fslenskum börnum hörpuleik. Ég hóf sjálf hörpunám þegar ég var sex ára. Þá hafði ég farið með móður minni á tónleika þar sem verkið Ceremony of Carrols eftir Britten var leikið á hörpu og sungið af barnakór og ákvað strax að ég yrði að læra á hörpuna. Flugnámið hóf ég svo hér á íslandi 1997, lauk einka- flugmannsprófi hér og í Frakklandi og hóf svo þyrluflugmannsnám. Þyrlan hefur það fram yfir flugvél- ina að hún flýgur hægar og mýkra. Þyrlu getur maður lent hvar sem er og flogið henni af miklu meira frelsi. Nú er ég í Flugskóla íslands að taka atvinnuflugmannspróf á þyrlu. Þyrluflug og hörpuleikur fer mjög vel saman. Allt sem maður lærir þarfnast æfinga og ánægjan liggur í því að ná árangri. Maður þarf að nota allan líkamann til verksins. Ég verð að taka á öllu sem ég á til að fljúga vel eða spila vel. Ég verð þó að segja að það er miklu auðveldara að fljúga þyrlu en spila á hörpu. Það tók mig ekki nema ár að læra að fljúga þyrlu en nítján ár að læra að spila á hörpu. Auk þess þarf að setja tilfinningu í hörpu- leikinn og það er alls ekki einfalt. Hins vegar ef þú gerir mistök f þyrlufiugi liggur lífið við en maður deyr ekki ef maður slær á rangan streng. Það er þó sama tilfinningin sem hvetur mig bæði til þyrluflugs og hörpuleiks, að ná stjórn á verk- inu, nota hugann og líkamann, senda rétt skilaþoð til handa og fóta með réttum áherslum, að ná stjórn á tækinu. Ég myndi vilja hafa bæði hörpuleik og þyrluflug að atvinnu. Ég get ekki hugsað mér að gera annaðhvort af áhuga- mennsku því maður fer ekki alla leið nema maður geti haft við- fangsefnið að atvinnu. Mér finnst ég hafa byrjað að spila fyrir alvöru á hörpuna þegar ég þurfti að spila fyrir lífinu, afkomu minni. Ég reyni þó að ráðgera ekki framtíðina því það hefur lítinn tilgang. Öll form breytast hvort eð er. Ég veit því ekki hvar ég verð stödd í framtíðinni, við sjáum þara til. Mynd: Laura Valenlíno
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.