Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Side 40
AF VETTVANGI FÉLAGSMÁLA
Stjórnarfundur NJF
Hinn árlegi stjórnarfundur NJF var hald-
inn 2.-3. maí 2007, í boði fínnska Ijós-
mæðrafélagsins i Turku að þessu sinni,
þar sem Norðurlandaráðstefna NJF var
haldin. Samkvæmt lögum samtakanna
er ætíð haldinn stjórnarfundur í sam-
bandi við ráðstefnuna og er einungis
hægt að kjósa nýjan formann eða gera
lagabreytingar í sambandi við þær.
Fundinn sóttu að þessu sinni; Asta
von Frenckell forseti samtakanna frá
Finnlandi ásamt Siw Nykánen, og
Terhi Tasanen nýkosnum formanni
finnska ljósmæðrafélagsins. Frá hinum
Norðurlöndunum voru; Lillian Bondo
og Kit Dynnes Hansen frá Danmörku,
Eyðfríð Lisberg Jacobsen og Anna
Christiansen frá Færeyjum, Guðlaug
Einarsdóttir og Hildur Kristjánsdóttir frá
íslandi, Nina Schmidt og Brit Roland frá
Noregi og þær Anna Nordfjall og Karin
Svárdby frá Svíþjóð. Ritari fundarins
var kosin Siw Nykánen frá Finnlandi.
Formlegur fundur hófst stundvíslega
klukkan 13.00 á þriðjudegi með léttum
hádegisverði. Gengið var til dagskrár
fundar sem er nokkuð hefðbundin, farið
yfir fundargerð síðasta fundar, farið yfir
hverjir væru stjórnarmeðlimir og nýjar
Ijósmæður sérstaklega boðnar velkomn-
ar. Asta von Frenckell forseti sam-
takanna stjórnaði fundinum. Póstlisti
stjórnarinnar var uppfærður. Fyrsta
mál á dagskrá var skýrsla forsetans og
var tekið upp þar hvort ætti að endur-
vekja upplýsingaform það sem hvert
félag fyllti út hér áður, þar sem kom
fram helstu upplýsingar varðandi fæð-
ingar í hverju landi og kjör ljósmæðra.
Mörgum þykir þetta vanta og var Astu
og Hildi falið að koma með tillögur
að slíkri upplýsingamiðlun milli land-
anna. Að venju fluttu fulltrúar landanna
skýrslur sínar og var það næsta mál á
dagskrá og er hér á eftir stiklað á því
helsta sem kom fram þar. Hefð hefur
skapast fyrir því að fylgja stafrófsröð
og var því fyrst rætt um skýrslu danska
ljósmæðrafélagsins.
Danmörk
Eins og áður hefur komið fram hefur
öll heilbrigðisþjónusta í Danmörku
verið endurskipulögð og landinu skipt
upp í 5 svæði og á hvert svæði að
skipuleggja þá þjónustu sem það býður
upp á í samræmi við nýja heilbrigð-
islöggjöf og skipulagningu sérmeðferða
eins og t.d. krabbameinsmeðferðar og
neyðaraðstoðar. Umræða um að t.d.
þjónusta svæfingarteymis verði aðeins
á fáum sjúkrahúsum hefur áhrif á fæð-
ingarþjónustu og eru ljósmæður mjög
áhyggjufullar yfir þessari þróun og fylgj-
ast grannt með framvindu mála.
Varðandifæðingaþjónustunaalmennt,
þá er hún einnig í endurskipulagningu og
hafa ljósmæður verið að prófa sig áfram
með ýmis þjónustuform til kvenna og er
verkefnið „Kendt jordmor” sem hefur
verið tilraunaverkefni í Álaborg síðast-
liðinn 2 ár og vakið mesta ánægju, bæði
meðal kvenna og ljósmæðra. Verkefnið
þykir hafa tekist alveg sérstaklega vel
og sem dæmi þá hefur heimafæðing-
um fjölgað mjög (7% miðað við lands-
meðaltal sem er innan við 1%), meðal
þeirra kvenna sem eru í þessu verkefni
og tíðni inngripa eins og keisaraskurða
hrapað verulega. Skýrsla hefur verið
unnin um verkefnið og er að finna á
heimasíðu danska ljósmæðrafélagsins.
