Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1927, Side 32
Tala bifreióa
Ar
1917- 18
1918- 19
1919- 20
1920- 21
706 584*)
533 706*)
996 660
1 250 000
Hér eru ekki taldar flutningabifr^iðir, sem Ford
heíir látið smíða, en þœr hafa fjölgað með hverju ári.
Síðan árið 1921 munu um tvær miljónir bifreiða hafa
verið smíöaðar 1 verksmiðjum Fords á ári hverju,
til jafnaðar, en par í eru taldar tlutningabifreiðir.
Á síðari árum hefir Ford-félagið komið upp verk-
smiðjum víðs vegar um heim, og eru par einkum
settar saman bifreiðir, sein smíðaðar eru i Detroit.
Pó munu hifreiðir nú smíðaðar að öllu leyti í verk-
smiðjum Fords á Englandi.
Auk bifreiða hefir Ford látið smíða mikinn fjölda
dráttarvéla, sem kallaðar eru »Fordson«. Eins og
áður er á vikið, hafði F*ord leikið hugur á pví 1 æsku
að finna upp hentuga vél til pess að draga plóga, en
pað komst ekki í framkvæmd fyr en árið 1917. Pað
ár og hið næsta lét hann smíða 5000 dráttarvélar
handa Bretum, og komust pær allar austur um haf,
pó að kafbátahætta væri pá sem mest. Vélar pessar
voru notaðar til plæginga og reyndust vel og hafa
víða rutt sér til rúms síðan.
Tvennt er pað einkum, sem segja má að einkenni
stóriðju Fords. Hann greiðir verkamönnum sínum
hærra kaup en aðrir og selur pó ódýrara en keppi-
nautar hans. — í fljótu bragði virðist undarlegt, að
petta tvennt fari saman. Hingað til hafa margir talið
pað öruggasta gróðaveg að selja dýrt, en launa verka-
mönnum illa. Pó hefir Ford auðgazt meir en aðrir
menn. »Galdur« hans er sá, að hann hefir með hverju
ári endurbætt vélar sínar og vinnubrögð, svo að nú