Vera - 01.10.2000, Side 14

Vera - 01.10.2000, Side 14
Viðtal: Erna Kaaber Hildur Kjarnakonur í bókaútgáfu Nýtt og kvennavænt bókaforlag var stofnað um mitt ár af tveimur kjarnakonum sem létu ekki þar við sitja heldur gefa út tíu bækur nú fyrir jólin. Á listanum eru skáldsögur, viðtals- bók, barnabækur og handbækur og af tíu titlum eru sex íslenskir. Þær Hildur Hermóðsdóttir og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir sátu ekki við orðin tóm þegar þeim var Ijóst að þær áttu skoðanasystur í hvor annarri. Þær voru báðar þreyttar á þeim athyglisskorti sem þær segja konur líða á bókamarkaði og eftir áralanga reynslu af bókaútgáfu, Hildur stjórnaði barnabókaút- gáfu hjá Máli og menningu og Þóra var aðstoðamaður útgáfustjóra hjá sama fyrirtæki í sjö ár, ákváðu þær að taka málin í sínar hendur og snúa sér að eigin rekstri. í júní keyptu þær heimingshlut í bókaforlaginu Bjarti og settu á stofn hliðarbókaforlag við Bjart, Sölku. Hildur: Nafnið Salka er náttúrulega tilvísun í hina einu sönnu Sölku Völku sem var kona sem stendur uppi sem sigurvegari í karlaheimi. Þóra: í stórum bókaforlögum vinnur hver og einn á svo afmörkuðu sviði og mig langaði til að prófa margt fleira, allt ferlið. í minna fyrirtæki, eins og Salka er, þá verður maður að læra alit strax og það hefur gengið vonum framar. Margar þeirra bóka sem ná efst á metsölu- listann fyrir jólin fjalla um merka karlmenn íslandssögunnar og eru skrifaðar af karlmönnum. Konur hafa ekki verið eins áberandi á þessum listum, hvorki sem höfundar né viðfangs- efni. En Salka er tilkomin meðal annars til að auka hlut kvenna. Hildur: Við erum að reyna að bæta úr þessu með bókaflokknum; Mynd af konu, en það er bara fyrsta bókin í þessum flokki þar sem við ætlum að fjalla um lífshlaup merkra kvenna. Þóra: Við erum sannfærðar um að það er mikill áhugi úti í þjóðfélaginu líka. Hildur: Við eigum engar konur í sögunni sem hafa slegið eins um sig og t.d. Einar Ben, konur eru svo hógværar. Þóra: Konur eru allt of hógværar og það er ekki tekið tillit til þeirra eðlis í viðskiptalífinu. Hildur: Hvorki í viðskiptalífinu né annarsstaðar eins og dæmin sanna. Við ætlum að gera konur sýnilegri með öllum tiltækum ráðum Þóra: Hvetja þær til dáða. Hildur: Gefa út verkin þeirra, skrifa sögu merkra kvenna, endurútgefa klassískar bókmenntir kvenna sem hafa ekki fengið nægilega athygli. Þóra: Rannsóknir hafa sýnt að konur eru í meirihluta lesenda og kaupenda. Hildur: Konur eru stór lesendahópur og þær lesa í rauninni allt frá unga aldri. Við ætlum að leita að bókum þar sem konum eru gefnar sterkar fyrirmyndir. Þóra: Heimur kvenna er bara ekki sá sami og heimur karla. Þær segja að kvennafor- lögum hafi víða vegnað vel í öðrum löndum, t.d. er eitt í Kanada sem var stofnað af tveimur konum sem byrj- uðu smátt fyrir nokkrum árum en það er nú eitt stærsta forlagið í Kanada. Virago í Bretlandi gangi líka mjög vel en það hefur gefið út gagnlegar og fjölbreytilegar bækur sem hafa vakið mikla athygli. Þóra: Við sjáum að það er margt að gerast hjá konum, kvennaforlög spretta hratt upp út um allan heim og hér á landi má benda á átakið, Auður í krafti kvenna. Þar er fullt út úr dyrum og mikil eftirspurn. Þegar konur fá hvatninguna rjúka þær af stað. Ég gæti trúað því að á næstu árum muni eignahlutfall kvenna í fyrirtækjum aukast mjög mikið. Það er um 18% í dag sem er allt of lítið. Hildur: Það er eitthvað að breytast. Maður sér þetta líka á bókamarkaðnum, það er kvennabylgja í gangi. Þóra: Við höfum fengið gífurlega góðar viðtökur og sjáum ekki ástæðu til annars en að vera bjartsýnar. Vonandi verður þetta til þess að önnur bókaforlög auki sína bókaútgáfu fyrir konur. Auk glæsilegra bókatitla gefa þær stöllur einnig út dagatal fyrir árið 2001, skreytt íslenskum úrvals- karlmönnum sem allir tengjast menningu og listum á einn eða annan hátt og það komust færri að en vildu. Þóra: Hér hringdi síminn og menn voru að spyrja hvort það ætti að gera dagatal með íslenskum úrvals- karlmönnum án þeirra. Við erum enn að fá slfk símtöl. Myndirnar, sem teknar voru af Grétu S.Guðjónsdóttur, eru sérlega fallegar og til prýði á hverjum vegg. Dagatalið er gæluverkefni sem hófst með flissi yfir kaffibolla. Það er eitt af því skemmtilega hjá okkur, við fáum hugmyndir og getum framkvæmt þær. Þóra 14

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.