Akranes - 01.07.1958, Qupperneq 33
Nú er risið orðið lúgt ú Slþiogi
Það nýtur ekki lengur sama trausts og
virðingarinnar, sem ekki er heldur von,
eins og 'þar er störfum hagað kæruleysis-
lega mjög undanfarin ár.
Agaleysið, ringulreiðin og kæruleysið
í framkvæmd þjóðmála, hefur komið eins
og svo ótal margt illgresi með öllum þjóð-
um, ofan frá.
Þar er landsfólkinu boðið svo margt
á hinum ólikustu sviðum, að það hefur
keyrt efnahagslífið í dróma. Fólkið gerir
kröfur um óþörfustu og ótrúlegustu hluti.
Þessi boð hafa gert þjóðina — svo að
segja hvert mannsbarn — að óstýrilátum,
heimtufrekum mönnum fyrir sjálfa sig,
byggð sína og býli. Eyðslusemin á eigið fé
og annarra, þar sem til þeirra kasta kem-
ur, kröfu- og eyðslusamir allt um efni
fram. En allt þetta er að trylla þjóðina
og gera hana ábyrgðarlitla menn fyrir
kröfum og æðisgengnum flýti í fram-
kvæmdmn sem engin þjóð - og sízt svo
smá sem vér — getum uppfyllt á sóma-
samlegan liátt, nema sigla öllu í strand,
riku Loftsdóttur. En kona hans var Þuríð-
ur Einarsdóttir, hirðstjóra norðan og vest-
an, bróður Bjöms hins ríka í Vatnsfirði.
Ættfræðingar síðari tíma hafa einnig
glímt við að rekja ætt Sigvalda langalífs.
Hafa komið fram um hana ýmsar tilgátur,
en engin þeirra styðst við rök, sem hægt
er að taka gild. Jafnvel hefur ættfræðing-
um dottið í hug, að hann hafi verið
norskur. Eru helztu líkindin til þess, að
Sigvalda nafn kemur ekki fyrir hér á
landi fyrr, en hins vegar er það bæði til í
Noregi og Danmörku. Ekki tel eg tilgátu
þessa líklega.
Eg tel hiklaust, að Sigvaldi langalif sé
af skaftfellskum bændaættum kominn. Til
átthaganna hefur hann leitað, þegar
hann varð að flýja úr Vatnsfirði eftir
dauða húsbónda síns með bróðurdóttur
hans. Þar átti hann vinum og frændum
að fagna, sem hann átti vist skjól hjá.
Það má sjá það af heimildum síðan um
Siðaskipti, að mikill dugur er í skaftfellsku
fólki, sem brotið er af bergi Langalífsætt-
ar. Eg get að vísu ekki farið langt út í það
hér að færa rök að þessari skoðun, en vil
samt minna á aðra ætt, sem einnig er
skaftfellsk og af einni grein Langalífsætt-
ar ,en það er svonefnd Skálafellsætt. Hún
er komin frá foreldrum Jóns Eiríkssonar,
stjórndeildarforseta í Kaupmannahöfn.
Saga þessarar ættar er að mörgu lík ætt
Reykhyltinga og einkeoini hennar haga
sér líkt og einkenni þeirra. Þau verða yfir-
sterkari við hverja blöndun. Koma fram
öðru hvoru skír og sterk. Ef til vill er
hægt að sjá mikinn skyldleik í persónum
Gissurar biskups og Jóns Eiríkssonar, ef
vel er athugað.
Einnig vil eg geta þess til frekari stuðn-
ings fyrrgreindar skoðunar, að eftir Skaft-
áreldana flutti talsvert af fólki úr Skafta-
fellssýslum vestur í Rangárvalla- og Ár-
nessýslur. Er frá því komið margt merkra
manna, sem örugglega á margt af erfðum
símnn að rekja til hinna skaftfellsku for-
feðra.
AKRANES
169