Næstu skref eru að bjóða upp á slíka
þjónustu í öllum svæðunum 5. Á sama
tíma er verið að fækka fæðingarstöðum
og t.d. í Kaupmannahöfn er geil ráð
fyrir að aðeins verði 4 sjúkrahús í stað
7 núna sem muni bjóða uppá fæðing-
arþjónustu. Endurskoðun á klínískum
leiðbeiningum varðandi mæðravemd er
í endurskoðun af fjölfaglegum hópi og
gengur allvel.
Áhersla heilbrigðisyfirvalda er skilj-
anlega á gæði þjónustunnar en skilning-
urinn á því er því miður samofinn hugs-
uninni um „centraliseringu” þjónust-
unnar. Ljósmæðrafélagið leggur aftur á
móti áherslu á að gæði ljósmæðraþjón-
ustu fari þvert í gegnum kerfin þar sem
þær annist konuna í meðgöngu í héraði
og fylgi henni svo á sjúkrahús á því stigi
sem er viðeigandi við þá þjónustu sem
hentar konunni hverju sinni.
Félagið lét gera stóra rannsókn um
starfsaðstæður Ijósmæðra og helstu nið-
urstöður þeirrar könnunar eru að 83,4%
allra ljósmæðra í starfi tóku þátt í könn-
unni og a) almennt eru ljósmæður mjög
ánægðar með að hafa valið þetta fag og
vinna við það, b) 9 af hverjum 10 eru
óánægðar með launin sín og c) 40%
ljósmæðra telja að það umhverfi sem
þeim er ætlað að sinna störfum sínum
sé ófullnægjandi bæði faglega og mann-
eskjulega. Skýrslan er til á skrifstofu
ljósmæðrafélagsins fyrir áhugasama,
ennfremur á hún að vera á heimasíðu
danska ljósmæðrafélagsins http://www.
jordemoderforeningen.dk/multimedia/
J orden_dre_p_del tid_og_overarbej de4.
pdf eða www.jordemoderforeningen.
dk.
Innan danska ljósmæðrafélagsins er
starfandi „Jordemoderfagligt selskap”,
sem í upphafi varð til með þeim tilgangi
að sinna faglegum verkefnum einvörð-
ungu og hefur nú þróast í að verða
ráðgefandi fyrir heilbrigðisyfirvöld
í ákveðnum málum. Hópurinn starfar
mjög náið með stjórn félagsins sem
nýtur góðs af þessu grasrótarstarfi.
Danska ljósmæðrafélaginu hefur tek-
ist, með Lillian Bondo í fararbroddi, að
koma að umræðu í fjölmiðlum um ýmis
samfélagsleg málefni eins og vinnuálag
Ijósmæðra á fæðingadeildum ásamt
umræðum um gæði fæðingarþjónust-
unnar s.s. keisaratíðni, spangarklipp-
ingar, sphincterrifur og hríðaörvun svo
eitthvað sé nefnt. Einnig umræðu um
fóstureyðingar og tímamörk fyrir þær,
fæðingar krónprinsessunnar og þátttöku
feðra í fæðingarorlofi.
Fæðingar í Danmörku eru um 64.500
á ári og svo virðist sem keisaratíðni
árið 2006 verði um 20% og hefur fjöldi
þeirra kvenna sem óska sérstaklega eftir
því að fæða með keisaraskurði aukist
verulega. Aðrar tölur frá heilbrigðisyf-
irvöldum benda einnig til þess að notk-
un annarra inngripa eins og sogklukku
og hríðaörvunar hafi aukist talsvert.
Ekki virðist vera samhengi milli stærðar
fæðingadeilda og inngripatíðni.
Danska ljósmæðrafélagið mun halda
næstuNorðurlandaráðstefnu3-5júníárið
2010 en þá eiga Norðurlandasamtökin
60 ára afrnæli. Ráðstefnan verður haldin
í Kaupmannahöfn.
40 Ljósmæðrablaðið júní 2007