Vera - 01.10.2000, Page 63

Vera - 01.10.2000, Page 63
MAL BEGGJA KYNJA Ef ég hefði verið karlmaður... Mér þykii Iíklegast að ég hefði orðið sjómaður, eins og faðir minn og bræður. Pabbi var í föðurætt kominn af útvegsbændum og farmönnum langt aftur í ætt. Sjómennskuhneigðin er því ættlæg. Og mán ég það sem barn, að engir menn voru í mínum augum eins miklir menn og sjómenn. Og cnnþá hlýjar orðið sjómaður mér um hjartarætur. Eitt af t'yrstu von- brigðum mínum, sem mig sveiö sárt undan, var að ég gat ekki orðið sjómaöur, vegna þess að ég var telpa. Ég hafði lekið eftir því, |)egar drengir, bæði bræður mínir og aðrir voru farnir að stálpast, og láta sig dreyma um að komast á sjóinn, fóru þeir að halla húfunni í annan vangann, stigu ölduna, og spýta um tönn. Mér fannst þetta vera spor í sjómennsku áttina, og sá sem gæti gert þetta nógu vel, hlyti að verða góður sjómaður. Það styrkti lílca þessa trú mína, að gamall skipstjóri sem ég þekkti og hafði mætur á, hagaði sér svona. En pabbi var öðruvísi. Þó ég heyrði sagt, að hann væri góður sjómaður, fannsl mér jaað skorta hjá honum, að hann hallaði ekki húíunni, spýtti ekki um tönn og hafði ekki sjó- mannsgöngulag. Þetta þótti mér |)á slæmt en pabbi var samt beztur allra. Einu sinni tók ég mig lil, og setti upp húfu af bróður mínum, hallaði henni íannan vangann, steig ölduna í gríð og erg og spýtti eins og ég gat. Nei, mér tókst bara furðu vel, ég hlaut að verða ágætur sjó- maður. Mamma sá til mín og varð ekki um sel, hefur víst ekki þótt (oetta kvenlegt. Hún tók mig að hnjám sér og benti mér á, að ég væri telpa, en ekki drengur, og jress vegna ætti ég að læra að sauma, matreiða og hugsa um heimili. En þetta mætti ég ekki láta mér detla í hug að yerða sjómaður. Af hverju er ég ekki strákur? spurði ég. Þessu svaraði mamma ekki. F.kki þykir mér ólíklegt að hneigðin til að fást við ræktun eða komast í snertingu við moldina og gróðurinn hefði einhvern tíma gert vart við sig. Þegar pabbi kom heim af sjónum, var hans íyrsta verk eftir að hann heilsaði okkur, að ganga aö glugganum og skoða blómin. En mamma átti faljég blóm. Aí hverju er hann pabbi eins í augunum, þegar hann er að skoða blómin, eins og þegar hann er að heilsa okkur? spurði ég mömmu einhverju sinni. Honum þykir vænt um þau eins og okkur, svaraöi mamma. Þessu svari velti ég lengi fyrir mér. Ég veit, að ég hefði verið eins. Það hefði verið mér nauðsyn að hafa samband við mold og gróður. En samt var sjómennskan svo ofarlega í mér, að ég er sannfærð um, að það hefði orðið ævistarf mitt, ef ég hefði verið karlmaður. Stundum á mínum yngri árum kom jaaö yfir mig að íinnast það hafa verið lítilmennska mfn, að fara ekki mínu fram. Gerast sjó- maður, þó aö ég væri kvenmaöur. En stolt mitt er, að f æðum mér rennui fslenzkt sjómannablóð." Cuðlaug Narfadöttir 1953 Málfar mótar Mái beggja kynja fjallar um konur og karla og skfrskotar til beggja. Þess vegna er talað um hóp kvenna og karla með orðinu þau. Þá er ekki sagt um slíkan hóp: Viðstaddir risu úrsætum, heldur viðstödd risu úr sætum. Sumt f máli beggja kynja er áiitamál sem við verðum að taka afstöðu til. Ég tel að um hóp kvenna og karla skyldum við nota orðið fólk en ekki menn. Við segjum þá og skrifum til dæmis: Fólki finnst... en ekki: Mönnum finnst.... Þegar vísað er til okkar allra, bæði kvenna og karla, er nú tíðast sagt: Menn segja.... eða: Menn verða að skilja.... Dæmi úr blaðaviðtali: „Hún segir að menn séu einnig farnir að gera sér grein fyrir mikilvægi þess...." Annað dæmi úr sama blaði þar sem er notað mál beggja kynja: „Fólk er mjög undrandi á...." Það er líka hugsanlegt að nota orðið manneskjur um konur og karla. Við þurfum ekki að nota orðið menn um konur og menn þótt hefðir séu fyrir því í máli okkar. Við getum tekið upp aðra málnotkun og talað um menn sem karla. Mál beggja kynja er mál sem innifelur og andstæðan er mál sem útilokar. Þegar orðið „menn" eða „þeir" eru notuð um konur og karla eru konur útilokaðar. Annað dæmi um álitamál: Borgarstjóri tók til máls, hún sagði.... Álit mitt er að þetta sé rétt mál sem við skuium nota. Mál beggja kynja er enn lítið notað í íslensku. Karlkynsmálfar er yfirgnæfandi en við tökum lítið eftir þvf af þvf að við erum vön því. En málfar mótar. Mál beggja kynja hefur djúp áhrif á menninguna. Þess vegna þurfum við að leggja okkur fram um að taka eftir málfarinu sem er notað í ræðu og riti og æfa okkur í að nota mál beggja kynja. Guðlaug Narfadóttir (1897-1983) hafði mikinn áhuga á félagsmálum og var tals- maður jafnréttis alla tíð. Hún var meðlimur í Góðtemplarahreyfingunni frá barnsaldri er hún gekk í stúku. Hún var starfsmaður Afengisvarnarráðs um árabil auk starfa fyrir barnaverndarnefnd og Hjálparnefnd stúlkna, sem skipuð var af hinu opinbera og starfaði á sjöunda áratugnum. Hún skrifaði auk þess í mörg tímarit og flutti þætti Um daginn og veginn í útvarpinu. Hún fékk hina íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í þágu bindindismála og við útför hennar stóðu templarar heiðursvörð. Auður Eir Vilhjálmsdóttir

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.