Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 45

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 45
°g hvort konurnar viðurkenna sjálfar neysluna eða hvort hún kemur í ljós við þvagskimun. Eiturlyfjaneysla er mismikil eftir löndum og landshlut- Llni. hún er almennt meiri í þéttbýli en dreifbýli og er oft tengd ákveðnum borgarhlutum. Þannig sýndu niðurstöð- Ur rannsóknar sem gerð var í suðurhluta London að 16% þungðra kvenna voru í neyslu, samkvæmt þvagskimun á fyrri hluta meðgöngu (Sherwood, Keating, Kavvadia, Greenough og Peters, 1999). Erfitt er að fá nákvæmar upplýsingar um umfang vandamálsins vegna þess að 1 mörgum tilfellum segja konumar ekki frá neyslunni og ef sú leið væri farin að láta allar konur í meðgönguvernd skila þvagprufu í eiturefnaleit yrði það til Þess að þær mættu síður þangað, auk þess sem fæst efnanna mælast í þvagi lengur en einn sólarhring eftir að þeirra er neytt. Þessi aðferð myndi því ekki gefa nógu áreiðanlega mynd af fjölda neytenda (Sherwood o.fl., 1999). Afleiðingar vímuefnaneyslu a fneðgöngu ^argar rannsóknir hafa verið gerðar á afleiðingum vímuefnaneyslu þungaðra ^venna og eru niðurstöður samhljóða, VLmuefnaneysla er skaðleg heilsu bæði móður og barns og á það jafnt við um ögleg efni og ólögleg. En hver er raun- veruleg skaðsemi ólöglegra vímuefna? Þegar þunguð kona neytir vímuefna er meðgangan skilgreind sem áhættu- ^eðganga (Craig, 2001; Gilbert, 2007; epburn, 2004). Samkvæmt heimild- Um er tvennt sem öll efnin eiga sam- eiginlegt en þau virðast valda aukinni ættu á fæðingu fyrir tímann og lágri ®ðingarþyngd miðað við meðgöngu- engd. Aðrir þættir eru að nokkru leyti aldir ráðast af því hvers konar efna afi verið neytt, í hve miklum mæli á hvaða hluta meðgöngu. Að auki aiu margir aðrir þættir áhrif á útkomu meðgöngu og fæðingar, til dæmis nær- ‘ngarástand og allur aðbúnaður konunn- dr- Greenough og Kassim (2005) tala , að neysla í upphafi meðgöngu geti ^a L skaðleg áhrif á þróun fósturvísisins Það geti orsakað fósturlát snemma j. Ineðgöngu og neysla á seinni hluta ^ta þdðjungs geti leitt til meðfæddra áh-3 C^a vansi<aPana- Lífeðlifræðileg u 11 fr'kniefna eru mismunandi eftirteg- þæi-Uni ‘‘fre'ðingíirnar því ekki alltaf \^’.na^sefn 1 (hass/marijuana) a er mest notaða ólöglega vímuefnið á íslandi og víðar í heiminum. í rann- sókn Sherwood o.fl. (1999) seni gerð var á þunguðum konum í London voru 85% jákvæðra eiturefnaprófa jákvæð fyrir kannabisefnum. Virku efnin í kannabis eru fituleysanleg og lengi að brotna niður og skiljast út úr Iíkamanum, þau er hægt að greina með þvagskimun í allt að 30 daga eftir neyslu, hversu lengi þau finnast fer þó eftir hve mikil neysl- an hefur verið. Þessi efni hafa letjandi áhrif á hormónaframleiðslu og draga um leið úr frjósemi, bæði kvenna og karla. Þau fara yfir fylgju og rannsóknir hafa sýnt að þau draga úr vexti fóst- urs og sýnt hefur verið fram á lægri fæðingarþyngd um að meðaltali 400 gr. Þau eru einnig talin stytta með- göngulengd um allt að tvær vikur að meðaltali (Gilbert, 2007; Huestis og Choo, 2002; Kennare, Heard og Chan, 2005; Sherwood o.fl., 1999). Kannabis eykur magn kolmónoxíðs í blóði fimm- falt meira en tóbak, sem veldur því að súrefnisflutningur til fóstursins skerð- ist. Kannabisneysla er einnig talin auka hættu á fylgjulosi. Auk þess er talið að megi rekja atferlis- og hegðunarraskanir svo sem einbeitingarskort og hvatvísi hjá börnum til kannabisneyslu móður á meðgöngu (Gilbert, 