Freyr - 01.12.1946, Síða 51
FREYR
38Í
inn skuli fá einhvern tiltekinn skammt af
áburði, einn þurfi svona mikið en annar
hitt. Mælikvarði á það er bezt kominn í
höndum frámleiðendanna sjálfra, og þeirra
sem sölu annast til einstaklinganna. Án
efa fer áburðurinn og hefir farið, fyrst
og fremst til þeirra, sem ekki geta án
hans verið.
Ég tel litla hættu á því, að menn óski að
kaupa áburð, sem þeir geta án verið eða
umfram þörf, slíkt mundi aðeins koma
fyrir ef hætta væri á mikilli verðhækkun
eða áburðarskorti farmvegis.
Ekki getur það talist líklegt, að unnt sé
að minnka áburðarkaup einstaklinganna,
án þess að framleiðsla þeirra bíði hnekki
við það. Það mundi því aðeiris geta orðið,
að þeir hefðu notað áburðinn í óhófi, en
slíkt munu vera undantekningar, og eiga
sér stað hjá þeim einum, sem ekki kunna
með hann að fara, en þeim þyrfti þá að
kenna betri aðferðir um meðferð og notk-
un áburðarins.
Að lokum skal þetta tekið fram:
1. Síðustu árin hefir ekki tekizt að full-
nægja óskum landsmanna um áburð-
arkaup. Einkum hefir á það skort, um
Ammophos, en sá áburður er blanda af
fosforsýru og köfnunarefni. Hreinn
fosforsýruáburður hefir einnig verið
torfenginn.
2. Til garðræktar þarf sömu aðaláburð-
arefnin og til grasræktar — köfnunar-
efni, kalí og fosforsýru. Köfnunarefn-
isáburðurinn einn nægir túnunum
enganveginn enda þótt ýmsir hafi látið
hann nægja, jafnvel árum saman.
3. Blandaður áburður — Ammophos, —
hefir verið mest eftirsóttur um skeið,
en ekki hefir verið fáanlegt til landsins
nema nokkur hluti þess sem beðið
hefir verið um. Úthlutun hans hefir
því verið erfið og ekki þótt fært annað
en veita öllum úrlausn. Innflutningur
á Superfosfati í vor sem leið, bætti
verulega úr mikilli vöntun fosforsýru-
áburðar.
4. Áburðarsala ríkisins selur áburðinn
aðallega verzlunum og búnaðarfélög-
um, sem aftur úthluta honum til ein-
staklinga. Hún getur ekki gerst dóm-
ari um það, hver áburðarþörfin er hjá
hverjum einum, né skammtað einum
meiri rétt en öðrum. Enginn áburðar-
kaupandi hefir verið fús til að minnka
það áburðmagn, sem hann hefir ósk-
að fá, og síst af Ammophos.
5. Æskilegt er að unnt væri að kaupa hin
þrjú aðaláburðarefni — köfnunarefni,
kalí og fosforsýru — í sem hagkvæm-
ustum og handhægustum samböndum.
Við það mundi sparast mikil vinna og
flutningskostnaður. En meðan núver-
andi ástand helzt, verður að sæta því
sem fæst, þótt annað væri eftirsóknar-
verðara og gæfi hagstæðari árangur.
Ennþá verðum við að búa við annan
og minni áburðarskammt en við kjós-
um, en væntum að það breytist smám
saman til batnaðar, og að áburðarþörf-
inni verði fullnægt.
Jón ívarsson.
★
Athugasemd við „Álit búnaðarfélagsins
Afturelding“, Hornafirði, um úthlutun
garðáburðar.
Að sjálfsögð er hér átt við Ammophos
16.20, sem gengið hefir undanfarin ár und-
ir nafninu garðáburður, og sem tvímæla-
laust má telja mjög villandi. Ammophosið
er ekkert betri áburður til garðræktar en
Superfosfat og brennisteinssúrt ammoníak,
en í þessum tveim einhæfu áburðarteg-
undum má fá sömu efni og í Ammophosi