Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Side 5
Imynd stéttar
ú aldui' til þess að vera ljósmóð-
lr? var ég spurð, 28 ára gömul, nýút-
skrifuð ljósmóðir á ísafirði. Viðmælandi
minn hafði greinilega skýra mynd af því
hvernig ljósmæður ættu að vera og ég
Passaði ekki þar inn við fyrstu kynni.
Þegar ég keypti mér nýjan bíl fyrir 8
árum, fylgdi geisladiskur með bílnum
°g mátti velja á milli tveggja. Sölu-
maðurinn í Bílabúð Benna var fljótur
að velja Burt Bacharach fyrir mig fram
yfir þyngri tónlist þegar hann vissi að ég
Var ljósmóðir.
Við þekkjum allar jákvætt viðmót
fólks þegar við upplýsum um starf okk-
ar- Endalaus umræðuefni skapast og
Vlðmælendum liggur ýmislegt á hjarta
11111 eigin reynslu og sögu formóður
sem einnig var ljósmóðir, gjarnan í
afskekktu byggðarlagi umkringt ófær-
um. Og okkur leiðist aldrei að hlusta.
Fólk hefur einhverja mynd af því
vernig ljósmæður eigi að vera en sú
llr>ynd samrýmist ekki endilega nútíma
Veruleika.
I september fengum við Eggert
kúlason fjölmiðlafrömuð til okkar
111 að fjalla um ímyndarsköpun. Hann
a ði mjög skýra mynd af ljósmæðrum
en hún var ekki frá þessari öld og ekki
e dur frá seinni helmingi síðustu aldar!
. n=u að síður var myndin jákvæð og
'nnihélt allt í senn umhyggju, visku,
Urnfýsi, traust, hetjudáð og dirfsku.
°ðskapurinn íljósmæðrai'mynd Eggerts
Var’ að almennt höfum við afskaplega
SlT|áa mynd í hugum fólks, en sú mynd
er Jákvæð. Strax og við kynnum okkur
Seir> Ijósmæður, fáum við mikla forgjöf,
‘nmitt vegna þessarar ímyndar ljós-
æ ranna, formæðra okkar sem brut-
s[St, 8egnum blindhríð og yfir beljandi
jorfljót til sængurkonu í bamsnauð.
anf|UleÍI<' Sem vissule§a er fjarri okkur
okkeStUm en Það kemur annað til í
ar samtíma. Samfélagið allt hefur
Cyst fra samtíma þessara ljósmæðra
Guðlaug Einarsdóttin
formaður LMFI
sem áður er lýst. Menntunarkröfur hafa
aukist og kannski hvergi eins mikið
og hjá ljósmæðmm sem síðustu áratugi
hafa haft með allra mestu, ef ekki ein-
faldlega mestu grunnmenntunarkröfur í
störf sín af öllum starfstéttum. Eðli ljós-
móðurstarfa er þess eðlis að eftir sem
áður veljast aðeins sérstakar persónu-
gerðir til þeirra.
Fjölmiðlar eiga stóran þátt í að móta
viðhorf samtímanns. Meirihluti þess
afþreyingarefnis sem Islendingar velja,
er frá þeim heimshluta þar sem bam-
eignarþjónusta hefur þróast langt frá
hugmyndafræði Ijósmóðurfræðinnar.
Við fáum því frekar mótbyr en með-
byr úr þeirri átt til þess að kynna störf
okkar og hugmyndafræði í þágu eðli-
legra fæðinga og ákvarðanaréttar
kvenna. Ríkjandi orðræða mótar við-
horf almennings og ef við tökum ekki
þátt í henni, getum við ekki búist við að
hugmyndafræði ljósmæðra hafí hljóm-
grunn í samfélaginu.
Við verðum sjálfar að kynna almenn-
ingi störf okkar og hugmyndafræði.
Ljósmæður hafa svo miklu að miðla og
enginn vafi er á að almenningur myndi
leggja við hlustir. Við vitum af eigin
reynslu að fólk er sem betur fer mjög
áhugasamt um meðgöngu og fæðingu.
Veruleiki starfs okkar er svo lokaður
almenningi að það sem okkur gæti þótt
almenn vitneskja, er jafnvel uppgötvun
fyrir marga leikmenn. Við þurfum því að
vera miklu iðnari við að skrifa stórt og
smátt. Bæði í staðar og hverfisblöð og í
dagblöð á landsvísu. Sem sunnlendingur
hef ég t.d. orðið vitni að góðu framtaki
í einu staðarblaðanna; stuttum pistlum
sem hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu-
stöð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
skrifa. Það eru fróðlegir pistlar um ýmis-
legt sem þeir láta sig varða. Þeir gera
hvortveggja í senn; fræða almenning og
vekja athygli á störfum og fagmennsku
hjúkrunarfræðinganna. Þetta væri ein
hugmynd fyrir ljósmæður - pistlar eða
fróðleikskom frá ljósmæðrum, gjaman
við hlið myndanna af nýfæddum íbúum
staðarins sem finna má í sumum stað-
arblöðum. Ljósmæður gætu líka kynnt
sig fyrir framtíðarskjólstæðingum sínum,
unglingum. Grunn- og framhaldsskólar
myndu örugglega taka ljósmæðmm feg-
inshendi sem gestum í lífsleikni- eða
líffræðitímum.
Norskar ljósmæður fengu gott innlegg
í kynningu ljósmóðurstarfa í Noregi;
syrpa sex raunveruleikaþátta um störf
ljósmæðra á Buskerudfæðingadeildinni
í Drammen. Þættimir nutu gífurlegra
vinsælda í Noregi þar sem almenningur
fékk innsýn inn í annars lokaðan heim
fæðingadeildar og varð vitni að krafta-
verki lífsins í þeim birtingarmyndum
sem það gerist. Þættina má sjá á slóð-
inni http://www.nrk.no/jordmodrene.
Þrátt fyrir allt sem segja má um
raunveruleikaþætti, má ætla að norska
þjóðin sé nú með nýlegri mynd af ljós-
mæðrastéttinni en sú íslenska.
Logaland
Cb LYFJA
I I - Lifið heil
Heilsugœslustödin Ólafsvík
Engihlíð 28,355 Ólafsvík • Sími 430 6500 • Fax 430 6501
Liósmæðrablaðið desember 2007 5