Vera - 01.10.2000, Side 64

Vera - 01.10.2000, Side 64
KVIKMYNDIR Úlfhildur Dagsdóttir Það sem Kaninn gerir best gerir Daninn betur Það er ein af mínum sam- félagslegu skyldum að fara í bíó rneð fólki. Þarsem ég er yfir- lýstur bíófíkill þá þykir það sjálf- sagt, bæði hjá mér og öðrum, að ég sé stöðugt til taks að drífa mig í bíó. Yfirleitt dreg ég þó mörkin við rómantískar kómedíur, en slíkar myndir á ég með eindæmum erfitt með að þola. En sumir vinir og ættingjar eiga á mig meiri kröfur en aðrir og þannig atvikaðist það, að í Kaupmannahafnarheimsókn til móðursystur minnar í fyrra, var ég dregin á danska rómantíska kómedíu, Den Eneste Ene, sem nú er sýnd í Háskólabíói. Tilbúin að láta mér linnulaust leiðast (ég er enn með óbragð í munninum eftir hina gríðarvinsælu )erry Maguire, svo ekki sé talað um ómyndina As Good As It Gets) en skylduræknari en fjandinn (eins og allar góðar konur eiga að vera) sett- ist ég niður fyrir framan tjaldið og horfði agndofa uppá alveg dásam- lega skemmtilega mynd. Ég veit ekki hversvegna mér er svona illa við rómantískar kómedíur, þetta eru jú viðurkenndar kvennamyndir, bæði sú kvikmyndategund sem höfðar mest til kvenna og ein af fáum kvikmyndategundum sem bjóða upp á bitastæð hlutverk fyrir konur. Rómantísk kómedía er tegund grínmynda sem leggur áherslu á þær margvíslegu flækjur sem fylgt geta leitinni að ástinni, rómantíkinni og pöruninni. Húmor- inn er yfirleitt f orðum fremur en gjörðum, fyndin tilsvör eru ráðandi frekar en æsingur og „slapstick". Margir segja að þessi tegund mynda sé það sem Hollywood gerir best, og ég man að gagnrýnendur fögnuðu Jerry Maguire ákaft á ein- mitt þeim forsendum. En Den Eneste Ene sannar hið fornkveðna að það sem Kaninn gerir best, gerir Daninn betur! Allavega í þessu til- felli. Danir hafa verið að sækja í sig kvikmyndaveðrið af miklum móð undanfarið, bæði hafa dogma myndir Trier og félaga vakið athygli og haft áhrif, og svo hafa Danir sýnt góða takta í hrollvekjum, eins og í hinni stórgóðu Nattevagten. Og nú eru þeir sumsé að leggja undir sig rómantísku kómedíuna. Den Eneste Ene segir frá tveimur pörum, Niller (Niels Olsen) og Lizzie (Sos Egelind) og Sus (Sidste Babett Knudsen) og Sonny (Rafael Edholm). Sus og Sonny langar í barn, aðallega Sonny, þvf hann er ítalskur og barneign staðfesting á karlmennsku hans, Nilier (sem vinnur við að setja upp eldhúsinnréttingar) getur hinsveg- ar ekki eignast barn, svo hann og Lizzie ákveða að ættleiða litla stúlku frá Afríku. Niller og Sus hitt- ast fyrst þegar hún er að panta nýja eidhúsinnréttingu, og þeim líkar greinilega vel hvort við annað. Núnú, svo fara ýmsir atburðir að gerast, Sonny reynist ekki við eina fjölina felldur (sem ítala finnst honum sjálfsagt að eiga unga Ijóshærða og leggjalanga hjákonu) Ihöd furts Safte Urt Mtnlm t^«lind Bibetl Knudwn Stoen GrAM KsalunJ og Lizzie ferst mjög óvænt af slysförum sama dag og þau Niller fá stelpuna. Sus og Niller sóldíera on, ein og sitt í hvoru iagi, hún með bumbuna og möguleikann á fóst- ureyðingu og hann með sína ættleiddu dóttur. En svo er komið að því að ganga frá eldhúsinnrétt- ingunni... í hollýwúddu er þetta uppskrift að hevví væmni, sérstak- lega barna- og slysahlutinn, en leikstýran Susanne Brier og hand- ritshöfundurinn Kim Fupz Aakeson ljá þessu öllu hinn einstæða danska húmor. Olsen er fyrst og fremst þekktur sem grfnleikari og það sést vel án þess að gleðiglaum- ur taki nokkurn tíma yfir, og svo eru hinir klassísku vinir hjónanna, vinkona Sus og vinur Nillers sem bjóða reglulega uppá hákómísk tilsvör og halda gríninu uppi; allt samkvæmt formúlunni, en samt svo ákaflega mikið ólíkt. Sérstaklega fær ítalinn slæma útreið fyrir karlmennskustæla sína, meðan Niller verður aldrei hinn dæmigerði klisjaði mjúki maður, né hinn harði „verkamaður" sem getur ekki tjáð sig. Kvenhlutverkin eru sömuleiðis vel skrifuð, samkvæmt formúlunni, en án þess að láta hana íþyngja sér. Það er eiginlega það sem er málið: Den Eneste Ene er alveg samkvæmt rómantfsku kómedíu formúlunni, en hún lætur það aldrei trufla sig, og heldur bara sínu fína striki. 64

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.