Vera - 01.10.2000, Page 62

Vera - 01.10.2000, Page 62
Umsjón: Bára Magnúsdóttir Frásögn um margboðað jafnrétti í blaði Kvenréttindafélags íslands, 19. júní, sem gefið var út 1953, var þess farið á leit við nokkra „málsmetandi" karl- menn að þeir svöruðu spurningunni Hvernig myndi ég hafa fiagað lífi mínu, ef ég hefði verið kona? Þessu svöruðu sex karlmenn af þeim tuttugu sem spurðir voru, hinir gáfust upp, að sögn. Ástæður þess voru m.a. annars þær að þeir gætu ekki sett sig í spor kvenna. Árið eftir voru nokkrar konur spurðar sömu spurningar, þ.e. hvað hefðu þær gert ef þær hefðu verið karlmenn. Karlmennirnir sem svöruðu voru Einar Magnússon menntaskólakennari, Einar Olgeirsson alþingismaður, Helgi Hannesson bæjarstjóri, |ón Magnússon frétta- stjóri, Páll ísólfsson organleikari og Sigurbjörn Einarsson prófessor og síðar biskup. Spyrjandi tekur til þess hve miklum heilabrotum og þungum vanda þetta leggur á allstæltar herðar þeirra sem spurðir voru og dregur af því þá ályktun.að spurningin sé vel þess virði að sem flestir karlmenn geri sér grein fyrir henni og þá ekki hvað sízt stjórnmálamenn og þeir er sinna uppeld- ismálum en til slíkra manna var einkum f fyrstu leitað.,, Tveir svarenda svara því til að þeir hefðu gift sig og þar af annar án þess þó að hverfa frá þeim störfum sem hann hefði valið sér. Tveir svarenda taka fram að þeir geri sér grein fyrir að þá hefðu möguleikar þeirra í lífinu verið minni en eila. Einar Olgeirsson orðaði það þannig: „En ég efast stórlega um, - eða er réttara sagt næstum viss um, að þjóðfélagið hefði ekki gefið mér tækifæri til þess að vinna að þeim |áhugamá!unum|, ef ég hefði verið kona, sem það hefur veitt mér sem karimanni. Svo ríkt er misrétti kynjanna enn í þjóðfélaginu." Konurnar sem spurðar voru voru þær Aðalbjörg Sigurðardóttir, Efemia Waage, Guðlaug Narfadóttir og lóhanna Friðriksdóttir. „Ef til vill er það táknrænt fyrir aðstöðu konunnar í þjóðfélaginu eins og hún var, er þessar konur voru ungar, að yfirleitt kemur það fram að þær hefðu frekar kosið að vera karlmenn." segir í blaðinu. Aðalbjörg Sigurðardóttir segir: „Þessari spurningu er að vissu leyti fljótsvarað, því svo oft hugsaði ég um það, þegar ég var barn, hvað ég hefði gert, ef ég væri drengur, en ekki stelpa. Það var sem sé mín heitasta ósk að vera strákur. Fyrst og fremst myndi ég þá geta hlaupið, stokkið og flogist á, án þess að það klingdi alltaf í eyrunum á mér, að þetta og þetta væri ekki kvenlegt. Það var svo miklu frjálslegra á allan hátt að vera strákur, og mér sýndist að það myndi haldast svo lífið á enda." Aðeins ein kvennana tekur fram að hún hefði kvænst, hefði hún verið karlmaður, hinar annað hvort minnast ekki á slíkt eða eins og Aðalheiður segir: „Aldrei datt mér í hug að stofna til hjúskapar og reisa bú með einhverri stúlkunni." Það að lifa sem karlmaður virðist því vera frelsi frá því að þurfa að ganga í hjóna- band. Svör allra kvennana eru mjög fróðleg en hér verður aðeins birt eitt þeirra í heild sinni. 62

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.