Jólagjöfin - 24.12.1920, Page 85
Jólagjöfin
83
jafn-framarlega. Duke, sem er næst-ystur, nær sér þó fljótt
fram úr hinum. 1" ftir 40 metra er hann einnig kominn fram
fyrir Ross. Hann sj ndir meS löngum, hægum handatökum, —
hægari en hinir. Fæturnir ganga eins og skrúfa; hringiöan
aftur af, er eins og frá litlum vélbáti. 20 stikum frá marki
er hann oröinn tveim stikum á undan og vinnur meö þeirri
vegalengd; þaö var nýtt heimsmet. Kealoha, hinn Kanakinn.
nær sér einnig fram úr Ross og verður næstur, Ross þriöji,
Ástralinn fjóröi og hinn Amerikaninn síöastur; hann var svo
þreyttur, aö landar hans uröu að draga hann upp úr vatninu.
Þetta sund varö ógilt, vegna þess að Ástralinn var hindraöur.
Braut hans var á milli brauta Kealoha og Ross. Báöir syntu
inn á braut hans og lentu þar saman, og þegar Ástralinn, sem
•var rétt á eftir, kom syndandi, voru þeir fyrir honum og lenti
hann upp á hinum breiöu bökum þeirra, — töföust þeir allir
mikiö viö þetta.
Dugleg stúlka.
Eg kyntist mörgum útlendingum, frá ýmsum löndum heims,
Jiarna á leikunum. Einn af þeim, sem mér þótti mest gaman
aö kynnast, var New-Zealendingurinn Mr. Walrond, sem haföi
feröast til leikanna meö dóttur sinni, Miss Violet Walrond.
Tók hún þátt í kvensundinu, bæöi 100 og 300 metra og komst
í úrslitaflokkinn á báöum vegalengdum. Hafði þó aldrei synt
300 metra kappsund fyr. Hún er aö eins 15 ára, en fremur
stór eftir aldri. Enda er óhugsandi, aö hún heföi getaö unn-
iö slikt þrekvirki, aö keppa við fullorönar stúlkur, og vinna
sigur á flestum, ef hún hefði ekki verið bráöþroska. Eg þori
aö fullyrða, aö hún hefði borið sigur úr býtum viö alla kepp-
endur sína, á styttri vegalengdinni, ef hún heföi fengið tæki-
færi til aö reyna sig viö þær heima hjá sér, eöa ef hún hefði
komiö svo snemma til leikanna, aö hún heföi haft tíma til
aö ná sér fullkomlega. En hún gat varla haft verri aöstööu
en hún haföi þarna: Hún og faöir hennar höföu veriö sjö vikur
á leiöinni til Englands. Þangaö komu þau 5. ágúst. Allan þann
tíma haföi Aliss Walrond ekki haft nokkurt tækifæri til þjálfs
og ekkert getað þjálfaö reglulega fyr en síðustu 10 dagana,
áöur en kappsundin byrjuöu, og svo i tilbót, þegar kappsund-
in fóru fram, var kalsaveður, meö regni og einn daginn hagli,
6*