Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Side 10
10
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
fram á þeim nauðsynlegar rannsóknir s.s. blóðþrýstingsmælingar,
mónitorun, sónarskoðun o.s. ffv. og ef þær eru ekki þeim mun veikari
eru þær meðhöndlaðar á dagdeild. Þetta kerfi hefur stórum dregið úr
innlögnum á meðgöngudeildir enda sýndust þær yfirleitt hálftómar
auk þess sem konurnar kunna því feiki vel að komast heim á kvöldin.
í Dundee voru blandaðar deildir, þ.e. með sængurkonum og með-
göngudeildarsjúklingum. Þetta þykir gefast vel og konumar koma þá
aftur á deildina ,,sína“ eftir fæðingu.
Foreldrafræðsla virðist á flestum stöðum stærri í sniðum en hér
tíðkast á Landspítalanum enda nóg pláss og nægur starfskraftur.
Reyndar sögðust þær á R.M.H. vera farnar að færa þetta meira yfir
í einstaklingskennslu um leið og konumar koma í skoðun og telja sig
þannig betur geta uppfyllt þarfir hverrar og einnar. Þó em þær áfram
með hópkennslu. Á Q.M. er heil deild sem sér um þessa hlið með 2
ljósmæðrum í fullu starfi, 2 í hálfu starfi og einhverjum fleimm í
hlutastarfi auk læknis ef á þarf að halda. Það em námskeið fyrir alla
og sérstök námskeið fyrir einstæðar og mjög ungar mæður. Konunum
er fylgt eftir frá 28. viku og svo lengi sem þurfa þykir eftir fæðingu
sérstaklega ef eitthvað er að baminu. Einhvern tíma snemma á með-
göngunni er fólki boðið í kvöldmat,,let’stalk about pregnancy“ þar
sem fólk getur viðrað áhyggjur sínar, skoðanir o.fl.
Deildin hefur símaþjónustu frá 8.00-16.00 og er sú þjónusta mikið
notuð.
í Dundee em auglýst námskeið með fyrirfram ákveðnu prógrammi
sem fólki er í sjálfsvald sett að notfæra sér.
Á Q.M. vakti athygli okkar svokölluð ,,pre-pregnancy counsell-
ing“ ráðleggingar og aðstoð við fólk sem hefur í hyggju að geta bam.
Það var ein bráðhress sister Byrne sem fræddi okkur um þessa starf-
semi sem hún hefur nú starfað við í nokkur ár ásamt einum lækni. Þau
bjóða fram hjálp og ráðleggingar til fólks sem hefur lent í erfiðleikum
á fyrri meðgöngum, misst fóstur, fætt andvana eða bæklað bam, eiga
bam með meðfædda/arfgenga sjúkdóma eða er sjálft með meðfædda
galla eða sjúkdóma auk fræðslu til sykursýkissjúklinga. Þau fá til-
vísanir frá öllu landinu og hafa a.m.k. klukkustundar viðtal við hvert
par eða eftir þörfum. Sr. Byme vinnur einnig með konur og unglings-
stúlkur sem eiga við eitthvert áðumefndra vandamál að stríða, en vilja
ekkert með stofnanir hafa. Auk þessa fer hún í framhaldsskólana og
ræðir um getnaðarvamir (kemur þar inn á starfsemi „family plann-