Akranes - 01.07.1958, Page 9
vinna rnikiS líknar-
starf víSa um heim. — Hér
á myndinni sjást menn frá
heilbrigSisnefndinni reyna
aS verja Afganista gegn
taugaveikifaraldri.
sex árum eftir að hún var samþykkt, eða
haustið 1956. Á fundi öryggisráðsins 31.
október 1956 bar fulltrúi Júgóslava fram
tillögu um aukafund Allsherjarþingsins til
að ræða atburðina við Súez, eftir að Bret-
ar og Frakkar höfðu beitt neitunarvaldinu
til að hindra afskipti ráðsins af málinu.
Fulltrúi Rússa studdi tillögu Júgóslava um
þetta mál. Hún var samþykkt með 7 at-
kvæðum gegn 2, en 2 sátu hjá. Allsherj-
arþingið kom saman daginn eftir til að
ræða málið.
Sama dag beittu Rússar neitunervaldi í
öryggisráðhau þegar tekið var t\l mn-
ræðu Ungverjalandsmálið. Bar þá fulltrúi
Bandarikjanna fram tillögu uni aukafund
Allshei'jarþingsins til að ræða málið. Rúss-
ar lögðust gegn henni, en hún var sam-
þykkt með tiu atkvæðum gegn einu klukk-
an rúmlega 5 að morgni hins 4. nóvember,
en tæpum tólf tímum síðar kom Alls-
herjarþingið saman til að ræða málið.
Einsog menn muna m'ðu Bretar og
Frakkar við tilmæltun Allsherjarþingsins
og létu af herferð sinni, en Rússar virtu
allar umleitanir Sameinuðu þjóðanna að
vettugi. f sambandi við þessi málalok tal-
aði Guy Mollet forsætisráðherra Frakka
um „hið midursamlega alþjóðlega sið-
gajði, sem tryggir það, að menn tapi séu
þeir lýðræðissinnar, en vinni séu þeir
einræðisseggir“.
Þessi orð voru mælt af heift og nokk-
urri ósanngimi, en þau fela í sér sann-
leikskjama og gefa okkur í hnotskum meg-
invandamál Sameinuðu þjóðanna á hin-
rnn pólitíska vettvangi.
Sig. A. Magnússon.
ARRANES
145