2007). Amfetamín Er örvandi efni og hefur neysla þess farið vaxandi hér á landi síðastliðin 10 ár eða svo (SÁÁ, 2006). Eitt af lífeðl- isfræðilegum áhrifum þess á líkamann er æðasamdráttur og er hann talinn eiga þátt í aukinni tíðni fósturláta, fæðingu fyrir tímann, fylgjulosi og vaxtarskerð- ingu fóstursins vegna skerts blóðflæð- is um fylgju. Einnig hafa gallar eða frávik í taugakerfi verið talin orsakast af amfetamínneyslu á meðgöngu, til dæmis meðfædd heilablæðing, drep, myndun holrúma og vaxtarskerðing heila, aukin tíðni floga hjá nýburum og vöggudauði (Gilbert, 2007; Huestis og Choo, 2002). Auk þessara þátta er talað um atferlis- og hegðunarraskanir hjá baminu þegar það stækkar. Áhrif amfetamínneyslu hafa lítið verið rannsakaðar og er það fyrst og fremst vegna þess að sjaldnast er um að ræða neyslu þess eingöngu, heldur er það oftast notað ásamt öðrum efnum. Kókaín Er örvandi efni eins og amfetamín en neysla þess er útbreiddari í heiminum og afleiðingar þess því þekktari. Það er til í tvenns konar formi, duft og kristall- ar -svokallað krakk, sem er miklu sterk- ara en duftið og eru afleiðingar þess því mun alvarlegri (Craig, 2001). Neysla kókaíns hefur aukist talsvert hér á landi hin síðari ár og þá í duftformi, krakk er nánast óþekkt hér (SÁÁ, 2006). Afleiðingar kókaínneyslu á með- göngu hafa verið rannsakaðar töluvert og eru taldar hafa ýmis skaðleg áhrif á fóstur og útkomu meðgöngu. Líkt og amfetamín veldur kókaín æðasamdrætti og háum blóðþrýstingi og þar með minni súrefnis- og næringarefnaflutn- ingi til fóstursins. Kókaín veldur einnig æðasamdrætti hjá fóstrinu, háþrýstingi og hröðum hjartslætti. Það er talið valda samdrætti í leginu og þar með auka hættu á fósturláti og fæðingu fyrir tím- ann. Aðrar afleiðingar eru aukin tíðni utanlegsþungana, rof á belgjum fyrir tímann og legvatnsleki í kjölfarið og fylgjulos. Fjölmörg önnur atriði eru nefnd, s.s. áhrif á heila- og taugakerfi fóstursins; heilablæðing og drep í heila, vaxtarskerðing heila sem leiðir til minnk- aðs höfuðummáls. Aðrir þættir eru vaxt- arseinkun, vanskapanir á t.d. þvagfær- um, meltingarfærum og hjarta. Einnig er vöggudauði tíðari, svo og atferlis- og hegðunarraskanir hjá barninu síðar meir (Craig, 2001; Gilbert, 2007; Huestis og Choo, 2002). Gilbert (2007) talar einn- ig um að kókaínneysla föður skömmu fyrir getnað auki líkur á afbrigðileika hjá baminu. Ópíöt Hér er einkum um að ræða morfín og heróín og em það hinir svonefndu sprautufíklar sem nota þessi efni en það eru venjulega þeir einstaklingar sem eru lengst leiddir í neyslunni og orðnir mjög veikir af fíkn. Neysla heróíns er talsvert útbreidd í Evrópu en nánast óþekkt á íslandi. Þau efni sem sprautufíklar nota hér eru aðallega amfetamín, kókaín og morfín, sem er þá oftast Contalgintöflur sem búið er að leysa upp (SÁÁ, 2006). Þessi efni era mjög skaðleg fyrir fóstrið og era mörg atriði sem rannsakendur telja afleiðingar neyslu þeirra, það era t.d. fósturlát, fylgjulos, rof á belgjum fyrir tímann, vaxtarskerðing fósturs og lág fæðingarþyngd, meðgöngueitrun, fósturdauði, nýburadauði og vöggu- dauði, blæðing eftir fæðingu, öndunar- erfiðleikar hjá nýburanum og fráhvarfs- einkenni ef móðirin er enn í neyslu við fæðingu, einnig er talað um skaða á mið- taugakerfi, vitræna skerðingu og hegð- unarvandamál (Craig, 2001; Gilbert, 2007). Fóstrinu getur verið hætta búin Ljósmæðrablaðið desember 2007 45

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.