Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1927, Síða 102
ónæði af höggutti uppi yfir sér. Það er hávaóinn af
jarðnöfrunum, sem koma lauga vegu ofan úr dags-
Jjósi um torfarin jarðlög. Mánuðum saman færist
þessi hávaði nær og nær, þangað til hamarinn brýzt
gegnum bergið niður í fylgsni oliunnar. Þá kemst
allt á tjá og tundur í þessum undirdjúpum. Gasið,
sem þarna hefir legið og lengi þjappað að olíunni,
leysist nú loks úr læðingi, og olían veit ekki af sér,
fyrr en hún þeytist með gasinu upp nafarraufina í
óstöðvanda straumi. Ekki fær olían þó að sjá dagsins
ljós, þegar hún kemur loksins upp á yfirborðið, heldur
þeytist hún eftir pípum yfir flötinn, sem liggur
milli námunnar og dælustöðvarinnar. far sogast hún
upp í dælur, áður en liún hefir jafnað sig eftir fyrsta
sprettinn, og er þeytt um pípur yfir holt og hæðir,
þangað til hún kemur í dálítið dalverpi, og þaðan
streymir hún niður á jafnsléttu. Paðan rennur hún
um 150 (enskra) mílna veg í piþum fram til Abadan.
En til þess að hún hægi ekki allt of mikið á sér, er
henni lypt upp með dælu hér og þar, en við það
eykst rennslis-hraðinn. Stöðvar eru fram með píp-
unum, og ekki nema hálfrar stundar gangur á milli
þeirra. Par eru menn á verði, til þess að vera til
taks, ef pípurnar springa, og hafa þeir tæki til þess
að beina oliustraumnum í nýjar pípur, ef einhver
bilar. Að lokum kemst olían alla leið til Abadan, og
þar fær hún ef til vill að hvílast um stund í stórri
þró. En ekki er þó lengi »til setu boðið«, því að
áður en varir, er henni dælt út í oliuskip eða inn í
hreinsunarhús og gengur þar i gegnum margs konar
hreinsunarvélar. Skilst hún þá að, og fer sorinn eða
»fóturinn« í einn stað, en olíudropinn í annan. Síðan
er olíudropanum dælt út í olíuskip, sem heldur út
Persaflóa, yfir Rauðahaf, gegnum Súez-skurð, um
.Miðjarðarhaf og alla leið til Llandarcy í Wales. Par
kemst olíudropinn í blikkbrúsa og ævilok hans verða
ef til vill þau, að hann sundrast i Ford-vél á götum
(98)