Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 51

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 51
var almennur áhugi fyrir því hjá heilsu- gæslustöðvunumi. Byrjaði hópurinn því að starfa inn á Miðstöð Mæðraverndar sem stofnuð var árið 2000 og fyrstu konurnar komu í mæðravernd þar. Tóku þær við konum sem voru langt komnar í rneðgöngu þannig að starfsemin byrjaði fljótlega á fæðingum. Fyrsta barnið hjá MFS hópi II fæddist þann 07.12.2000 °g tók Margrét Guðmundsdóttir á móti Því ( Árdís Ólafsdóttir munnlega heim- ild, 3. maí 2007). Hugmyndin var upphaflega að hann starfaði aðeins öðruvísi en fyrri hóp- urinn eða eftir „one-to-one” hugmynda- fræðinni sem felur í sér að konan hefur emn umönnunaraðila í gegnum barn- eignarferlið, en hætt var við það meðal annars vegna þess að það kerfi þótti of dýrt í rekstri, auk þess sem ljósmæðr- unum fannst almennt bindingin vera of mikil. Fljótlega, eða í maí árið 2001, störfuðu þessir tveir hópar því á svip- aðan hátt og voru svo síðar sameinaðir (Ardís Ólafsdóttir, 2005). Árið 2000 var ákveðið að færa mæðra- vernd kvennadeildar Landspítalans út 1 heilsugæsluna, Heilsugæsla höfuð- horgasvæðisins var sett yfir reksturinn °S Miðstöð mæðravemdar var eins og áður sagði stofnuð. MFS einingin fékk góða aðstöðu þar til mæðraskoðunar, voru með tvær skoðunarstofur til afnota Sem að voru innréttaðar í anda MFS e'njngari nnar. í nóvember árið 2000 var Hreiðrið a kvennadeild Landspítalans opnað. fiugmyndin var sú að allar heilbrigðar k°nur gætu fætt þar og legið sæng- nrfegu en þróunin varð sú að nær ein- Ullgis konur í MFS kerfínu fæddu þar en öllum eðlilega fæddum konum stóð hl boða að liggja þar stutta sængurlegu. Hreiðrinu eru tvær fæðingarstofur sem Clu útbúnar með stórum potti, hjóna- numi og sér klósetti og sturtu. Einnig e,u 5 fjölskylduherbergi sem eru útbúin yneð hjónarúmi og aðstöðu til að sinna urninu. Þar stendur fjölskyldunni til °ða að dvelja í sólahring áður en farið er heim í heimaþjónustu ljósmóður. Hópamir tveir sem stöfuðu innan MFS eniingarinnar voru sameinaðir árið 2003. ‘L'r Ijósmæður sem stöfuðu í honum voru þ‘e> Rannveig Matthíasdóttir, Guðlaug úlsdóttir, Jóhanna Hauksdóttir, Margrét uðmundsdóttir, Sigurborg Kristins- óttir, Greta Matthíasdóttir, Ragnhildur eynisdóttir, Elín Hjartardóttir og Anna h'ðvaldsdóttir Starfsemi MFS jókst með hverju ári, 3r|ð * 995 voru um 100 fæðingar í MFS einingunni en árið 2005 voru þær orð- nar 308. Eftirspurnin var mikil, jókst frá ári til árs og urðu ljósmæðumar að vísa mörgum konum frá eða um 30 konum á mánuði. Á sama tíma var farið að bera á gagnrýni frá samfélaginu um að aðeins útvaldar konur fengju svona góða þjón- ustu og að verðandi foreldrum væri mis- munað. í frétt í Morgunblaðinu bendir Hildur Harðardóttir fæðingarlæknir t.d. á að það vanti fleiri valkosti í mæðra- vemdina í líkingu við MFS eininguna, þar sem eingöngu heilbrigðar konur fái þjónustu MFS og það hafi einmitt verið gagnrýnt að aðeins heilbrigðar konur fengu bestu þjónustuna sem veitt væri á kvennadeildinni. Það hafi verið talað um að stofna fleiri einingar svipaðar og MFS í Ijósi þess að 30 % kvenna detta út úr MFS annað hvort í meðgöngu eða í fæðingu því þær þurfa á sérhæfðri aðstoð sem ljósmóðir getur ekki veitt ein. Þetta mætti leysa með því að hafa teymi lækna og ljósmæðra svipað að uppbyggingu og MFS og væm læknar teymisins á vakt fyrir sitt teymi. Hún áréttar að það sé ekki síður mikilvægt að konur í áhættumeðgöngu fái samfellda þjónustu á meðgöngu, í fæðingu og í sængurlegu („Fagleg sjónarmið verða að ráða ferðinni”, 2000). í áðurnefndri