Akranes - 01.07.1958, Page 14
J)éiur Olicsm alþingis-
maður sjöUujur
Fæðingardag Péturs ber upp á þjóðhá-
tíðardaginn gamla 1874, og var þann dag
í sumar 70 ára að aldri, en eins og yngri
í anda en nokkru sinni fyrr.
Við þetta tækifæri og hinn langa glæsi-
lega þingmannsferil Péturs, er gaman að
rifja upp fyrstu tildrögin að hann var
valinn til framboðs.
Árið 1916 voru leyfar gömlu flokkanna
enn við líði. Heimastjómarmenn og Sjáli-
stæðisflokkurinn klofnir langsum og þvers-
um, og svo einhverjar vomur á bændum
um stofnun nýs bændaflokks, en það
var ailt laust í reipunmn.
Það var mikið kapp í kosningum.
Heimastjórnarmenn hér voru með Bjama
á Geitabergi sem þingmannsefni, en hin
óformlegu samtök bænda studdu til fram-
boðs ungan og efnilegan mann úr hérað-
inu, Jón Hannesson í Deildartungu, sem
þá þegar stóð framarlega í Ungmenna-
félagsskapnum. — Undir forystu hins
mikilhæfa skörungs þversum-manna,
Bjama frá Vogi, var það hins vegar ráðið,
að fyrir þeirra hönd byði sig hér fram
kunnur klerkur úr Dölum vestur, Jóh.
L. L. Lynge á Kvennabrekku. Það var
meira að segja komið svo langt, að síra
Jóhannes mætti hér á stjórnmálafundi,
svo var þetta fullráðið.
Akumesingar voru þá flestir þversum
menn, þvi þeir tóku þá afstöðu gagnvart
klofningi í Sjálfstæðisflokknum gamla.
IJeir vora óánægðir með síra Jóhannes,
en ekki hægt um vik á siðustu stundu,
því fremur sem þetta var ráðið, en ekki
heimamenn á hverju strái sem fáanlegir
væm í framboð, enda tíminn enginn orð-
inn. Þá mun Kristmann Tómasson hafa
haft sérstaka forystu um að benda á Pét-
ur Ottesen til framboðs, en hann var þá
28 ára gamall, óðalsbóndason frá Ytra-
Hólmi, og átti þá heima hjá foreldmm
sinum.
Pétur velti að vonum vöngum i fyrstu,
en hart var lagt að honum. Mun það
hafa ráðið miklu í þessu máli, að þegar
hann bar málið undir föður sinn, Odd-
geir Ottesen, greindan og hæglátan, sem
rasaði ekki um ráð fram, að hann hvatti
Pétur fremur en latti til þessa.
Þá gat enginn boðið sig fram til þings,
sem ekki átti jörð eða jarðarpart, en það
átti Pétur þá enn ekki. Það var þó skjót-
gert að setja undir þann leka, því að
Oddgeir gaf Pétri samstundis jörðin.i
Fjósakot í Ytra-Hólmshverfinu.
Var nú svo mikil eining, festa og 4-
kveðinn vilji hér, að sira Jóhannes sá sitt
óvænna og dró sig með góðu til baka, en
það gerði hann þó ekki fyrr en á framboðs-
fundinum, þar sem allir vom mættir,
einnig Pétur.
Þetta fór svo eins og kunnugt er, að
Pétur vann glæsilegan sigur, og flestir
Heimastjómarmenn kusu hann jafnan,
nema i þetta eina sinn. Svo varð Pétur
150
AKRANES