Akranes - 01.07.1958, Qupperneq 47
OL. B. BJÖRNSSON:
Þœttir i'ir sögu Akraness 62.
HVERSU AKRANES BYGGÐIST
5. kafli. — 1901—1925. — Vorhugur og vélaöld gengur í garð.
122. Ármót.
Að stofni til er þetta hús byggt alda-
mótaárið. Það byggði Magnús smiður Öl-
afsson frá Litlu-Brekku, Magnússonar.
Þangað mun Magnús þó ekki hafa flutt
fyrr en árið 1901, því að árið 1900 er
hann ásamt konu sinni búsettur á Sönd-
um. Hinn 7. desember 1905 virðist liúsið
virt og stendur m. a. svo um þetta í virð-
ingargerðinni: „Iveruhús úr timbri, byggt
1900 og endurbætt, hækkað og aukið við
það í fyrra og er nú 7X9 álnir að stærð.
Lóðin kringum húsið er 280 ferfaðmar,
ræktaður matjm'tagarður. Girt með timbri
og vir. Húsið með útbyggingunni álítum
vér sanngjamlega metið á kr. 1580,00
og lóðin með girðingu kr. 240,00“.
Kona Magnúsar var Steinunn Sighvats-
dóttir. Þau bjuggu þama til vors 1907, er
þau selja Jóni Ottasyni húsið. Þá byggja
þau nýtt hús við Vesturgötuna og nefndu
Bjargarstein. Þar verður þeirra betur get-
ið síðar.
Árið 1906 býr einnig í Ármóti Sæ-
mundur Guðmundsson kennari, ásamt
Matthildi konu sinni og dóttur þeirra á
fyrsta ári.
Árið 1907 kemur svo eftirtalið fólk að
Árrnóti: Vilborg Oddsdóttir og sonur
hennar af fyrra hjónabandi, Jón Ottason.
Teitur Jón Gislason, Kristinn Teitur Gísla-
son og Júliana Gísladóttir, öll böm Vil-
borgar og síðari manns hennar, Gísla
Teitssonar, svo og uppeldisdóttir hennar,
Hallfriður Jóna Þórðardóttir.
Oddur Helgason, faðh- Vilborgar í Ár-
móti var tvíkvæntur. Hin fyrri var Vil-
borg, fædd um 1797 á Beitistöðum i
Leirársveit, dó 63 ára, 18. des. 1854 á
Indriðastöðum, Þórðardótth- bónda, fyrst
á Beitistöðum, svo Eystra-Súlunesi, Jóns-
sonar. Siðari kona Odds var Hallbera Þor-
steinsdóttir, og þeirra dóttir var Vilborg.
Hallbera var systir Pétm-s bónda Þor-
steinssonar á Gmnd í Skorradal. Vilborg
Oddsdóttir giftist í fyrra sinn 8. júní 1878,
OttaGuðmundssyni, bróður Guðmundar
skipasmiðs, Guðmundssonar, sem kennd-
ur var við Leirárgarða, bjó einnig hér á
Nesinu, svo og lengi á Háteig. Þau reistu
bú að Kúludalsá og þar andaðist: Otti,
59 ára að aldri.
Jón Ottason gerðist snemma fyrirvinna
móður sinnar og yngri systkina.
Hann fór snemrna til sjós á skútu, en
stimdaði þó framan af landbúnaðarstörf-
in að jöfnum höndum. .Tón var ákaflega
kappsamur til verka og fylginn sér og
hlífði sér hvergi. Þetta sáu yfirboðarar
hans fljótt, og fundu, að þarna var maður
sem mátti treysta, Hann var þvi eftirsótt-
ur í skiprúm og fljótt falin þar ábyrgðar-
störf. Jón var stýrimaður og síðar um
mörg ár skipstjóri á vélbátum hér.
Hann fékk góðan skóla hjá völdum
skútuskipstjórum og hann var lengi í skip-
rúmi hjá Bjama Ölafssyni. Jón var ákaf-
lega aðgaítinn og eftirtökusamur um allt.
Hann komst þvi óvenjulega klaklaust og
átakalitið frá öllum störfmn sínum.
Jón Ottason var mjög heilsteyptur mað-
183
AKRANES