Jólagjöfin - 24.12.1920, Page 23
Jólagjöfin
21
þessari stóöu 3 hermenn meö hríöskotabyssu til þess aö skjóta
flugvélar. Virkisstjórinn mælti:
í hörðustu skothríöinni í gær stóöu 2 hermenn hérna í hol-
unni, allan tímann. Eg hélt, aö þeir væru báöir fallnir. Seint
í gær komst eg upp úr virkinu aðra leiö, er skothríöinni slotaöi.
Og þar stóðu þá báöir piltarnir enn? — Þeir höföu eigi beðið
urn lausn né leitað hlífðar í holunni þarna, tæpa 10 metra frá
þeim. Þeir sögöust hafa átt aö gæta að flugvélum, — og
svo stóðu þeir þarna allan daginn!"
Djúpar holur eftir sprengikúlur sýndu glögt, hve hætt þessir
tveir hermenri höföu veriö staddir. Tveir grafkrossar yfir
föllnum félögum voru næstu grannar þeirra. Allar hinar graf-
irnar voru hræröar saman í einn graut.
Af og til komu sprengikúlur hvinandi og ýlfrandi í loftin'u
í dag líka. En hermennirnir gáfu eigi óvættunum neinn gaum.
Þeir gengu að verki sínu, reyktu, spjölluöu og hlógu, eins
og ekkert væri um aö vera. Hvaö stoðaði það aö hlaupa í
felur í hvert eitt sinn! Dauðann ber einhverntíma að höndum
hvort sem er, og hermannsdauðinn er eigi verri en hver arinar
dauöi.
Niðri í virkinu störfuöu menn eins og í stórri mauraþúfu.
Þar voru ótal göng og krókar og kimar, sumir 10, aörir 20
og nokkrir jafnvel 40 metra niöri i jörðinni. Þaö var heil borg
þarna niðri, meö rafljósastöð, vatnsveitu, símastöð, þvotta-
húsi, svefnsölum, borösölum, smiöju og trésmíðaverkistofu,
sjúkrahúsi og samkomusal. t þessum sal sást merkið Y. M.
C. A. (Young Mens Christian Association = K. F. U. M.).
Sést merki þetta um viöa veröld og eigi hvað síst í Frakklandi
nú á dögum. Það er lika krossmerki. —
Hermaður með silfurkross á bririgunni heilsar kastalastjór-
anum. Það er presturinn. Hann langar til aö sýna okkur kirkj-
una sina.
Inni í steinsteypuhólfi einu stóðu nokkrir hermerin og negldu
og hömruðu. Þeir höföu verið aö verki í allan gærdag, meðan
skothríöin stóö, og kepst við svo hægt væri að vígja kapelluna.
„Mig vantar fáeina altaris-stjaka,“ sagði prestur.
„Þá skuluð þér fá,“ svaraði kastalastjórinn. „Látið mig aö
eins vita, ef yður vantar eitthvað."
Presturinn hérna sagði okkur sömu söguna og Verdun-prest-