Jólagjöfin - 24.12.1920, Qupperneq 78
76
Jólagjöfin
„tíma“ þeir — hlaupararnir — fá. ÞaS er ys og þys í kring
um mig; hver talar upp i annan, •— ensku, sænsku, frönsku,
flæmsku og hver veit hvaö, — enskan og sænskan eru hávær-
astar. Ameríkanar og Sviar hafa sérstök „heróp“, sem þeir nota
óspart og viS öll tækifæri, en einkanlega við svona tækifæri.
Keppendurnir raöa sér upp viS „línuna" og nú veröur dauöa-
þögn. Svo ríður skotiö af og samstundis er hlaupið af stað. Þeir
fylgjast allir að af stað og yfir fyrstu og aðra grindina, en svo
fer línan að ójafnast; þeir seinni dragast aftur úr. Fyrsti mað-
urinn hleypur þessa no metra og á þeirri leið fer hann yfir
10 meira en meter-háar grindur, á 15^ sek. Næsti flokkur
fer alveg eins af stað, og á síðari partinum dragast hinir seinni
aftur úr. — Hér verður maður að minnast þess, að aftasti mað-
urinn er samt ef til vill fljótasti maður í sínu landi á þessari
vegalengd. — í þessum flokki var heimsmeistarinn og sá, sem
siðar vann hlaupið; tók samt ekki nærri sér og var 2. í röðinni.
Það eru fjórir flokkar enn. í þessum sex flokkum eru saman-
komnir bestu menn heimsins í þessari fögru íþrótt. Eg fer
því ekki burt úr þessum stað, fyr en allir flokkarnir eru búnir
að hlaupa. En nú byrjar hástökkið, sem eg hefi sérstaklega
mikla löngun til að sjá, og það fer fram í hinum endanum
(norðvestur) og eg verð að flytja mig til þess að komast sem
allra næst því. Mig langar líka tfl að fá nokk'rar ljósmyndir af
því. Eg kemst þangað yfir um, með því að fara út fyrir og
ganga svo vestur með byggingunni og fara gegnum vestur
ganginn og yfir í stæðin fyrir endanum. Þeir byrja á 160 cm.
hæð og fara allir yfir i fyrsta stökki. — Þetta eru líka úrslitin.
Þar næst er hækkað upp í 170 cm. og fara flestir einnig yfir
þá hæð i fyrsta stökki. Við næstu hæð (175) fara þeir fyrstu
að „finna til“ hæðarinnar, og á næstu hæð, 180, eru fáir, sem ekki
þurfa að stökkva bæði tvisvar og þrisvar. Flestir hafa sig þó
yfir. Svo er enn hækkað um 5 cm., upp í 185. Á þeirri hæð
stansa flestir (komast það, en ekki hærra). Að eins 3 komast
yfir 190. Sviinn Ekelund og Amerikanarnir Muller og Landon.
Á þeirri hæð stansa þeir Ekelund og Muller, en næstu hæð
(x93*6) stekkur Landon yfir í fyrsta stökki. — í engri íþrótta-
grein eru eins margar aðferðir notaðar, eins og í hástökki, og
'í fáum íþróttagreinum kemur eins í ljós fimi og fegurð hreyf-
inga eins og þar. Og það var sannarleg unun að sjá,