Vera - 01.10.2000, Side 33

Vera - 01.10.2000, Side 33
Ég er ákaflega þakklát foreldrum mfnum sem hjálpa okkur mjög mikið og eru alltaf til í að bjarga hlutunum. Án aðstoðar þeirra í gegnum árin hefði ég aldrei treyst mér til að axla þá ábyrgð sem ég annars hef gert. Og ég veit að strákunum mfnum líður vel hjá þeim, fá mjög góða athygli og mikla alúð, þeir eru sérstakir vinir pabba og miklir félagar hans. Vegna allrar þessarar miklu hjálpar hvarflar ekki að mér að lýsa því yfir að ég sé einhver ofurkona." Vill búa fólk undir það að vera leiðtogi Við snúum talinu að bók sem Ásdís Halla er að gefa út nú fyrir jólin, í hlutverki leiðtogans. í bókinni eru viðtöl við Davíð Oddsson forsætisráðherra, Hörð Sigurgestsson fyrrum forstjóra Eimskips, Ingibjörgu Sólrúnu Gfsladóttur borgarstjóra, Kára Stefánsson forstjóra íslenskrar erfðagreiningar og Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta fslands. Ásdís segist lengi hafa velt því fyrir sér hvað gerði fólk að leiðtogum og í bókinni leitast hún við að tengja saman kenningar þar að lútandi og ævisagnahefðina íslensku. „Þetta eru eins og fimm stuttar ævisögur þar sem þess- ir leiðtogar fara yfir feril sinn, lýsa barnæsku sinni og skólagöngu, hvenær þeir tókust á við verkefni og hvernig þeim fórst það úr hendi. Sfðan hvernig ævi- starfið þróaðist, afhverju þau gerðu þetta, á hvern hátt og hvernig þau ná árangri. Svo er ég með inngang og lokakafla um hvað aðrir geti lært á þessu. Megin mark- mið mitt með þessari bók er að vekja fólk til um- hugsunar um hlutverk leiðtogans og reyna að búa það undir þá erfiðleika sem fylgja þvf starfi. Sömuleiðis hvetja fólk til þess að iáta slag standa ef það vill það. Ef þú vilt láta eitthvað gott af þér leiða taktu bara slaginn en gerðu þér grein fyrir því að það er eitthvað annað sem fylgir, vertu bara búin að hugsa það fyrirfram." En skyldi Ásdís hafa séð einhvern mun á lífsviðhorf- um kvennanna f bókinni og karlanna? Var eitthvað þar sem hún gat fest hönd á? „Það er kannski ekki sann- gjarnt að taka tvær konur, bera þær saman við þrjá karla. Og draga einhverjar miklar ályktanir. Samt er athyglisvert, kannski frekar til umhugsunar, að bæði Vigdís og lngibjörg Sólrún rákust inn í sín hlutverk út af röð tilviljanna. Vigdís ætlaði sér ekki að verða forseti íslands og Ingibjörg Sólrún ætlaði sér ekki að verða borgarstjóri. Rauði þráðurinn í frásögn þeirra er að þeim, sem konum, var aldrei kennt að langa í svona embætti og það sem er athyglisvert er að það var í raun og veru utanaðkomandi þrýstingur sem leiddi til þess að þær gáfu kost á sér." Ásdís segir að hvorki Vigdís né lngibjörg hafi gefið kost á sér að eigin frumkvæði og hún spyr hvort þetta sé „kvenlegt". Við því er ekkert einhlítt svar en hún segir að ákvörðun um framboð hafi tekið mjög á þær báðar og þær áttað sig á þvf að þetta yrði ekki eintóm- ur dans á rósum. Ásdfs segir að þetta hafi staðið eftir í huga hennar þegar hún velti fyrir sér muninum á konum og körlum og jafnvel átt þátt í að hún hafði frumkvæði að þvf að sækjast eftir bæjarstjórastöðunni í Garðabæ. Ég spyr hana hvort vinnan við bókina hafi þá hjálpað henni að skilgreina sjálfa sig: Ásdís Halla Bragadóttir Fædd 6. júlí 1968. Foreldrar: Bragi Eyjólfsson og Sigríður Sívertsdóttir Hjelm. Á fimm systki- ni, fjögur á lífi. Bjó í Ólafsvík til nfu ára aldurs, fluttist þá til Svíþjóðar og Noregs. Bjó á Akranesi frá 1979. Stúdentspróf frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands 1988. BA próf í stjórn- málafræði við Háskóla íslands 1991 og MA próf í opinberri stjórnsýslu frá Harvard háskóla 2000. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1991- 1993, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálf- stæðisflokksins 1993-1995, aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra 1995-1999 og framkvæmdastjóri Nýsköpunar- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík frá apríl til október 2000. Hóf ung afskipti af stjórnmálum. Aðeins 15 ára var hún orðin virk innan Sjálfstæðisflokksins á Akranesi og tók |oátt í stúdentapólitíkinni á háskólaárunum. Árið 1994 fór hún að starfa að jafnréttismálum með hópi kvenna innan Sjálfstæðisflokksins, Sjálfstæðum konum. Fyrir hvatningu þeirra bauð hún sig fram sem formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna árið 1997 og varð fyrsta konan til að verða formaður í 70 ára sögu SUS. Gegndi formennsku til 1999. Gift Aðalsteini Jónassyni lögfræðingi, forstöðu- manni lögfræðisviðs íslandsbanka - FBA. Þau eiga tvo syni sem eru fæddir 1990 og 1999. „Já, hún gerði það. Þetta hjálpaði mér að skilgreina hvað mig sjálfa langar, hvaða sýn ég hef og hvernig ég vil fylgja því eftir. Og það hjálpaði mér líka að sjá hvernig karlarnir hafa stundum nálgast þetta. Ef þeir telja sig hafa eitthvað fram að færa til að ná árangri fyrir samfélagið þá láta þeir vita. Vissulega voru ein- hverjir búnir að nefna við mig að kannski ætti ég að sækja um og ég hugsaði mig svolítið um. Ein með sjálfri mér komst ég að þeirri niðurstöðu að kannski gæti ég gert gagn, þannig að ég tók af stað." Vill láta eott af sér leiða Ég spyr Asdfsi Höllu Bragadóttur hvort hún ætli lengra, hvort hana dreymi um þingmennsku, ráð- herrastól, bankastjórastól eða jafnvel sendiherra- stöðu. Og hún svarar: „Þetta hljómar kannski rosalega væmið, ósannfærandi og ofboðslega pólitískt svar, en markmið mitt er að láta gott af mér leiða. Ef ég tel mig einhvern tímann best geta gert það á þingi þá stefni ég þangað og ef ég tel ráðherrastól vera rétta vettvanginn þá stefni ég þangað. Ég hef ekki hugmynd um hvaða leið ég fer en embætti og störf eru í mínum huga bara tæki og tól, bara leiðir að einhverri sýn og markmiðum, þau eru aldrei markmið í sjálfu sér. Ég held ég geti gert ýmislegt til þess að gera íslenskt samfélag betra og á endanum tel ég mig kannski geta náð mestum árangri innan skóla eða einkafyrirtækis, það skiptir engu svo lengi sem sýnin er enn til staðar."

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.