Vera - 01.10.2000, Side 40

Vera - 01.10.2000, Side 40
Mynd: Elín Helena Evertsdóttir Vandamdl við meðferð sifjaspellaVúlóðskammarmdla í íslenska réttarkerfinu Úrdráttur úr BA ritgerð í mannfrœði vorið 2000, eftir Guðrúnu M. Guðmundsdóttur og Mari'u Hfálmtýsdóttur Hugmyndin að ritgerðinni kviknaði í nóvember 1999 eftir sjónvarpsþátt þar sem fulltrúar lagakerfis, femínista og félagsráðgjafa voru saman komin til að ræða nýlegt dómsmál í Hæstarétti. Þar var karl sýknaður af ákæru um að hafa beitt dóttur sína kynferðislegu ofbeldi í fjölda ára. Fram kom að aðeins um 7% slíkra mála, sem berast barnaverndarnefndum, endi með sakfellingu. Þáttastjórnandi tók einnig veg- farendur tali sem allir lýstu yfir óánægju með sýknun- ina. Út frá þessu ákváðum við að skoða það mikla mis- ræmi sem birtist á skoðunum almennings, femínista og félagsráðgjafa annars vegarog röksemdafærslu full- trúa lagakerfis hins vegar og skrifa um það ritgerð. Við vildum leitast við að finna ástæður þess að aðeins örfá slíkra mála enda með sakfellingu. Við ákváðum að skoða sifjaspel 1 út frá heildarhugmyndum mann- fræðinnar sem felur í sér að skoða umfjöllunarefnið ofan frá og frá ýmsum hliðum til þess að geta svo greint það innan laga- og réttarkerfisins. Lagasetníng og meðferð sifjaspella og blóðskammarmála Merking og hugmyndir að baki hugtaksins sifjaspell hafa breyst töluvert frá fyrri tfð og því notuðum við mismunandi hugtök til að aðskilja hugmyndirnar um fyrirbærið í fortíð og nútíð. Eldri hugmyndir skilgreind- um við blóðskömm, sem er „samræði fólks sem vegna tengsla sín á milli má alls ekki sænga saman samkvæmt lögum" og um nútíma hugmyndir á sifja- spellum notuðum við „allt kynferðislegt atferli milli einstaklinga sem tengdir eru tengslum trausts og þar sem annar aðilinn vill ekki siíkt atferli en er undirgefinn og háður ofbeldismanni á einhvern hátt." Við skoðuðum sögulega þróun viðkomandi hegningar- laga, allt frá Móselögum til núgildandi laga. Með setn- ingu Stóradóms 1564 var blóðskömm gerð að dauðasök og töldust báðir aðilar sekir. Samkvæmt 40

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.