Vera - 01.10.2000, Blaðsíða 47

Vera - 01.10.2000, Blaðsíða 47
þeir mismunandi hlutar vanda- málsins tengjast hver öðrum og prófar sig áfram með þvf að skissa upp hvernig mismunandi lausnir gætu litið út. Hún þarf að ákveða og hanna hvernig endanleg lausn lítur út á myndrænan hátt áður en hafist er handa við að smíða lausnina á sama hátt og hver annar hönnuður. Hluti af starfinu er að nýta sér reynslu annarra, leita ráðgjafar hjá þeim sem hafa sérhæfða reynslu og þekkingu og veita ráðgjöf sjálf. Tölvunarfræðingar eru oft hluti af vinnuhópi. Þeir þurfa að gera hönnunina skiljanlega fyrir alla þá sem að málinu koma, þannig að margir geti komið að sama verkinu á samræmdan og auðveldan hátt. Hún gætir þess að útlit forritsins sé í samræmi við þær upplýsingar sem það notar og hugmyndir annarra um þær. lafnframt því hannar hún útlit, oft í samráði við teiknara, þannig að forritið verði auðvelt, þægilegt og áhugavert í notkun. Hönnunin er að mínu mati skemmtilegasti hluti starfsins en jafnframt sá sem felur í sér mesta áskorun. Þessi hluti tengir heim raunverulegra vandamála við heim tölvunnar. Konur veröa aö vera með En hvað á raunverulegi tölvunar- fræðingurinn sameiginlegt með ímynd tölvunarfræðingsins sem er lokaður inni þak við tölvuskjá allan daginn? Vissulega eru þeir til sem starfa á þann hátt, en fagið er í þróun og áherslurnar að þreytast. Hin þrautseiga ímynd af tölvunar- fræðingnum hefur samt lítið breyst og fælir enn eflaust hæft fólk frá því að takast á við fræðigreinina. Að mínu mati væri það faginu til góðs að losna við þessa gamalgrónu ímynd sem er gjarnan tengd við ákveðna karlmannstýpu. Til þess eru konur mikilvægar. Tölvurnar eru stöðugt stærri hluti af lífi okkar og við getum nýtt okkur þær til æ fleiri verka. Heimur tölvunnar er fjær því sem hann upphaflega snérist að miklu leyti um, að leysa flókin tæknileg og stærðfræðileg vandamál og færist upp á æ huglægara plan; við notum tölvur til þess að teikna og skrifa, lesa, leika okkur og leita okkur upplýsinga. Notendur tölvanna eru því í ríkari mæli en áður venjulegt fólk, bæði konur og karlar, af öllum stærðum og gerðum. lafnframt því krefst fagið einstaklinga með fjöl- breytilega hæfni, sem eru víðsýnir og skapandi og geta hugsað óhlut- bundið. Fagið og orðræðan tengd því ber enn of sterkan keim af því að mestmegnis tæknisinnaðir karl- menn koma að þróun þess. Mikilvægt er að konur komi inn í þá hröðu og spennandi þróun sem einkennir tölvunarfræðina núna. Með því aukast líkurnar á því að tölvurnar sjálfar geti höfðað til stærri og breiðari hóps, og vakið áhuga fleiri kvenna. Annars er hætta á að konur útilokist enn frekar frá þessum mikilvæga vettvangi. Myndir: Valdís
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.