Vera - 01.10.2000, Qupperneq 45

Vera - 01.10.2000, Qupperneq 45
Anna Soffía Hauksdóttir KONUR TIL FORYSTU er 42 ára, ég hef verið prófessor við Verkfræðideild Háskóla íslands í 12 ár og er móðir fjögurra ára stúlku og sjö ára drengs. Ég átti þess kost að vera í námi sem mér fannst rosalega skemmtilegt og síðan í starfi sem mér finnst að hljóti að vera með allra bestu störfum. Ég hef fengið mörg tækifæri í námi og starfi, sem hafa verið mér mikils virði og byggt mig upp. Það hefur ennfremur gefið mér mikið, að vera í hefðbundnu karlastarfi, vegna þess að vonandi auðveldar það konum að hasla sér völl á þessu sviði. Hefði ég viljað gera eitthvað annað? Nei, þegar upp er staðið þá er ég afskaplega ánægð þar sem ég er. Hefur það verið erfitt að vera stundum eina stelpan? Ekki sérstaklega, en þó hafa auðvitað komið erfiðleikakaflar. Ég hef venjulega valið þá leið að loka að hluta til eyrum og augum og halda mfnu striki. Einbeita mér að sókninni en ekki vörninni. En er það æskilegt að hafa kynja- skiptingu jafna í öllum starfs- greinum? Er ekki bara allt í lagi að hafa þetta svolítið skakkt og f sumum tilfellum rammskakkt? Nei. Af þeirri einföldu ástæðu að starfs- svið sem þurfa á einstaklingum að m halda með ákveðna hæfi- leika, hafa ekki efni á að missa af þeim. Og einstakl- ingar sem vilja leggja sitt af mörkum og eru til þess hæfir, eiga að fá að gera það. Og af því að jöfn kynja- skipting alls staðar stuðlar að betri skilningi á milli kynjanna. Jafnrétt uppeldi er að mínu Verkfræði - karlar í meirihluta 79% - 21% Umhveríis- og bygg.verkfr.skor: 62% - 38% Véla- og iðnaðarverkfræði: 69% - 31% Tölvunarfræðiskor: 82%-18% Rafmagns- og tölvuverkfr.skor: 88% -12% mati ein helsta forsendan. Þá á ég við ævilangt upp- eldi, og uppalendurnir eru m.a.: foreldrar, fjölskylda, vinir, skólar, vinnustaðir, þjóðfélagið. Vinnustaðir þurfa að vera jafnréttir upp úr og niður úr, og þar eru jafn- rétt heimili, einn mikilvægasti hornsteinninn. Eins og fram hefur komið er kynjaskipting við Háskóla íslands að verða mjög skökk, konum í vil, en þær eru nú um 61% nemenda, á móti 39% karla. Þær eru jafnframt í meirihluta í flestum deildum háskólans, en verkfræðin virðist ætla að verða síðasta vígið til að falla á háskólastiginu. Hægt og rólega er þó kynjahlutfallið að jafn- ast í verkfræðinni, karlar eru um 79% og konur 21% nemenda. Lestina rekur Rafmagns- og tölvu- verkfræðiskor. Það tekur mig mjög sárt, því ég hef verið prófessor við þessa skor í 12 ár og er reyndar eini kvenprófessor Verkfræðideildar. Vera mín hefur greinilega ekki haft hvetjandi áhrif til þess að jafna kynjaskiptingu. Hins vegar verður að li'ta á björtu hliðarnar. Ef við lítum einungis á fyrsta árið við Rafmagns-og tölvuverkfræðiskor, þá er hlutfall kvenna þar komið í 18%. Og það er von mín og trú að þessi þróun haldi áfram í rétta átt. Oft á tíðum mætir konum í karla- störfum og körlum í kvennastörfum mikil hvatning. Það er hvatning í því að feta ótroðnar slóðir, að vera öðruvísi fyrirgóðan málstað. Það er hvatning í því að finna hlýju þeirra, stundum bráðókunnugs fólks, sem hefur trú á því að þú sért á réttri þraut. Það verður hins vegar ekki fram hjá því horft að ýmsar hindranir mæta konum í karlastörfum og körlum í kvennastörfum. Innri hindranir felast í eigin hugsana- gangi. Ég þarf oft að minna sjálfa mig á jafnrétta hugsun, umhverfi og uppeldi lita stundum skoðanir manns, jafnvel þó maður vilji það ekki. Ytri hindranir eru líka ýmsar. Stundum eru þær mjög sýnilegar og áþreifanlegar og geta valdið miklum sársauka. Oft eru þær manni hins vegar huidar, þ.e. eitt- hvað er í gangi á bak við tjöldin. Kannski er best að vita ekki hversu sterkur þessi þáttur er, stinga bara höfðinu í sandinn. Þegar komið er að vegg sem þarf að ryðja úr vegi, er stundum eina leiðin að klifra yfir hann ef þú ræður ekki við að brjóta hann niður. Vonandi koma fleiri á eftir sem geta lagt hönd á plóginn og „ef ég fer á undan þér yfir í sælustraff- ið, þá mun ég taka á móti þér..." Öflug kvennabarátta er gríðarlega mikilvæg. Mörg vopn, margar víg- stöðvar til að vinna baráttuna. Og samstöðu. Byggjum hver aðra upp. Að lokum þurfum við leiðtoga, af- burðakonur í karlastörfum, afburða- menn í kvennastörfum, meðalkonur í karlastörfum, meðalkarla í kvenna- störfum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.