Akranes - 01.07.1958, Qupperneq 49
I ársbyrjun 1939 gerðist Guðrún Bjöms-
dóttir úr Reykjavík ráðskona hans. Hún
er fædd í Reykjavík 13. maí 1909, dóttir
hjónanna Margrétar Jónsdóttur ættaðri
frá Heiði í Holtum og Bjöms Bjömssonar
frá Bakkárholtskoti í ölfusi. Guðrún og
Vilhjálmur eignuðust eina dóttur, Mar-
gréti Ambjörgu og fæddist hún í Reykja-
vík 4. júli 1940. Hún er gift Pálma Birgi
Lárussyni, sjómanni úr Hafnarfirði. Þau
eiga heima i Ármóti og eiga eina dóttur,
Guðrúnu Margréti.
Þau Guðrún og Vilhjálmur kynntust á
Vífilsstöðum, og þar hefur Guðrún dvalizt
öðru hvoru vegna berkla í lungum. Á
Akranesi voru þau árið 1950—51. Þaðan
fóm þau að Miðsandi á Hvalfjarðarströnd,
en árið 1953 veiktist Vilhjálmur enn og
varð að fara til Vifilsstaða þar sem hann
dvelur enn. Árið 1954 veiktist Guðrún
einnig og varð að leita til sama staðar en
fékk þó á einu ári þann bata, að hún hef-
ur síðan unnið að hjúkrunarstörfum á
hælinu.
Með Margréti konu sinni eignaðist Vil-
hjálmur tvær dætur.
1. Rósu, sem gift er Guðmundi Bjarna-
syni, trésmiðameistara frá Minni-
Borg. Þeirra börn: Margrét Ambjörg,
Bjami Magnús og Vilhjálmur Jónsson.
Þeirra heimili er nú á Suðurgötu 19
hér í bæ.
2. Guðrún Jóna, gift Ágústi Halli Bjama-
syni, málarameistara frá Borgaraesi.
Þeirra börn: Jón Þór og Jóhanna Hug-
rún, Heimili þeirra er á Vesturg. 133.
Vilhjálmur Jónsson er óvenjulega hæg-
látur maður og prúður í allri framgöngu.
Er óhugsandi annað en hann komist af
við alla menn. Veikindi sín hefur hann
borið með stakri þolinmæði, alltaf kátur,
hlýr og bjartsýnn hverju sem á gengur.
Hann /æri mikill afkasta- og eljumaður
ef hann hefði haldið fullri heilsu. Síðari
árin hefur hann nokkuð fengizt við smá-
sagnagerð og gefið út nokkrar bamabæk-
ur, en auk þess skáldsögur, og nú síðast
bók, er hann nefnir Innan Hælis og utan.
1 öllum þessum bókum speglast innri
maður Vilhjálms, hins prúða og samvizku-
sama manns, sem gerir sér dátt við lífið
þótt það hafi leikið hann hart,
Ýmislegt fleira fólk hefur búið í Ár-
móti, en þó margt skamman tíma, ]). á m.:
Guðjón Hallgrímsson kennari, Stefán
Bjarnason lögregluþjónn og kona hans
systurdóttir Jóns Ottasonar, Elínbergur
Guðmundsson Rvík, Snorri Ásgeirsson raf-
virkjameistari, Gísli Sigurðsson, fæddur
i Reykjafjarðarhreppi og kona hans Sess-
elja Einarsdóttir, fædd 1891 á Húsatóft-
um í Gerðahreppi, Bjarni Egilsson, fæddur
1924 í Heiðarhúsum, Norður-Isafjarðar-
sýslu, Ölafur Hallsteinsson, fæddur 1888
á Stóru-Fellsöxl, Hallur S. Gunnlaugsson
og Lára Einarsdóttir Hólm. Þeirra böm
1957: Kristinn og Hrönn.
Jóns Ottasonar og fjölskyldu Vilborgar
Oddsdóttur hefur áður verið getið i sam-
bandi við Bæ I. í I. til III. tbl. 1954.
Vilborg Oddsdóttir var luindlétt, kát og
glöð og injög vinnusöm. Hún var vel verki
farin, sem m. a. m. má marka af þvi, að
hún saumaði karlmannsföt á eigin spýtur,
þótt. ekki væri miklu námi fyrir að fara
í þeim efnum eða öðrum.
STYÐJIÐ
O G STYRKIÐ
— S. í. B. S. —
185
AKRANES