Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Page 40
40
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Mars 1986:
Ingibjörg Eiríksdóttir, ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur
Kristrún Kjartansdóttir, ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur
FLEIRBURAR
Verkefni í fæðinga- og Ijósmóðurfræði
Ritgerð unnin í L.M.S.Í. — Fyrsti hluti
INNGANGUR
Þessi ritgerð er unnin á fyrra námsári í Ljósmæðraskóla íslands.
Þetta er verkefni í fæðinga- og ljósmóðurfræði og fjallar um fleirbura.
í upphafi tölum við um mismunandi fjölda fleirbura en síðar segjum
við frá þróun tvíbura t.d. skiptingu eggfrumu o.fl.. Við viljum taka
það fram að í verkefninu tökum við mest fyrir tvíbura en það á í flest-
um tilfellum við um fleirbura líka. Við nefnum frjóvgun í tilrauna-
glasi, tökum fyrir tíðni fjölbura á íslandi og í U.S.A. Við segjum frá
mögulegum fjölda eggja í fjölburameðgöngu og fylgjumyndun og vöxt
tvíburafóstra.
Næsti kafli er um meðgöngu fleirburamæðra, þar segjum við frá
greiningu fleirbura og frá viðbrögðum foreldra við fleiri en tveimur
væntanlegum bömum. Við leggjum einnig áherslu á næringu fyrir
móður á meðgöngu og mikilvægi þess að hún styrki líkama sinn og
að hún veiti sér nauðsynlega hvíld. Eitt mikilvægasta merki þess að
fóstri eða fóstrum líði vel em fósturhreyfmgamar og segjum við frá
þeim líka.
Kafli m er um áhættur fyrir móður og böm og nefnum við helstu
þætti þar.
í IV kafla er sagt frá fæðingunni þar á meðal tökum við kvíða for-
eldra fyrir væntanlegri fæðingu og leiðir til úrbóta, við segjum frá
fylgikvillum sem geta komið upp við fleirburafæðingu og segjum frá
eðlilegri fæðingu tvíbura og nefnum meðgöngu — lengd og fæðingar-
þyngd tvíbura.
Kafli V er um sængurleguna og þar tökum við fyrir næringu bam-
anna, skipulag við uppeldi fleirbura, viðhorf mæðranna og þætti sem
huga þarf að áður en kona fer heim af fæðingardeildinni. Að lokum