Freyr - 01.12.1946, Page 33
FRE YR
363
fósturland og æskuslóðir, finnur til líkt
og hann væri að kveðja ættingja og vin
í hinzta sinn.
Enginn þarf að kenna í brjósti um hest-
ana eða hafa áhyggjur af líðan þeirra,
hvorki í skipinu eða eftir að þeir eru
komnir til hinna nýju heimkynna. Þrír til
fjórir hestar standa saman í rúmum — og
loftgóðum stíum. Þar er nóg af grænu
og góðu heyi og skjóla með vatni handa
hverjum hesti. Gæzlumaður er fyrir hverja
25 hesta og dýralæknir fylgist með líðan
þeirra. — Ferðin gekk líka vel. Eftir fjóra
daga voru hrossin komin til Póllands. Að-
eins 2 þeirra veiktust, hvort tveggja hryss-
ur; önnur af fósturláti, en hin af júgur-
bólgu. Báðar voru læknaðar með súlfa-
lyfjum. — Þegar til Póllands kom var
hrossunum útbýtt milli smábænda, sem
fóðra og hirða þau vel, temja þau og nota
við jarðyrkjustörf og keyrslu.
Að mörgu leyti getum við því verið á-
nægð með það hlutskipti, sem þessi hross
hljóta og óskað þeim til hamingju og
langra lífdaga, — en við vitum af reynslu,
að geysisterkur þáttur í tilfinningalífi
hestsins er heimþráin. Hún spyr ekki um
aðbúnað og umhyggju. — Máltæki segir:
„Þangað leitar klárinn, sem hann er
kvaldastur“. — Á íslandi er það oftast
fæðingarsveitin. — Þeir, sem dvelja lang-
dvölum fjarri átthögum sínum, finna
flestir til heimþrár. Þeir, sem erlendis
dvelja, þjást iðulega af henni, jafnvel þótt
þeir njóti meira öryggis og efna, en þeir
geta vænst heima á íslandi. — Heimþráin
er eins og andlegt teygjuband, sem togar
þeim mun fastar, sem lengra er farið og
meira stríkkar á bandinu. — Af þessum
ástæðum fann ég til, þegar ég kvaddi
hestana um borð í stærsta skipi, sem kom-
ið hefir á Reykjavíkurhöfn, þ. 22. sept. s.l.
en atvinnu- og viðskiptalífið spyr ekki
um hræringar tilfinningalífsins.
Hross hafa ekki verið flutt út héðan
síðan 1939, en fram að þeim tíma hafði
árlega talsvert verið flutt út af þeim í
nokkra áratugi. Hæpið er að við höfum
nokkru sinni unnið eins óviturlega og
illa að nokkrum málum og þessum út-
Hestur, snaraður og mýldur af vönum mönnum. Síðustu íslenzku handtökin — eftir fá augnablik
Handtökin eru ekki alltaf mild, en útskipunin tekur útlendingur við þeim brúna.
þarf að ganga greiðlega.