Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Page 28
Nýr styrktarsjóður við Háskóla íslands
Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur
styrkir meistara- og dolctorsnema í hjúkrunar- og Ijósmóðurfræðum
Erla Kolbrún Svavarsdóttir, Ingibjörg R. Magnúsdóttir, Kristín Ingólfsdóttir og Sóley
Bender.
Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður
við Háskóla Islands, Rannsóknasjóður
Ingibjargar R. Magnúsdóttur. Stofnskrá
sjóðsins var undirrituð í dag af Kristínu
Ingólfsdóttur rektor og Ingibjörgu R.
Magnúsdóttur, stofnanda sjóðsins.
Rannsóknasjóður Ingibjargar R.
Magnúsdóttur er fyrsti sjóðurinn á
Islandi sem veitir styrki til rannsókna
í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum.
Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir
í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og
verða vei ttir styrkir ti 1 hjúkrunarfræðinga
og Ijómæðra í doktorsnámi, sem falla að
markmiði sjóðsins. Stefna hjúkrunar-
fræðideildar Háskóla íslands er að efla
framhaldsnám til meistara- og doktors-
prófs, sem samrýmist stefnu skólans í
þeim efnum, enda vaxtarbroddur hverr-
ar fræðigreinar fólginn í framhalds-
nemendum hennar. Rannsóknasjóður
Ingibjargar R. Magnúsdóttur er því mik-
ill stuðningur við doktorsnema og rann-
sóknaverkefni í hjúkrunafræðum.
Ljósmæðrafélag Islands, Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið, Glitnir og
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði
hafa lagt fram fé til sjóðsins auk fram-
lags Ingibjargar og bróðurdóttursonar
hennar, Magnúsar F. Guðrúnarsonar.
Þar fyrir utan hefur sjóðnum borist fjöl-
margar gjafir fyrir tilstuðlan dr. Sigrúnar
Gunnarsdóttur hjúkrunarfræðings.
Hjúkrunarfræðinám á íslandi var fært
upp á háskólastig árið 1973 með stofn-
un námsbrautar í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands. Stofnun námsbraut-
arinnar markaði upphaf rannsókna í
fræðunum hér á landi. Þá hófst kennsla
í undirstöðuþáttum rannsókna sem
síðan hafa eflst og vaxið. Árið 1998 var
aftur brotið blað í sögu hjúkrunarfræði-
menntunar á Islandi með tilkomu meist-
aranáms í hjúkrunarfræði við Háskóla
Islands og árið 2000 varð námsbraut
í hjúkrunarfræði sjálfstæð deild innan
skólans, hjúkrunarfræðideild. Deildin
setti sér það markmið að efla enn frek-
ar framhaldsnám hjúkiunarfræðinga og
Ijósmæðra og árið 2005 voru fyrstu
nemendurnir skráðir í dokt-
orsnám við deildina.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir
hjúkrunarfræðingur er fyrr-
verandi námsbrautarsjóri
námsbrautar í hjúkrunarfræði
Háskóla Islands og skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Ingibjörg hefur verið einn
ötulasti talsmaður þróunar
hjúkrunarmenntunar hér á
landi og var hún ein þerra
sem stóð að stofnun náms-
brautar í hjúkrunarfræði við
Háskóla Islands.
Styrktarsjóðir Háskóla
Islands hafa umsjón með
sjóðum og gjöfum sem
ánafnaðar hafa verið Háskóla
Islands, allt frá stofnun skól-
ans. Flestir starfa samkvæmt
staðfestri skipulagsskrá og
er þeim ætlað að styðja við
ýmis verkefni á ákveðnum
fræðasviðum til hagsæld-
ar fyrir Háskóla íslands, stúdenta eða
starfsfólk.
Hægt er að fylla út eyðublað til
styrktar sjóðnum á slóðinni: http://
www.hjukrun.hi.is/page/hjfr_rann-
soknastofnun . Frekari upplýsingar veit-
ir Hildur Friðriksdóttir, forstöðumaður
Rannsóknastofu í hjúkrunarfræðum.
Netfang: hildurfr@hi.is, sími 525 5280.
HÁSKÓLI ISLANDS
HJÚKRUNARFRÆÐIDEILD
Viltu styrkja
hjúkrunarfræðinga og Ijósmæður?
Það getur þú gert með því að styrkja
Rannsóknarsjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur sem var
stofnaður 29. júní 2007.
Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar-
og Ijósmóðurfræðum. Styrkir verða veittir til rann-
sóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra í
doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.
Viljir þú styrkja sjóðinn almennt eða vegna sérstakrar
ástæðu t.d. í tilefni útskriftar einhvers nemanda,
árgangaafmælis eða til minningar um látinn ástvin þá
er hægur vandi að fara inn á slóðina:
http://www.hinkrvn.hi.i8/page/hifr rannsoknastofnun
eða inn á heimasíðu Rannsóknastofnunar í
hjúkrunarfræði og þaðan inn á Rannsóknasjóð
Ingibjargar R. Magnúsdóttur.
Margt smátt gerir eitt stórt! Stofnfó var 5 m.kr. en
betur má ef duga skal til að hefja úthlutun.
LANDSPÍTALI
28 Ljósmæðrablaðið desember 2007