Akranes - 01.07.1958, Page 23

Akranes - 01.07.1958, Page 23
Að heiman ég býst og glögg er min gerð, ég geng yfir fjörusteina, og met hvað ég sjálf er viljug verð og vil að menn fái að reyna, að Þóra hlaðhönd er þar á ferð og þarf ekki för að leyna. Þeir sjá, að með honum geng ég glöð frá gnægtum í bróðurhúsum, frá rausnargarði um rudda tröð ég ræðst nú af vilja fúsum og heimili kveð og húsahlöð, frá hleifxmi og mjaðarkrúsum. Min biður til suðurs sigling glæst í Sogni að nýjum ströndum, þar bíður í garði nýjum næst hjá nýjum ami og bröndum, það starf og leikur og lán, sem fæst með lífið í sterkum höndum. Á Aurlandi Strjálir eru og stolnir fundir stjóm og skipan Brynjólfs imdir, heima á Aurlands höfuðbóli hefir vald og ræður skjóli, okkar þó hann viti vilja, verður margt að geyma og dylja, samt á lífið stórar stundir, strauma þunga, dýpi hylja. Bróðir þiggur ei boðnar sættir, búið er að snúist þættir miklir kring um meyjar-ránið, mér er spm-n, hvort endist lánið Bimi og mér, að ná að njótast, nokkuð mun af okkar hljótast skjótræði, en gestur um gættir geng ég hér unz ráðin mótast. Góð er vist í glæstum ranni garpi hjá og sasmdarmanni, hersis vill ei heiður skerða, hefti skriðinn minna ferða, er ég gekk hér glöð í hlaðið, gálaust stefndi á tæpa vaðið, minni eigin ætt með sanni ögraði meira en við gat staðið. Aldrei mun þó að mér sækja iðrun nein og hugar flækja, ég hef valið brýr að brenna að baki mér og hlýt að kenna á því sem mín athöfn veldur, æfi minnar dómur felldur, hika samt ei raun að rækja, renn ei þótt sé heitur eldur. Birni kaus ég fús að fylgja, finn þó risi nokkur ylgja, örlög stór að fást ei flúin, fagnar ástin, sigrar trúin. Bíð nú vors, að lim i lundi lifni og gnoð á fjarðarsundi hækki seglin, bláni bylgja, — biðinni stundum lítt ég undi. Þá skal neyta nýrra ráða, nýrra taka, stærri dáða, við sem bróður brutum vilja bíðum ekki þess að skilja, fullgerð skulu festarmálin, fyrir handan norðurálinn, AKRANES 159

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.