Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1933, Blaðsíða 106
104
Alls stunduðu nám í skólanum 27 nemendur í eldri deild, 4
framhaldsnám í smíðum, 21 í yngri deild og 5 sauma einvörð-
ungu, alls 57 nemendur auk 18 íþróttanema.
Nr. 2 í eldri deild hætti námi um miðjan vetur Vegna las-
leika, nr. 2 og 21 í yngri deild tóku ekki próf sökum lasleika.
Nr. 8 og 19 í e. d. bjuggu sig' undir 2. bekk Kennaraskóians,
nr. 15 í yngri deild var ekki allan veturinn og fékk lausn frá
prófi, nr. 2 og 5 í saumadeild saumuðu aðeins hálfan veturinn
hvor.
Kennarar skólans voru:
Arnór Sigurjónsson, skólastjóri.
Konráð Erlendsson, 1. kennari.
Þórhallur Björnsson, aukakennari.
Þorgeir Sveinbjörnsson, aukakennari.
Ragnhildur Halldórsdóttir, aukakennari.
Rannveig Jónasdóttir, aukakennari.
Áskell Sigurjónsson, stundakennari.
Sigurbjörg' Sigurjónsdóttir, stundakennari.
Arnór kenndi bókmenntasögu í báðum deildum sameiginlega,
flutti tvo fyrirlestra vikulega og varði tveimur kennslustund-
um á viku til talæfinga með nemendum. í eldri deild kenndi
hann mannkynssögu, í yngri deild Islendingasögu og' í báðum
deildum íslenzka málfræði og stílagerð. Konráð kenndi dýra-
fræði sameig'inlega í báðum deildum, dönsku, landafræði, reikn-
ing og þjóðfélagsfræði í báðum deildum. Þórhallur kennai
smíðar og' teikningu, Þorgeir ieikfimi, sund, heilsufræði og
sænsku og' hafði umsjón með útivist pilta. Ragnhildur kenndi
sauma og hannyrðir, Rannveig karlmannafatasaum, Áskeil bók-
færslu í eldri deild og Sigurbjörg' ensku í báðum deildum. I
fjarveru Sigurbjargar kenndi frú Lizzie Þórarinsson frá Hall-
dórsstöðum ensku síðari hluta vetrar.
Kennslunni var hagað pannig:
1. / yngri deild.
Deildin var að þessu sinni óskift. Þó fengu 8 nemendur, sem
lengra voru komnir áleiðis í dönsku sérstaka kennslu í þeirri