rannsókn af reynslu foreldra af samfelldri þjónustu MFS einingarinnar kom fram að foreldrum fannst keifið vera falið og frekar óað- gengilegt. Einnig fundu þeir foreldr- ar sem fluttust úr þjónustunni vegna vandamála á meðgöngunni eða í fæð- ingu fyrir vonbrigðum sem að stöfuðu af því að væntingar þeirra til þjónust- unnar brugðust vegna tilkomu flutnings- ins (Auður E. Jóhannsdóttir, Guðrún Björg Þorsteinsdóttir, Halla Skúladóttir og Ingibjörg Hreiðarsdóttir, 2000). Ljóst var að breytinga þurfti við og sammæltust margir um það en minna varð úr framkvæmdum, enda ekki allir sammála um hvemig þær ætti að fram- kvæma. Að margra mati var þörf á að auka frekar þjónustu MFS og þá að allar bamshafandi ættu kost á slíkri þjónustu. Þann 8. desember árið 2005 var MFS ljósmæðrunum svo tilkynnt af yfirmönn- um kvennasviðs LSH að leggja ætti niður MFS eininguna haustið 2006. Einhver óformlegur aðdragandi var búinn að vera að þessari breytingu og umræða í gangi alveg frá árinu 2003. Ljósmæður MFS einingarinnar vom beðnar að ræða þessa ákvörðun ekki opinberlega að svo stöddu en fljótlega lak þetta til fjölmiðla (Gréta Matthíasdóttir og Bergrún Svava Jónsdóttir, munnleg heimild, 24. apríl, 2007). I lok desember 2005 kom grein í Blaðinu þar sem að rætt var við Margréti I. Hallgrímsson sviðstjóra/ yfirljós- móður á kvennadeild og Guðlaugu Einarsdóttur formann Ljósmæðrafélags íslands um þessar breytingar. Margrét talaði þar um að samkvæmt yfirvofandi breytingartillögum ætti að fela heilsu- gæslunni alfarið umsjón með þessari samfelldu þjónustu og kaus hún að tala ekki um eiginlega niðurfellingu á MFS heldur um ákveðna framþróun á þjón- ustunni. Hún sagði að nú væru allar heilsugæslustöðvar komnar með ljós- mæður og að heilsugæslan legði mikinn metnað í samfellda þjónustu. Einnig talaði hún um að breytingin hefði það í för með sér að opna ætti Hreiðrið meira fyrir eðlilegum fæðingum. Að þar ætti að opna fæðingareiningu fyrir eðlilegar konur sem væru ekki í áhættu og ætl- uðu sér að fæða án mænurótadeyfingar. Guðlaug Einarsdóttir sagðist hinsvegar líta á þessa ákvörðun sem afturför frek- ar en framþróun og ítrekaði að hvorki henni né félaginu hefði borist neinar tilkynningar um hvað fælist í breyting- unum né hvað ætti að taka við („MFS- einingu lokað á Landspítala, 2005). í byrjun janúar 2006 var send út fréttatilkynning sem var birt í frétta- blaðinu frá Reyni Tómasi Geirssyni, sviðsstjóra lækninga og Margréti Hallgrímsson, sviðstjóra hjúkrunar á kvennasviði Landspítalans þess efnis að leggja ætti niður MFS eininguna. Þar kom fram að fæðingarþjónustan á höf- uðborgarsvæðinu hafi verið nær óbreytt síðustu 10 ár. Að fæðingardeildin væri í byrjun síðasta áratugar, eins og nú, stærsti fæðingarstaður landsins með 2500 til 2800 fæðingar á ári. í grein- inni kom fram að fæðingarheimilið hafi verið sameinað fæðingardeildinni 1994 og lokað endanlega 1995. Þar höfðu verið 300-500 fæðingar síðustu árin. Sagt var frá því að á þessum tíma hafi víða í nágrannalöndunum verið komið á nýju þjónustuformi til að tryggja að konur hittu í sem mestu mæli einn eða tvo aðal umsjónaraðila í mæðravernd, í fæðingu og í sængurlegu. I greininni kom einnig fram að þessu hafi verið ábótavant hér, því hafi barnshafandi konur oft hitt óþarflega margt fagfólk í mæðravemdinni og enn aðra þegar kom að fæðingu og sængurlegu. Til að bæta úr þessu hafi MFS einingin verið stofn- uð. I greininni tala Margrét og Reynir um að þessi nýja þjónusta hafi strax orðið vinsæl og að þá hafi hún að miklu Ljósmæðrablaðið desember 2007 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.